Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 20

Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 20
20 Flóttamenn MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Meirapróf Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737 Næsta námskeið byrjar 10. júní 2009 Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is H vernig er að búa í tjaldi í eyðimörk um hásum- ar og komast hvergi í skjól undan brennandi sólinni? Hitinn er lamandi, ætlar alla að kæfa, hér er engan skugga að fá. Ljósgulur sandurinn er eins og gló- andi kol en inni í tjaldinu er enn heitara, nærri 50°C. Sól er hátt á lofti en á samt enn eftir að rísa hærra. Getur ekkert skyggt á hana? Kannski að sandstormur geti dregið ský fyrir sólu. Hann veitir þó ekki mikið skjól heldur – fínn sand- urinn fyllir öll vit, smýgur inn í tjöldin, inn undir fötin, ofan í lung- un, kæfir þá sem húka inni í þunn- um tjöldum með slæðu fyrir vit- unum. Og bíða. Bíða eftir að storminn lægi, bíða eftir að komast í burtu úr einskismannslandinu. Ein- hver hlýtur að heyra um neyð þeirra og láta sig hana varða. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur þegar allt kemur til alls ítrekað varað við lífsskilyrðum í Al Waleed. Þetta eru ómann- eskjulegar aðstæður, svæði sem engan veginn er fallið til búsetu. Ískaldar nætur En kannski eru viðbrögðin við neyðinni lítil sem engin. Sandurinn í stundaglasinu rennur hljóðlega nið- ur, rennur saman við sandstorma, vikur verða að mánuðum og mán- uðir að árum. Steikjandi sumarhitar víkja fyrir nístandi vetrarkuldum. Þá skjálfa tjaldbúarnir í eyðimörk- inni og skríða undir teppi, en það er sama hversu teppin eru mörg, þeim hitnar ekki. Næturnar eru verstar. Ísköld nóttin er óralöng og virðist aldrei ætla að víkja fyrir morgunbirtunni. Endalaus skjálftinn þreytir en það er of kalt til að ná að festa blund. Einn veturinn snjóar meira að segja í Al Waleed og tjöldin falla saman undan snjóþunganum. Kuldinn nær inn að beini og börn með bláar varir velta fyrir sér hvort fólki geti í al- vörunni orðið kalt á beinunum. Hvort er betra að kafna úr hita eða frjósa úr kulda? Til Akraness Einu sinni í mánuði kemur starfs- fólk Flóttamannastofnunar Samein- uðu þjóðanna í eyðimerkurbúðirnar. Einstaka sinnum eru sendinefndir frá öðrum löndum með þeim – einn daginn frá Íslandi. Þeim Línu, Aydu, Manal, Fatin, Narjis, Saws- an, Abeer og Wafa er boðið að flytja á Akranes ásamt börnum sínum. Börnin eiga kost á framtíð, í Al Wa- leed er engin framtíð. En sendinefndirnar eru fáar. Áhugi stórþjóðanna ekki nægur, pólitískur vilji ekki til staðar. Börn- unum með bláu varirnar er hins vegar sama um allt heimsins skrif- ræði eða skrýtnar útskýringar á því af hverju þau eiga ekkert heimaland – þau vilja bara komast í burtu. Í Al Waleed eru ekki sinni millj- ónir af fólki. Í tjöldunum hírast rétt um 1500 manns. Væri viljinn til staðar mætti leysa búðirnar upp strax á morgun. Ef Ísland með sína 300.000 íbúa gat tekið 29 manna hóp, hvað ættu Bandaríkin þá að geta tekið marga? Bretland? Þýska- land? Ástralía? Spánn? Einhver? Heyrir einhver í mér af þeim sem réðust á Írak? Sá sem hírst hefur í tjaldi í eyði- mörk í þrjú ár getur ekki annað en spurt sig. Öskrað sig hásan. Verst að það heyrist ekki út úr sandflæm- inu. Sprengingar og mannshvörf Rowaydu Falah grunaði ekki að hún myndi eignast sitt fyrsta barn búandi í tjaldi. Hún er systir hennar Línu sem flutti á Skaga. Lína er 29 ára gömul og Rowayda 26 ára. Reyndar grunaði þær systur heldur ekki að þær ættu eftir að upplifa sjálfsmorðssprengingar og mannshvörf. Hvað þá að þær myndu neyðast til að segja skilið við lífið í borginni og enda í tjaldi í eyði- mörk – eða að önnur færi alla leið til Íslands. Í Bagdad áttu þær heimili – fal- legar stofur með fallegum munum, hús með þaki og þykkum veggjum. Í borginni fóru börnin í skóla, for- eldrar í vinnu; á helgum voru ætt- ingjar heimsóttir, kannski skroppið í skemmtigarð. Lífið gekk sinn vanagang og líf í þunnu tjaldi var Strand í sandi Hvar finnurðu steikjandi sumarhita, reglubundna sandstorma og eyðimörk með snákum og sporð- drekum? Bættu svo við þunnum tjöldum og ískulda á vetrum – og þú gætir verið í Al Waleed- flóttamannabúðunum í Írak. Flóttafólkið sem flutti á Akranes síðastliðið haust kom frá Al Waleed. Eyðimörk Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ítekað varað við lífsskilyrðum í Al Waleed flóttamannabúðunum í Írak þaðan sem flóttafólkið á Akranesi kom síðastliðið haust. Morgunblaðið/Sigríður Víðis Ættingjar Systir og systurdóttir Wafa Nabil sem flutti á Akranes. -Hvernig stendur á því að fólkið er Palestínumenn en samt frá Írak? Flóttafólkið í Al Waleed – og hóp- urinn sem endaði á Akranesi – eru Palestínu-Írakar. Þau eru fædd og uppalin í Írak en eru annarrar, þriðju og fjórðu kynslóðar palest- ínskir flóttamenn. -Af hverju endaði fólkið í Írak? Fyrstu Palestínumennirnir í Írak komu þangað eftir að hafa flúið borgina Haifa þegar Ísraelsríki var stofnað árið 1948. Haifa sem áður hafði tilheyrt Palestínu varð nú hluti af Ísrael. Palestínumenn sem bjuggu á svæðinu dreifðust víðs- vegar og um 5.000 þeirra enduðu í Írak. Flestir töldu að þeir yrðu í Írak einungis stutta stund – þeir hlytu að endurheimta aftur heimili sín í Haifa. Síðan liðu sextíu ár og Palestínumennirnir og afkom- endur þeirra eru enn í Írak. -Hvernig var Palestínumönnum tekið í Írak? Palestínska flóttafólkið fékk nið- urgreidda húsaleigu og aðgang að ýmsum opinberum störfum. Saddam Hussein hélt vernd- arhendi yfir því. Ósáttir Írakar dirfðust ekki að setja sig upp á móti því sem þeir sáu sem sérrétt- indi palestínsku flóttamannanna. Flóttafólkið fékk á hinn bóginn ekki ríkisborgararétt í Írak og hafði því hvorki ríkisborgararétt í Írak né í Palestínu. -Af hverju hófust síðar ofsóknir gegn þeim í Írak? Daginn eftir að Saddam-stjórnin féll – í apríl 2003 – var mörgum Palestínumönnum gert að yfirgefa húsnæði sitt. Í lögleysunni og ring- ulreiðinni sem jókst síðan jafnt og þétt hófust skipulegar ofsóknir öfgahópa sjíta-múslíma gegn Pal- estínumönnum – þeir skyldu burt úr Írak. Sjítum hafði lengi verið haldið niðri af Saddam Hussein og sumir þeirra horft löngunaraugum á hlutskipti palestínska flóttafólks- ins. Ný ríkisstjórn Íraks breytti lög- unum um Palestínumenn þannig að nú þurfa þeir að endurnýja landvistarleyfi sitt á tveggja mán- aða fresti, þótt þeir hafi búið í Írak alla sína ævi. Ferlið er ógagnsætt og getur tekið marga daga. Vegabréfslausir og ríkisfangslausir hafa flóttamennirnir ekki getað komið sér yfir landamærin og í burtu. Margir enduðu því úti í eyði- mörkinni nálægt landamærum Sýrlands og Jórdaníu þangað sem þeir sóttu frið fyrir ofsóknunum. S&S

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.