Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 18
18 Afmæli
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Andrés Önd er heldurgrunnhyggin önd og af-skaplega skapbráð.Hann virðist ekkert
róast með aldrinum, þótt hann telj-
ist orðinn 75 ára. Afmæli hans er
miðað við 9. júní 1934, þegar fyrsta
teiknimyndin með honum í aðal-
hlutverki var sýnd, myndin The
Wise Little Hen, eða Litla, vitra
hænan. Í henni var Andrés í hlut-
verki heldur latrar andar, sem
reyndi að koma sér undan verk-
efnum, allt þar til vitra hænan
kenndi honum gildi vinnu.
Tíu árum síðar, í kvikmyndinni
The Three Caballeros (Kúrekarnir
þrír), var sagt að Andrés hefði
fæðst „föstudaginn þrettánda“, en
það skens vísaði fyrst og fremst í
óheppni steggsins, en ekki réttan
fæðingardag. Enn síðar var hann
sagður eiga afmæli 13. mars og sú
dagsetning vafalaust einnig valin
með tilliti til lánleysis andarinnar.
Kvakið fyrst, öndin svo
Andrés hefur ávallt talað heldur
ógreinilega, sem engan þarf að
undra, enda er hann önd. Nær
óskiljanlegt kvakið í honum
samt líkar öllum vel við Drésa.
Clarence Nash kvakaði rödd
Andrésar næstu áratugina, en
þjálfaði svo arftaka sinn, Tony An-
selmo, sem tók við 1985. Um allan
heim starfa raddsetjarar, sem
kvaka fyrir Andrés, hver á sínu
tungumáli.
Buxnalaus, nema í sundi
Í fyrstu var Andrés spengilegri
og smáfættari en hann er nú, en
með auknum þroska hefur botninn
breikkað og sundfitin breitt úr sér.
Hann er þó enn í matr-
ósaskyrtu og með sjóliða-
húfu í stíl, gengur líka
ávallt með slaufu, en er
buxnalaus. Nema þegar
hann fær sér sundsprett,
þá fer hann úr skyrtunni og í
sundbuxur!
Buxnaleysi Andrésar hefur
farið fyrir brjóstið á mörgum. Aðrir
kippa sér ekkert upp við að önd
skuli ekki ganga í buxum og telja
önnur vandamál mun brýnni í heim-
inum.
Að sama skapi láta sumir fara í
taugarnar á sér að Andrés ali upp
þríburana, frændur sína. Það á sér
hins vegar sína eðlilegu skýringu.
Systir Andrésar, Della, er móðir
andarunganna og sendi þá til Drésa
eftir að faðir þeirra lenti á spítala.
Pörupiltarnir, eða pöruandarung-
arnir, sprengdu kínverja undir stól
föður síns og hann er greinilega
és svo sannarlega sótt í sig veðrið.
Hann getur verið óþolandi uppal-
andi Ripp, Rapp og Rupp, vonlaus
kærasti Andrésínu, hörmulegur ná-
granni Jónasar og enn verri starfs-
maður, hvort sem það er hjá Jóa-
kim frænda eða vandalausum. En
hefur þó fremur aukið vinsældir
hans en hitt. Í tilviki Andrésar
fæddist röddin á undan steggnum.
Skapari hans, Walt Disney, heyrði
raddsetjarann Clarence Nash lesa
upp ljóð með andakvakinu sínu og
ákvað að teikna önd. Sú önd átti
ekki að vera ljúf og góð,
eins og Mikki mús
var þá orðinn, held-
ur varð að hafa
ýmsa skap-
gerðarbresti.
Þar hefur Andr-
enn að jafna sig.
Andrés hefur upplifað margt á
langri ævi. Hann lék til dæmis í
áróðursmyndum í síðari heims-
styrjöldinni. Í myndinni Der Fue-
hrer’s Face (andlit Foringjans)
fékk hann taugaáfall í vopnaverk-
smiðjunni í Nutzi-landi (Þýskalandi
nazismans) þar sem hann varð í sí-
fellu að heilsa að nasistasið þegar
andliti Hitlers brá fyrir. Í lok
myndarinnar kom í ljós að allt var
þetta vondur draumur.
Vinsæll á Norðurlöndum
Andrés Önd nýtur mikilla vin-
sælda á meðal Norðurlandaþjóða
og er þar vinsælasta persóna Disn-
ey-fjölskyldunnar. Í Noregi – þar
sem fyrsta Andrésar Andar Syrpan
var gefin út árið 1968 – eru seldar
rúmlega 4 milljónir af Syrpum ár-
lega, sem gerir hana að vinsælustu
myndasögubókum á Norðurlöndum
og slær þá jafnvel út metsölubækur
á borð við Söguna um Ísfólkið,
Morgan Kane og Harry Potter. Í
Finnlandi hefur vikublaðið Andrés
Önd 1,3 milljónir lesenda, sem jafn-
gildir því að 25% þjóðarinnar séu í
tengslum við Andrés.
Á hverju ári frá 1959 hefur jóla-
þáttur Disney „From All of Us to
All of You“ verið sýndur í sjónvarpi
í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og
Finnlandi, og er órjúfanlegur þátt-
ur af jólahaldi margra fjölskyldna.
rsv@mbl.is
Söngleikurinn Grease verðurfrumsýndur í Loftkast-alanum á föstudag. Hannhefur áður verið sýndur hér
á landi, en í dag eru rétt 37 ár frá því
að hann var fyrst sýndur á Broad-
way í New York. Þá var Barry Bost-
wick í hlutverki töffarans Danny
Zuko. Hann öðlaðist þó meiri frægð
sem Brad í söngleiknum Rocky Hor-
ror Picture Show árið 1975 og síðar
sem borgarstjórinn í sjónvarpsþátt-
unum Spin City, þar sem Michael J.
Fox lék aðstoðarmann hans. Í fyrstu
uppfærslu söngleiksins í London ár-
ið 1973 lék hinn óþekkti Richard
Gere aðalhlutverkið, en hann hafði
verið forfallaleikari í uppfærslunni í
New York.
Söngleikurinn hét upphaflega
Grease Lightning og var settur á
svið í Chicago árið 1971. Þar vakti
hann athygli leikhúsmanna frá New
York, sem gerðu ýmsar endurbætur
og settu hann á svið þar í borg í febr-
úar 1972. Hann fékk frábærar við-
tökur og framleiðendurnir fluttu
hann hið snarasta í Broadhurst-
leikhúsið á Broadway.
Eftir fimm mánuði í Broadhurst
var söngleikurinn fluttur í Royal-
leikhúsið á Broadway og þar voru
sýningar í rúm sjö ár. Loks var Maj-
estic-leikhúsið lagt undir og þar
voru síðustu sýningar, af hvorki
fleiri né færri en 3.388.
Jafn vinsæll söngleikur hlaut að
verða kvikmyndaður. John Travolta
og Olivia Newton-John gerðu þau
Danny og Sandy ódauðleg í mynd-
inni frá 1978.
Og enn er söngleikurinn settur á
svið um allan heim. Í maí 1994 hóf-
ust aftur sýningar á Broadway í
New York og urðu alls 1.505 talsins.
Þar stigu margar stjörnur á svið, til
dæmis léku þær Brooke Shields og
Rosie O’Donnell hlutverk hinnar
frökku Rizzo. Leikhópurinn ferðað-
ist um Bandaríkin í nokkur ár og þar
sáust á sviði m.a. Debbie Gibson, fé-
lagarnir Mickey Dolenz og Davy
Jones úr The Monkeys, Mackenzie
Phillips og Jasmine Guy, sem áður
var þekktust fyrir að leika hina of-
ursnobbuðu Whitley Gilbert í sjón-
varpsþáttunum A Different World.
Fjölmargir aðrir leikarar hafa
glímt við hlutverk í Grease. Patrick
Swayze og Treat Williams voru einu
sinni Danny og Linda Blair, sem enn
er þekktust fyrir hlutverk sitt í Sær-
ingamanninum (The Exorcist) lék
eitt sinn Rizzo.
Á þessum degi
7. JÚNÍ 1972
GREASE Á
BROADWAY
Töffarar Söngleikurinn um bandarísku unglingana
hefur notið mikilla vinsælda um allan heim.
Frægust Aðalleik-
arar kvikmyndar-
innar eru án efa
frægasta Grease-
parið.
Fyrsta Andrésblaðið á íslensku
kom út fyrir 25 árum. Þar voru Danir
að verki, þeir sömu og gáfu út Andrés
á dönsku. Á Íslandi höfðu sumir
áhyggjur af dönskuþekkingu landans
því áratugum saman höfðu Íslend-
ingar haldið dönskukunnáttu sinni
við með lestri á Andrési og félögum.
Árið 1991 fékk bókaforlagið Vaka-
Helgafell rétt til þess að gefa út blöð-
in um Andrés og félaga í samvinnu
við danska forlagið. Það má því segja
að Andrés hafi flutt til Íslands 5.
ágúst 1991. Myndasögublaðið um þá
félagana kemur nú út vikulega..
Árið 1984 hlotnaðist Andrési einn
mesti heiður sem hlotnast persónum
í kvikmyndaiðnaðinum. Þá skildi
hann eftir fótspor sín í blautri steypu
við hið heimsfræga Chinese Theatre í
Hollywood. Sá heiður fellur sjaldan
ómennskum stjörnum í hlut.
Fyrsti varningurinn sem tengdist
Andrési Önd var settur á markað á
fjórða áratugnum. Þar mátti meðal
annars finna dúkkur, kökukrúsir,
lampa, brauð og appelsínusafa, svo
eitthvað sé nefnt.
Myndasögublöð og -bækur um
þennan skapvonda stegg hafa verið
þýddar, lesnar, prentaðar og endur-
prentaðar í milljónum eintaka um
heim allan.
Skapstyggi steggurinn 75 ára
Martröð Andr-
és í vopnaverk-
smiðjunni,
óskaplega pirr-
aður á Foringj-
anum.
Buxur! Andrés
á leið í sund, en
annars klæðist
hann aldrei
öðru en skyrtu.
Kátur Andrés
Önd gleður
börn og full-
orðna um all-
an heim.
Hvernig segirðu
gisp! á íslensku?
Námsbrautir til stúdentsprófs:
félagsfræðibraut
málabraut
náttúrufræðibraut
viðskipta- og hagfræðibraut
viðbótarnám til stúdentsprófs
Starfsnám Heilbrigðisskólans:
heilsunuddarabraut
heilbrigðisritarabraut
lyfjatæknabraut
læknaritarabraut
sjúkraliðabraut
brúarnám á sjúkraliðabraut
tanntæknabraut
Almenn námsbraut
Skólameistari
Innritun fyrir haustönn 2009
Eftirtaldar námsbrautir eru í boði:
Innritun fyrir haustönn 2009 stendur nú yfir. Umsóknar-
frestur er til 11. júní. Rafræn innritun fer í gegnum
www.menntagatt.is. Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu skólans sem er opin 8.00-15.00 eða á heimasíðu
skólans, www.fa.is.