Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 30
30 Sjómannadagurinn
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Ljósmyndir: Árni Sæberg
Varðskip Landhelgisgæslunnar, Ægir og Týr, sinna fjölbreyttum verkefnum í landhelgi Íslands en hlutverk
Gæslunnar er að standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu í kringum landið og gæta ytri landamæra.
Með öflugri öryggis- og löggæslu, eftirliti, leit og björgun ber Landhelgisgæslunni að stuðla að öryggi sjófar-
enda, fólksins í landinu og verndun auðlinda með sem bestum og hagkvæmustum hætti. Kjörorðið „við erum til
taks“ vísar á breiðum grundvelli til starfsemi Landhelgisgæslunnar í nútíð og framtíð.
Árni Sæberg, ljósmyndari Morgunblaðsins, kynntist lífinu um borð í Ægi af eigin raun á dögunum. Hann var
um borð í tvo sólarhringa og myndaði skipverja að störfum. Tilefnið var að Kristján Þ. Jónsson skipherra var í
sinni seinustu ferð með skipinu en Kristján, sem er 61 árs, hefur verið á varðskipi frá því hann var fjórtán ára,
lengst af á Ægi sem var sjósettur árið 1968. Að sögn Kristjáns hefur aðbúnaður skipverja batnað til muna frá
þeim tíma. Sem dæmi sá áhöfnin um árabil ekki dagblöðin nema þegar þyrla Gæslunnar hafði tækifæri til að láta
þau falla niður til hennar. Í dag hlaða menn blöðunum einfaldlega niður af netinu á morgni hverjum. Raunar hef-
ur ákveðinn vélstjóri það verk með höndum og er fyrir vikið aldrei kallaður annað en „blaðberinn“.
Rúm vika er síðan Kristján kom í land og þegar Morgunblaðið heyrði í honum hljóðið fyrir helgi var hann önn-
um kafinn. „Það er nóg að gera hjá mér. Ég er í hörkuvinnu við að passa barn.“ orri@mbl.is
Um borð Varðskipsmenn nýfarnir um borð í Aðalbjörgu RE 5 í hefðbundið eftirlit. Tveir menn verða eftir um borð en hinir snúa aftur til varðskips á léttbátnum. Eftirlitið felst í því að fara yfir afla, veiðarf
Viðhald H
Rekald Ægir hífir upp rekald sem þyrla Landhelgisgæslunnar hafði komið
auga á skömmu áður vestur af Hvaleyjum á Mýrum. Rekaldið reyndist vera
búkki sem notaður er við slipptöku skipa og hefði hæglega getað gatað smá-
báta hefðu þeir rekist á hann. Reköld eru hífð úr hafi annað veifið.
Ægir gætir öryggis
sjófarenda í landhelginni
Eftirlit Haffærisskírteini kannað með hefðbundnum hætti við Þormóðssker.
Köfun Kafari Gæslunnar gerir sig kláran um borð í léttbátnum.
Auðkenning Varðskipsmenn á leið til að auðkenna þýska skútu, Pagan frá Bremen. Skútan var á skemmtisiglingu og var vel