Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 34
34 Vesturheimur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Innritun fyrir haustönn 2009 Öflugur skóli með mjög fjölbreytt nám! Skoðið heimasíðuna! www.fg.is Skólameistari. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þ etta er stórkostlegt, tær snilld,“ segir Atli Ás- mundsson, aðalræð- ismaður Íslands í Winni- peg í Kanada, um nýjan disk Baggalúts, en lögin eru samin við kvæði skáldanna K.N. (Kristjáns N. Júlíus) og Stephans G. Steph- anssonar í Vesturheimi í tengslum við þátttöku hljómsveitarinnar í listahá- tíðinni núna (now). ,,Með disknum hafa íslensku listamennirnir sam- einað tvo menningarheima í einn. Þannig viðhalda þeir menningar- arfleifðinni og það er einn helsti til- gangur hátíðarinnar, að reyna að leiða saman menningarstraumana í Vesturheimi og á Íslandi,“ bætir Atli við. Guðmundur Pálsson, söngvari Baggalúts, segir að eftir heimsókn hljómsveitarinnar í Íslendinga- byggðir í Manitoba og Norður- Dakóta í fyrra og kynni af góðu fólki af íslenskum ættum á svæðinu hafi diskurinn orðið til. ,,Það kom okkur mjög á óvart hvað kvæðin eftir K.N. og Stephan G. eru rík í huga fólks- ins,“ segir Guðmundur og bætir við að eftir heimsóknina hafi hljómsveitin skoðað betur ljóð eftir fyrrnefnd skáld og komist að þeirri niðurstöðu að það lægi vel við að syngja mörg þeirra. ,,Við heilluðumst af þessu og ákváðum að þakka fyrir okkur með þessum hætti.“ Ný kynslóð virkjuð Hugmyndin að hátíðinni varð til í eldhúsinu hjá Atla og Þrúði Helga- dóttur. Hjónin höfðu lengi velt fyrir sér nýjum möguleikum til að viðhalda og styrkja íslensku menningar- arfleifðina vestra og voru fljótlega sannfærð um að best væri að virkja nýja kynslóð, stuðla að virkri þátt- töku ungs listafólks með því að koma kanadískri og íslenskri list saman á framfæri. Listir urðu fyrir valinu vegna þess hve listalífið er líflegt í báðum menningarheimunum. Atli hafði fengið hóp þekkts fólks af ís- lenskum ættum vestra til þess að vinna að hugmyndum til að efla sam- starf Íslendinga og fólks af íslenskum ættum og þetta útspil hans hitti í mark. ,,Atli átti hugmyndina að listahátíðinni og síðan útfærðum við hana saman,“ segir Tim Samson, lög- fræðingur, en auk hans og Atla voru í hópnum Janis Johnson, öld- ungadeildarþingmaður, Neil Bardal, útfararstjóri, Eric Stefanson, við- skiptaráðgjafi og fyrrverandi ráð- herra, Davíð Gíslason, bóndi, og Bill Pearlmutter, endurskoðandi. Atli áréttar að hugmyndin með listahátíðinni hafi verið að virkja ungt fólk, sem ekki hafi verið áberandi í samstarfi fólks af íslenskum ættum og Íslendinga. Hvort sem litið hafi verið til Íslands eða Kanada hafi mátt sjá fjölda mjög hæfra listamanna í tónlist, myndlist, leiklist og svo fram- vegis. ,,Þegar við skoðuðum þetta nánar kom í ljós að margt hæfi- leikafólk í listum í Manitoba var af ís- lenskum ættum og hafði áhuga á rót- um sínum og sögu forfeðra sinna. Síðan kom upp sú hugmynd að reyna að fá þetta fólk, sem við kynntumst, til að vinna með íslenskum listamönn- um og halda hér uppákomur. Það sem mestu skiptir er að nú er fjöl- margt fólk á svæðinu, bæði af íslensk- um ættum og aðrir, orðið mjög áhugasamt um Ísland og sérstaklega um íslenskar listir. Íslensk tónlist er æ meir spiluð hjá útvarpsstöðvunum í Winnipeg og heilmikið er fjallað um Ísland og íslenska list og núna (now) í blöðum, sjónvarpi og útvarpi.“ Núna (now) og Feneyjatvíæringurinn ,,Strax í byrjun reyndi stjórnin að gera listráðið ábyrgt fyrir eins miklu og hægt var,“ segir Tim. Hann segir það hafa verið lykilatriði að stofna listráðið og ráða Rob Rousseau sem framkvæmdastjóra. Eftir að listráðið hafi verið stofnað hafi stjórnin ákveð- ið að senda tvo listráðsmenn til Ís- lands til þess að fá listamenn á hátíð- ina enda hafi þessir listamenn næmt auga fyrir því hvað eigi við og hvað ekki. Tristin Tergesen og Caelum Vatnsdal fóru í fyrstu ferðina snemma árs 2007. ,,Atli lagði okkur lífsreglurnar og auk þess þekktum við nokkra listamenn sem komu okk- ur áfram,“ segir Tristin. ,,Við byggð- um upp góð sambönd og fengum meðal annars hjónin og myndlist- armennina Ragnar Kjartansson og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur til að sýna á fyrstu hátíðinni.“ Ragnar segir að það hafi verið frá- bært að taka þátt í núna (now) og blandast þannig saman við senuna í Winnipeg. Hátíðin sé líka svo heim- ilisleg og vingjarnleg. ,,Þetta er eitt- hvað það skemmtilegasta sem ég hef tekið þátt í,“ segir hann og bætir við að hátíðin hafi gríðarlega mikla þýð- ingu við að mynda tengsl milli nýja og gamla Íslands. ,,Atli hefur haft vit á því að fá framsækna listamenn í Winnipeg til liðs við sig og þess vegna er þetta ekki búrókratahátíð enda hefur hún haft heilmikil áhrif og kom- Fjarlægir heimar leiddir saman Hin árlega listahátíð núna (now) hefur fest rætur í annars fjöl- breyttu listalífi Winni- peg í Kanada og tugir íslenskra listamanna hafa tekið þátt í henni frá því henni var hleypt af stokkunum vorið 2007. Listin Leona og Stephanie Johnson fylgjast með atriði á Gimli. Ánægð Þrúður Helgadóttir og Atli Ásmundsson, aðalræðismaður. asdf Áhugi Fjölmenni fylgdist með hljóðinnsetningu Haraldar Jónssonar. Haraldur Jónsson var með hljóð- innsetningu á Gimli og var orðlaus yfir fjölda gesta og sýndum áhuga. „Það er mjög spennandi og áhuga- vert að sýna í Manitoba,“ segir hann, en Haraldur tók þátt í sam- sýningu í Winnipeg fyrir um þremur árum. Hann segir að engar tvær sýningar séu eins og hver sýning sé í nýju samhengi. „Mér finnst mjög gaman að sýna í opnu rými eins og á Gimli og segja má að þar sé draumaaðstaða.“ Haraldur minnir á að núna (now) sé til þess að brúa bilið á milli menningarstrauma vestan hafs og austan. Sýningu á Gimli fylgi marg- brotnar tilfinningar og þeim megi líkja við tilfinningar sem fólk af ís- lenskum ættum á svæðinu hafi til Íslands. Þannig nái hátíðin mark- miði sínu. „Mér finnst að þau tengsl sem ég upplifi í gegnum sýn- inguna séu eins og sterk fjöl- skyldutengsl.“ Hann leggur áherslu á að listamennirnir skapi hátíðina hverju sinni og það sé ánægjulegt að vera í hópi þessara listamanna sem hafi vakið mikla athygli vegna listarinnar. „Hátíðin hefur skartað frábærum listamönnum og hún er að mörgu leyti sambærileg við Listahátíð Reykjavíkur, sem ég sýndi á í fyrra.“ John K. Samson og Erika McPherson heimsóttu íslenskar vinnustofur í vetur í þeim tilgangi að fá listamenn á hátíðina og tóku meðal annars hús á Haraldi. „Það myndaðist tenging og ég er rosa- lega glaður yfir því að fá að sýna í svona samhengi sem hefur mikla virkni. Listheimurinn er einangr- aður heimur eins og heimur raf- virkja eða lækna eða laxveiðimanna eða golfara og að fá að sýna í miðbæ Gimli, lífæðinni, gerir mér kleift að ná nánast til allra bæj- arbúa. Það er draumur allra lista- manna að fá svona hámarksáhorf.“ Draumur listamanna Samskipti Haraldur Jónsson ræðir við Brent Johnson á Gimli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.