Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 28
28 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Margrét „Mamma er byltingarforinginn okk- ar, gáfaðasta kona sem ég þekki, og við systkinin lærðum að lesa í bananabílnum hjá pabba, blíðasta pabba í bænum. Guðrún syst- ir er hins vegar pólstjarnan í lífi mínu. Hún var fyrst systkina minna til þess að eignast barn og ég var strax mikið með henni og Tomma, manni hennar. Ég veit ekki hvort Sóley, elsta dóttir þeirra, er dóttir mín, systir mín eða systurdóttir mín enda sagði hún gjarnan, þegar hún var lítil, „mamma, æ, nei Margrét“, þegar hún talaði við mig. Ég hef fengið óheftan aðgang að því að elska dætur Guðrúnar og það er mjög rausnarlegt af þeim að taka mig þannig inn í sinn hóp. Langt fram eftir aldri flokkaði hún mig tilfinn- ingalega með dætrum sínum en ekki systrum og ég var brjáluð vegna þessa fram eftir aldri. Nú geri ég mér grein fyrir að hún flokkaði mig í hóp með þeim vegna væntum- þykju. Ég þurfti líka að hafa mikið fyrir því hjá Guðrúnu að fá inngöngu í samfélag full- orðinna og fá hana til þess að taka mark á mér. Ég var til dæmis oft æf á unglingsárun- um þegar hún notaði virka hlustun á mig enda fannst mér það vera ofbeldistæki. Þá var ég mjög óörugg með sjálfa mig og vildi láta taka mig alvarlega.“ Allt leikur „Guðrún varð ófrísk á síðasta ári í mennta- skóla og ég man eftir henni sippandi á stofu- gólfinu heima þegar hún var komin einhverja daga fram yfir áætlaða fæðingu. Þegar vin- konur hennar voru allar fínar í stúdents- drögtum með stúdentshúfu sat hún skelli- hlæjandi í eldhúsinu með hlandbleyju af barninu sínu á hausnum. Ég hef elt það sem Guðrún hefur verið að gera og hef endalaust verið full aðdáunar á henni. Hún er afburðanámsmaður og al- gjörlega jafnvíg á hug- og félagsvísindi og raungreinar. Það er ævintýri að ganga með henni um náttúruna. Hún þekkir allt, sér allt, stoppar allt í einu bílinn og bendir þér á hreiður í fjörunni. Hún er afskaplega mikið náttúrubarn, les vel í náttúruna þannig að hún verður leikur. Í raun verður allt leikur í kringum Guðrúnu og við erum alltaf í leik og nennum að leika saman, þó við séum orðnar fullorðnar. Það verður allt skemmtilegt því hún sér spaugilegu hliðarnar á hlutunum og sjálfri sér. Svo er hún mjög fyndin og gagn- rýnin og alltaf má treysta því að hún fer aldr- ei venjulega leið. Hugmyndafræðilega hef ég fyrst og fremst tekið hana mér til fyrirmyndar. Ég var mjög ung þegar ég vandi komur mínar á Hótel Vík, þar sem Kvennalistinn kom saman. Á marg- an hátt var ég að spegla mig í stóru systur. Hún og mamma innprentuðu skýran og skemmtilegan femínisma í fjölskylduna og þannig hafði hún mikil áhrif á mig.“ Í beinni fyrir misskilning „Guðrún getur verið algjör hryllingur og sérstaklega á íþróttasviðinu. Hún er alltaf að byrja í átaki í leikfimi og alltaf að fara að „meika“ það. Einu sinni fór hún að hlaupa með Tomma, sem er fyrrverandi Íslands- meistari á skíðum og mikill íþróttagarpur, en það mælist ekki íþróttaáhugi í systur minni. Hún fór í gamlan, rifinn og ógeðslegan íþróttagalla af Tomma og ákvað að nú ætlaði hún að taka á því. Þegar hún kom út úr klef- anum í Laugardalslauginni sá hún hvergi Tomma. Hvar er hann? sagði hún við sjálfa sig, en lét ekki þar við sitja heldur skokkaði út á Laugardalsvöll, þar sem þau ætluðu að hlaupa. Hún hljóp hring eftir hring á vell- inum og heyrði alltaf öðru hverju hrópað og kallað „vá, hey, koma svo“, en sá hvergi Tomma. Hann hafði hins vegar séð það sem hún sá ekki, að það var Íslandsmeistarahlaup karla í hindrunarhlaupi á vellinum, og fór því annað að hlaupa. Þegar sýnt var frá þessu í sjónvarpinu mátti alltaf sjá Guðrúnu hlaupa hring eftir hring. Þessi útsending af henni hlaupandi í rifna hlaupagallanum af Tomma er mjög skemmtileg.“ Guðrún er mjög frjó og það er mikið í höfð- inu á henni hverju sinni. Hún er alltaf að fá hugmyndir og höfuðið gneistar. Allt gerist mjög hratt. Hún sér stóru myndina og nennir ekki í smáatriðin. Stundum finnurðu banana í uppþvottavélinni hjá henni eða kaffivélina inni í ísskáp. Það gengur svo mikið á og það sem öðrum finnst aðalatriðið að framkvæma mælist ekki sem verkefni hjá henni því hún er alltaf að vinna í stóru málunum. Það er oft erfitt fyrir aðra að meðtaka hvað hún er fljót að sjá hlutina og því er hún stöðugt að ögra.“ „Þegar hún flutti til Noregs ætlaði hún í doktorsnám í líffræði. Það er skipulagt þann- ig að þér er úthlutað verkefnum og eitt rann- sóknarverkefnanna var að vera sérfræðingur í bjarnarskít. Hún gat auðvitað ekki hugsað sér það, þannig að hún lærði félagsráðgjöf. Þar nýttist henni það sem hún lærði í kvennahreyfingunni og áður en ég vissi af var hún búin að stofna norræn samtök kvennaathvarfa sem urðu svo að heims- samtökum. Síðan kom hún heim og fór að vinna hjá Stígamótum. Strax var hún orðin leiðandi, ekki aðeins á Norðurlöndum eða í Evrópu heldur um víðan heim og einmitt á næsta ári gengst hún fyrir heimsráðstefnu í sínum málaflokki. Hún er alls staðar leiðtogi þar sem hún kemur, brautryðjandi. Hún er á undan sinni samtíð og það er ekki einfalt, því þeir sem eru á undan sinni samtíð fá ekki fylgismennina strax um borð. Helsti gallinn við Guðrúnu er hvað hún er allt of hógvær. Þetta er eitthvað sem hún hefur lært af mömmu, að láta verkin tala, og margir halda að hógværð hennar þýði að hún láti vaða yfir sig. Þeir komast fljótt að því að svo er ekki. Það kveður mikið að henni í starfi og í grasrótarhreyfingum og auk þess er hún dásamleg fjölskyldumanneskja. Hún er límið í fjölskyldunni og nýtur þess sem hún gerir. Við erum stundum nefndar Jónsdæturmafían enda erum við sem ítölsk fjölskylda þar sem mikið gengur á, mikið talað, mikið hlegið og pláss fyrir marga einstaklinga.“ Alltaf á hjartabílnum „Guðrún vinnur mikið en hefur samt pláss fyrir aðra í lífi sínu. Hún er einstaklega trygg og það er mjög gaman að vera í stemningu með henni. Líffræðingarnir, vinir hennar, fara í brjálæðislegustu gönguferðir á landinu og eru alltaf með svo góðan mat enda er Guð- rún dásam- legur kokkur. Ég er svolítið afbrýðisöm út í þennan hóp. Hún á líka margar góðar, ungar vinkonur í kvenna- hreyfingunni og er frábær mentor þeirra. Hún talar við þær sem jafningja og er svo ör- lát. Þetta gífurlega örlæti, hvort sem það eru veraldlegir eða andlegir hlutir, er svo magn- að við Guðrúnu. Hún gefur endalaust af sér. Þrátt fyrir allt fæ ég nægan tíma með henni. Það eina sem er erfitt er þegar við Sól- ey, dóttir hennar, tölum saman í síma. Hún er svolítið afbrýðisöm út í það og treður sér alltaf inn í símtalið. Ef Guðrún er hjá mér og ég er að tala við Sóleyju tekur Guðrún sím- ann af mér og ef hún er með Sóleyju tekur hún símann af Sóleyju. Eitt það besta sem hún hefur gert mér var þegar ég var veik með strákana litla heima. Hún kom, tók börnin og sagði: „Farðu í sturtu og vertu lengi.“ Hún er svo næm á að lesa í þarfir, er alltaf á hjartabílnum og veit hvenær hún þarf að koma.“ Morgunblaðið/Ómar Pólstjarnan í lífi litlu systur Margrét og Guðrún, dætur Kristínar Njarðvík, leiðsögumanns og frum- kvöðlakonu, og Jóns Bergþórssonar, búfræðings og stofnanda Nýju sendi- bílastöðvarinnar, hafa alltaf verið sam- rýmdar þrátt fyrir nokkurn aldursmun. Hún fæddist 21. apríl 1954. Hún tók stúdentspróf við Menntaskólann við Tjörnina 1974, BA-próf í líf- fræði við Háskóla Íslands 1978 og í félagsráðgjöf í Noregi 1994. Eftir að hafa kennt við HÍ varð hún starfskona Kvennalistans og síðar Kvennaathvarfsins í Reykjavík. Hún vann að stofnun Stígamóta, var framkvæmda- stjóri Kvennaathvarfahreyfingarinnar í Noregi eftir nám þar í landi og tók síðan aftur við fram- kvæmdastjórastarfi Kvennalistans, en hefur verið talskona Stígamóta frá 1999. Guðrún stofnaði samtök 225 kvennaathvarfa á Norðurlöndum 1994, hóf útgáfu fréttablaðs sam- takanna og var fyrsti ritstjóri þess. Hún er enn í skipulagsnefnd samtakanna, sem sér m.a. um árs- þing, ráðstefnur og fundi. Hún hefur verið leiðandi í stofnun kvennaathvarfa og stuðningi við þau í Eystra- saltslöndunum og víðar í Evrópu. Hún hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars var hún sæmd riddarakrossi, heið- ursmerki Hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir störf að vel- ferð og réttindum kvenna 2006. Eiginmaður hennar er Tómas Jónsson og eiga þau dæturnar Sóleyju, Þóru og Kristínu og þrjú barnabörn. GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR Hún fæddist 6. mars 1966 og varð stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1986. Hún tók BA-próf í spænsku við Háskóla Íslands 1991 og varð doktor í spænskum bókmenntum við Princeton-háskólann í New Jersey í Bandaríkj- unum 2001. Síðan lauk hún MBA-námi frá Há- skólanum í Reykjavík 2006. Margrét er forstöðumaður alþjóðaskrif- stofu Háskólans í Reykjavík og hefur verið dósent í spænsku við skólann frá 2005, en hóf þar störf 2003. 1995-2003 var hún lekt- or í spænsku við HÍ og kenndi spænsku við ýmsa skóla frá 1990. Hún hefur skrifað fjölda greina, rit- gerða og bóka um tungumálanám og fleira og haldið mörg erindi um sérsvið sitt. Meðal annars ritstýrði hún Spænsk- íslenskri orðabók sem kom út árið 2007. Hún hefur verið í ótal nefndum og stjórnum og er meðal annars vararæðismaður Spánar á Íslandi. Eiginmaður hennar er Már Jónsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, og eiga þau synina Ara, Bergþór og Snorra. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.