Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 25
Leitað er eftir þátttakendum í klíníska rannsókn á nýju rannsóknarlyfi Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga öryggi og verkun mismunandi skammta rannsóknarlyfsins við meðhöndlun á þrálátum háþrýstingi, samanborið við lyfleysu og virkt, markaðssett lyf. Aðalrannsakandi er Karl Andersen, sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum. Rannsóknin fer fram á Rannsóknarsetri Íslenskra lyfjarannsókna ehf. - Encode, Krókhálsi 5d, 110 Reykjavík. Hverjir geta tekið þátt? · Konur og karlar á aldrinum 18-75 ára með þrálátan háþrýsting (efri mörk =140 mmHg og <180 mmHg). · Einstaklingar á stöðugri þriggja lyfja meðferð við háþrýstingi sem eru þrátt fyrir það með of háan blóðþrýsting. Lyfjameðferðin má vera flóknari, þ.e. fleiri en þrjú lyf notuð, en eitt lyfjanna skal þó vera þvagræsilyf. Hvað felur rannsóknin í sér? Þátttaka varir í allt að 14 vikur og gert er ráð fyrir um 13 heimsóknum á rannsóknarsetur á tímabilinu. Heimsóknirnar taka u.þ.b. 1 til 4 klst. Gerðar verða blóðþrýstingsmælingar, bæði á rannsóknarsetri og með notkun blóðþrýstingsvaktara yfir sólarhring. Blóðsýni verða tekin í flestum heimsóknum. Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og ófyrirséðum. Ekki er hægt að tryggja að þátttakendur fái tímabundinn bata en niðurstöður rannsóknarinnar geta leitt til framfara í meðferð sjúkdómsins. Greitt verður fyrir þátttöku og rannsóknareftirlit verður þátttakendum að kostnaðarlausu. Frekari upplýsingar Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, vinsamlegast hafðu samband við hjúkrunarfræðing rannsóknarinnar í síma 510 9911 milli kl. 8 og 16 eða með því að senda tölvupóst á clinic@encode.is. Tekið skal fram að einstaklingar sem svara auglýsingunni hafa á engan hátt skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Ákveði þeir að taka þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni. Rannsóknin hefur fengið leyfi Lyfjastofnunar, Vísindasiðanefndar og Persónuverndar. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Það er vissulega mikið að gera allan daginn en fólk fer heim klukkan fimm eða sex. Í Berlín kynntist ég 14 tíma dögum með óborgaðri yf- irvinnu. Ég velti fyrir mér hvenær í ósköpunum ég gæti hitt vini mína eða ætti að njóta þess að vera í Berl- ín.“ En finnst henni Íslendingar þá ekki eins stressaðir og þeir telja sig sjálfir vera? „Mér finnst Íslendingar mjög óstressaðir. Þeir eru kannski stressaðir milli níu og fimm en það góða við að vera hér er að þú veist að þetta reddast allt á endanum. Ég varð miklu stressaðari í Þýskalandi og vissi að margir hlutir myndu ekki reddast. Hér er fólk opið fyrir því að redda og hjálpa til og finnst það ekk- ert mál.“ Nicole finnst Íslendingar sumsé ekkert sérstaklega stressaðir en þá víkur hugurinn að annarri mýtu um landann, að það sé svo erfitt að kynn- ast fólki hér. Almenningssamgöngur erfiðar „Það er erfitt því Íslendingar eru frekar lokaðir og erfitt að komast inn í hóp. Ég er að vinna í því að stofna minn eigin saumklúbb og það gengur bara ágætlega! Ég á marga góða vini en samskiptin eru samt öðruvísi en í Þýskalandi. Ef þú ert útlendingur án fjölskyldu og æsku- vina er þetta erfitt og gæti verið ein- manalegt. Ég vildi að ég gæti sagt að þetta væri ekki satt en þetta er því miður rétt. En maður þekkir hins vegar alla ef maður labbar Lauga- veginn! Ég neita því ekki en það er kannski meira á yfirborðinu.“ Nicole hefur kynnst mörgum hlið- um landsins og landans sem henni líkar vel við en eitt sem fellur henni ekki eins vel í geð er almennings- samgöngurnar. „Þær geta verið hræðilegar. Ég bjó í Grafarholtinu og var þá tvo og hálfan til þrjá tíma á leiðinni í vinnuna hér í 66° Norður. Ég þurfti að skipta tvisvar og leggja af stað klukkan sjö til að vera kannski komin hálftíu, ef ég hefði ekki misst af einhverri tengingu,“ segir hún en það segir sig sjálft að við þetta ástand var ekki hægt að búa og er Nicole nú flutt í Vesturbæ Reykjavíkur. „Ég er fegin að vera flutt, núna er ég 45 mínútur á leið- inni og skipti einu sinni. Allt annað líf. Ég var á bíl í fyrra og það er vissulega meira frelsi sem fylgir því þegar almenningssamgöngurnar eru svona.“ Fjölbreytilegt starf Nicole hefur tileinkað sér ákveðna fjölbreytni í vinnu sinni sem graf- ískur hönnuður eins og sjá má á vef hennar, nicolenicolaus.com. „Mér finnst gott að geta verið fjölbreytt, geta prófað ýmislegt í stað þess að festast í einum stíl. Auðvitað hefur maður vissan stíl en ég er ekki alltaf með sama teikningastílinn. Mér finnst gaman að nálgast verkefni frá mismunandi sjónarhornum og prófa nýjar leiðir. Ég held að með þessu hafi ég meira upp á að bjóða og fái fleiri verkefni,“ segir Nicole, sem sér ekki eftir starfsvalinu. „Ég elska starfið mitt mjög mikið, það er svo fjölbreytt og skapandi. Það er mjög skemmtilegt. Ég held ég hafi ekki séð eftir þessu einu sinni. Það er allt- af gaman að prófa eitthvað nýtt og láta reyna á hvar mörkin manns liggja.“ Morgunblaðið/Ómar Barnafatalínan Föt úr línunni ÍSlendingar sem unnin var fyrir Hagkaup, ásamt litríkum blöðrum og litabók með karakterunum. EITT af verkefnum Nicole er barnafatalína fyrir Hagkaup, sem hún vann með vinkonu sinni, fata- hönnuðinum Elmu Backman. Línan, sem ber nafnið ÍSlendingar, var gerð í kjölfar þess að þær unnu hönnunarkeppni Hagkaups 2008 fyrir barnafatalínu og er hún ný- komin í verslanir. Línan er skreytt ÍSlendingum, skrautlegum karakt- erum, sem bera nöfn eins og Álfadís og Rokkís, og líkjast ísi í formi. „Hugmyndin kom, eins og það er oftast, þegar maður býst alls ekki við því. Ég var í Washington en við hjá Fíton fórum í árshátíðarferð þangað. Ég byrjaði að teikna á fundi en það var mjög heitt úti og mér datt í hug að gera persónur úr ís. Ég geymdi teikningarnar í skissubók- inni minni, fannst þetta skemmtileg hugmynd en gerði ekkert meira við hana þá.“ Það breyttist þegar hún lenti í árekstri í fyrra og vantaði 200.000 krónur í viðgerðarkostnað. „Þá aug- lýsti Hagkaup hönnunarsamkeppni og þar voru 200.000 krónur í verð- laun. Þá fór ég í skissubókina og velti fyrir mér hvort ég ætti eitthvað sem ég gæti notað,“ segir Nicole, sem endurnýjaði kynnin við ÍS- fólkið og vann hugmyndina frekar. „Fötin eru nýkomin í búðir og mér skilst að viðtökurnar hafi verið góð- ar. Ég hef aldrei unnið svona langt verkefni áður en þetta tók alveg heilt ár og heilmikið ferli að baki. Það er mjög gaman að geta loksins sýnt fólki þetta,“ segir hún, en fata- línan ÍSlendingar samanstendur m.a. af hettupeysum, buffum, legg- ings, nærfötum og bolum og fæst bæði sérstök stráka- og stelpulína. „Ég skapaði karaktera sem ég ímyndaði mér að krakkar á aldrinum 2-7 ára hefðu áhuga á,“ segir hún en fötin koma í stærðum 92-122 cm. Borða ís í hvaða veðri sem er Ísinn er bæði notaður lítill í mynstri og stór á sumum flíkunum. „Svo gerðum við líka blöðrur og lita- bók þar sem karakterunum er lýst.“ Hún segir línuna „snúast ekki síst um hvað Íslendingar eru skemmti- legir og jákvæðir, því þeir borða ís í hvaða veðri sem er, það skiptir ekki máli hvort það er sól, snjór eða rign- ing! Íslendingar borða alltaf ís. Í Þýskalandi borðar maður bara ís á sumrin. Ég fór um daginn í ísbúðina við Hagamel og það var biðröð út úr dyrum. Þessir Íslendingar, hugsaði ég með mér, þeir eru alltaf að fá sér ís.“ ÍS-fólkið lifnar við KRINGLUNNI // SMÁRALIND // KEFLAVÍK AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM AÐEINS Í DAG SUPER SUNNUDAGUR 20% Í BLEND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.