Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 13

Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 13
samkomuna hætti ég að drekka með það sama. Ég þurfti ekki á neinni áfengismeðferð að halda, mig langaði bara ekki lengur að drekka. Skömmu síðar hætti ég að reykja með sama hætti. Lífsviljinn og heilbrigðið urðu óreglunni yfirsterkari.“ Laufin eru græn Einar seldi pústverkstæðið og tók sér góð- an tíma til að rækta sjálfan sig. „Ég átti það inni hjá mér að slaka á og njóta lífsins. Ég las mikið á þessum tíma og byggði mig upp. Síðan naut ég þess bara að sjá sólina koma upp á morgnana og horfa á laufin á trjánum. Ég var löngu búinn að gleyma því að þau væru græn.“ Þegar Einar var búinn að taka sér ársfrí frá vinnu hringdi félagi hans, Elvar Örn Magnússon. „Hann hafði víst vaknað með þá flugu í höfðinu að ég ætti að leigja af honum húsnæði á Smiðjuveginum. Nú? sagði ég bara. Hvað á ég að gera þar? Við veltum þessu aðeins fyrir okkur og komumst að þeirri niðurstöðu að ég ætti að opna púst- verkstæði. Ég kynni það fag. Eitt leiddi af öðru og skömmu síðar kom Elvar inn í þetta með mér. Það samstarf hefur gengið eins og í sögu enda hugsum við mjög svipað – sem eru ef til vill engin meðmæli með honum,“ segir Einar og glottir. Elvar hafði ekki komið nálægt pústkerfum áður en næmari manni kveðst Einar ekki hafa starfað með í greininni. „Það leikur allt í höndunum á honum. Hann hefur ótrúlega tilfinningu fyrir þessu.“ Dóttirin líka með veiðidellu Spurður um persónulega hagi upplýsir Einar að hann sé einhleypur um þessar mundir. Skildi fyrir nokkrum árum. Hann á fimmtán ára gamla dóttur, Hrafnhildi, sem er hjá honum aðra hverja viku. „Hún er ynd- isleg og ekki spillir fyrir að hún er með veiðidellu.“ Einar hefur aldrei hætt að syngja. Á efri unglingsárum var hann í sveitaballa- hljómsveitum en kveðst ekki hafa fundið sig sem skyldi í því hlutverki. „Þetta var hvorki fugl né fiskur.“ Eftir það kom Einar ekki fram um langt árabil eða þangað til hann gekk til liðs við gospelhópinn GIG (Gospel Invation Group) fyrir nokkrum árum. „Við höfum aðallega séð um lofgjörð í kirkjum. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt. Að vísu er ég í fríi núna vegna anna í vinnunni en vonast til að taka upp þráðinn sem fyrst aftur,“ segir Einar sem leikur einnig á píanó. Trúin er helsta haldreipi hans í tilverunni í dag. „Það er ekkert langt síðan ég gerði mér grein fyrir því að ég þorði ekki að lifa fyrr en daginn sem ég hætti að vera hræddur við að deyja. Núna veit ég hvert ég er að fara. Það er klárlega líf eftir þetta líf. Ég hef allt- af gert mér grein fyrir tilvist Guðs enda er það mín skoðun að allir menn fæðist með trú – sumir velja bara henda henni út. Trúin er ekki rökrétt og þess vegna fáum við hana í vöggugjöf. Alveg eins og skynsemina. Áður en ég fór að ganga með Guði hafði ég aftur á móti óbeit á trúfélögum. Ruglaði þeim saman við Guð. Þar sem Jesús gleymist eru alltaf vandræði.“ Hefur fyrirgefið eineltið En hvernig skyldi Einar hugsa í dag til þeirra sem lögðu hann í einelti í æsku. „Ég hef fyrirgefið þeim,“ segir hann eftir stutta umhugsun. „Auðvitað hef ég velt því mikið fyrir mér hvers vegna krakkarnir létu svona og hef komist að þeirri niðurstöðu að þetta hafi verið eðlileg óöryggisviðbrögð. Þeim leið illa sjálfum. Ég veit til dæmis að manneskjan sem lagði sig einna mest fram um að vera andstyggileg við mig var aðallega að draga athyglina frá sjálfri sér og fela það sem var að gerast heima hjá henni. Óttinn við að vera afhjúpaður getur náð töluverðum hæðum.“ Líf Einars Ólafssonar hefur verið við- burðaríkt og um margt óvenjulegt. Í dag lít- ur hann sáttur yfir farinn veg. „Ég hef gert mistök gegnum tíðina. En skaði maður eng- an og læri af mistökunum eru þau bara hluti af þroskaferlinu. Ég breyttist ekki í fullkom- inn einstakling þegar ég mætti Guði en ég er skárri í dag en ég var í gær. Það má hins vegar bæta miklu við.“ Hann er bjartsýnn á framtíðina. „Lífið er bjart og yndislegt. Og fullt af tækifærum. Ef þú horfir í augun á mér sérðu að ég meina það.“ áttum Einar heimsækir Bandaríkin líka reglulega og hefur tekið sérstöku ástfóstri við Alaska. „Það byrjaði þannig að ég kynntist manni frá Alaska sem er með blæðandi veiðidellu. Hann var hér á ferð fyrir um tíu árum og lík- lega hefur einhver bent honum á að ég væri með lausa skrúfu eins og hann.“ Í framhaldi af því hélt Einar sem leið lá til Alaska og féll kylliflatur fyrir stórbrotinni nátt- úrunni sem hann segir sambland af Bandaríkj- unum og Íslandi. „Síðan er andrúmsloftið svo afslappað þarna. Það bregður ekki nokkrum manni þótt bangsi róti í ruslatunnunni hjá hon- um. Elgir eru líka víða á vappi.“ Sjálfur komst Einar einu sinni í návígi við björn. Þá var hann að veiða lax ásamt leiðsögu- manni sem heitir því ágæta nafni Olafur – með sérstakri áherslu á effið. „Allt í einu gerðum við okkur grein fyrir því að björn stefndi hrað- byri á okkur. Olafur var alveg pollrólegur en lagði til að við hörfuðum í rólegheitunum. Allt- af nálgaðist samt björninn og ég viðurkenni að ég var kominn með hjartslátt. Olafur fullviss- aði mig hins vegar um að ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur, björninn myndi beygja af leið þegar hann væri kominn í 20 metra fjarlægð. Það stóðst. Hann var bara að setja okkur mörk.“ Einar hefur hvergi séð aðra eins laxagengd og í Alaska. „Það er meiri lax í ánum þarna en í laxeldisstöð. Ég hef séð menn standa úti í miðri á og moka laxi á land með háfinn einan að vopni. Það er ótrúleg sjón.“ Einar hefur kynnst mörgu góðu fólki í Alaska, þar á meðal eldri íslenskri konu. „Það var undarleg tilviljun. Við Gunnar Þorsteinsson í Krossinum vorum staddir á McDonald’s-stað í litlum bæ þegar ungur maður gaf sig á tal við okkur og spurði hvaðan við værum. Við tjáðum honum það og hann rak upp stór augu: „Amma er líka þaðan.“ Í ljós kom að hún bjó þar rétt hjá og við drifum okkur strax til hennar. „Býr Íslendingur hér?“ spurði Gunnar hátt og snjallt þegar dyrnar opnuðust. Gamla konan kom hlaupandi á móti okkur og beygði hrein- lega af. Svo glöð var hún að sjá Íslendinga.“ Laghentur Einar á pústverkstæðinu sínu. Frasinn „það er ekki til hjá Einari“ þekkist ekki. 13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.