Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 35
ið á lifandi samskiptum milli lista- manna í Winnipeg og Reykjavík. Það hefur verið frábært að kynnast þess- ari góðu listasenu í Winnipeg. Það hafa myndast vináttu- og listræn tengsl og svo komst ég náttúrlega í kynni við Banff Center.“ Til nánari skýringar var Ragnar í hópi sex íslenskra nútímalistamanna sem voru með sýningu hjá Sundogs í Truck Gallery í Calgary 2008, en um samvinnuverkefni Truck og núna (now) var að ræða. Í þeirri ferð heim- sóttu listamennirnir Banff Art Cent- er í nágrenninu. Þar kynntist Ragnar starfsemi listamiðstöðvarinnar og svo fór að hann var fyrsti styrkþegi sjóðs- ins The Benediktson Fellowship for Icelandic Artists, sem er bundinn við BAC og var stofnaður af Adriana og Stephan Benediktson, dóttursyni Stephans G. Stephanssonar. Í ægi- fegurð og skjóli Klettafjallanna að- stoðaði BAC hann við að gera mynd- bandsinnsetningu, sem er hluti framlags hans á Feneyjatvíær- ingnum, og síðar verður afrakstur Ragnars á Feneyjatvíæringnum meðal annars sýndur hjá BAC. ,,Tannhjól í stóru verki“ Tristin segir að Atli og Janis John- son hafi kynnt sér, John Samson og Arne McPherson hugmyndina yfir rjúkandi kaffi og hjólin hafi þegar farið að snúast. ,,Atli þekkti okkur og plantaði fræjunum sem síðan hafa blómstrað og aldrei meir en nú. Við lögðum strax til að Erika McPherson, Caelum Vatnsdal og Freya Olafson yrðu með okkur í listráðinu og John lagði til að Robbie sæi um að semja um sýningarstaði. Í listráðinu var sérfræðingur á hverju sviði og frá byrjun hefur John til dæmis lagt á ráðin um tónlistina, Freya hefur séð um dansinn, Arne um leiklistina, Ca- elum um kvikmyndirnar, ég um bók- menntirnar og Erika um myndlistina. Við höfum öll farið til Íslands til þess að fá listamenn á hátíðina og höfum þannig líka tengst mörgum sem við hefðum annars ekki haft tækifæri til þess að kynnast. Ég er til dæmis í góðu sambandi við listamenn sem komu á hátíðina fyrsta árið og þeir benda mér gjarnan á áhugaverða listamenn. Þannig hleður þetta allt saman utan á sig og þessi tenging er sérlega áhugaverð og gefandi. Það er ekki leiðinlegt til þess að vita að við vorum fyrst til þess að fá Megas og Lay Low til þess að syngja í Kanada. Ég er mjög hreykin af því að vera hluti af þessu ævintýri.“ ,,Það var virkilega gaman að spila fyrir þetta fólk,“ segir meistari Meg- as, sem kom fram með Senuþjóf- unum, og áréttar mjög góðar mót- tökur. Hann segir að þó gestir á tónleikunum í Winnipeg hafi ekki tal- að mikla íslensku hafi sér og hljóm- sveitinni tekist að trekkja upp mikla stemmningu. Hins vegar hafi ís- lenskukunnátta gesta á Gimli og í Ri- verton verið allt önnur og meiri. ,,Sumir töluðu mjög fallegt mál, rifjar hann upp. ,,Það er lærdómsríkt að fara þangað og heyra málið talað rétt.“ Baggalútur, Senuþjófarnir og Megas slógu í gegn en Megas er lítil- látur þegar kemur að hans hlut í núna (now). ,,Við vorum lítið tannhjól í stóru verki,“ segir hann. Megas bætir við að augljóslega sé mikið menning- arstarf unnið vestra og núna (now) standi fyrir stóra hluti. ,,Það lögðu sig allir vel fram og þessir frændur okk- ar fyrir vestan eiga allt gott skilið.“ Gordon Reykdal einstakur Listráðið hefur unnið vel saman og Tristin segir að það hafi ekki síður verið gefandi að vinna með öllu þessu frábæra fólki. ,,Fyrstu tvö árin feng- um við mjög góðan fjárhagsstuðning frá íslenskum fyrirtækjum en nú koma styrkir mest frá kanadískum fyrirtækjum í eigu fólks af íslenskum ættum. Í þessu sambandi má nefna að Gordon Reykdal, ræðismaður Ís- lands í Edmonton og eigandi öflugs fjármálafyrirtækis í Kanada, var langmesti styrktarmaður hátíð- arinnar í ár, en hann hefur auk þess lagt mjög mikið af mörkum til styrkt- ar blaðinu Lögbergi-Heimskringlu, Þjóðræknisfélaginu í Norður- Ameríku og öðrum félögum sem tengjast Íslandi. Samanlagt nema styrkir hans til þessara mála hundr- uðum þúsunda dollara. Icelandair hefur einnig verið mikilvægur bak- hjarl hátíðarinnar.“ Tristin segir að nánast allt hafi gengið upp. Einna ánægjulegast hafi verið, þegar áhugafólk um listir, fólk utan íslenska samfélagsins, hafi kom- ið til sín og þakkað fyrir að hafa feng- ið tækifæri til þess að kynnast ákveðnum listamönnum og verkum þeirra. Tim segir að margt hafi stuðlað að góðu gengi. Í fyrsta lagi nefnir hann fjölbreytta dagskrá og í öðru lagi sé hátíðin skipulögð af fólki um og undir 40 ára aldri með sama aldursflokk fyrst og fremst í huga þó auðvitað sé lagt upp úr því að allir finni eitthvað við sitt hæfi. ,,Okkur tókst að halda fyrri kynslóðum virkum í samfélag- inu og með núna (now) náum við til nýrrar kynslóðar.“ Tim bætir við að listamennirnir nái ekki síður til eldri kynslóða og nefnir í því sambandi að fulltrúar á þjóð- ræknisþinginu á Gimli, sem hafi flest- ir verið í eldri kantinum, hafi kunnað sérlega vel að meta Baggalút, Senu- þjófana og Megas. ,,Þeir slógu í gegn og þingfulltrúarnir skemmtu sér eins vel og yngri gestir gerðu á tónleik- unum í Winnipeg og aðrir aldurs- hópar í Riverton. Fyrirlestrarnir á Gimli eru annað dæmi. Þeir voru fræðandi, höfðuðu til allra og tengdu þetta allt saman saman. Það er ekki hægt að halda fólki áhugasömu um eitthvað nema það höfði til þess og það er einmitt það sem núna (now) gerir.“ Tim rifjar upp að íslenskir lista- menn hafi af og til heimsótt Manitoba en aldrei fyrr hafi þeir unnið með kanadískum listamönnum eins og í núna (now). ,,María Markan var ein sú fyrsta til að syngja hérna og marg- ir aðrir frábærir íslenskir listamenn hafa heimsótt okkur en skipulagið hefur aldrei verið í líkingu við það sem við sjáum á þessari hátíð. ,,Það komust færri að en vildu og það segir sína sögu.“ Opnar dyr ,,Nær allt í sambandi við hátíðina hefur komið mér á óvart,“ segir Cael- um Vatnsdal, ritstjóri LH. Hann seg- ir að listráðið hafi rennt blint í sjóinn og ekki gert sér grein fyrir árangr- inum. Hugmyndin hafi alltaf verið að vekja fyrst athygli á hátíðinni innan vesturíslenska samfélagsins og vinna áhugann þaðan út til hins almenna borgara. ,,Það hefur tekist og við get- um ekki annað en verið ánægð.“ Caelum segir að áhuginn á Íslandi hafi líka komið sér á óvart. Hann hafi farið tvisvar til Íslands á nýliðnum ár- um og fundið fyrir ótrúlega miklum stuðningi innan íslenska listheimsins. ,,Það er mjög uppbyggjandi að finna fyrir þessum stuðningi og áhuga,“ segir hann. Lokaatriði hátíðarinnar að þessu sinni var sýning leikritsins Brims eft- ir Jón Atla Jónasson. Arne McPher- son leikstýrði og var ánægður með útkomuna. ,,Þetta gekk mjög vel,“ segir hann. Allir eru sammála um að núna (now) hafi aldrei gengið betur en í ár. ,,Við fengum mjög góða aðsókn á alla viðburði og sérlega jákvæð við- brögð,“ segir Arne. ,,Við höfum sent skýr skilaboð til samfélagsins og nú er fólk farið að hlakka til viðburð- anna. Fyrsta árið vissi enginn fyrir hvað við stóðum en síðan hefur þetta spurst út og núna (now) er orðin þekkt hátíð.“ Áhorfendur á Brimi klöppuðu há- tíðinni lof í lófa og sérstaklega var Rob Rousseau þakkað fyrir skipu- lagninguna í heild. ,,Það er ein- staklega gaman að skipuleggja núna (now) og vinna með eins skapandi fólki og raun ber vitni,“ segir hann. Rob bendir á að margar hátíðir í Winnipeg eigi sér langa sögu og mikla hefð, en núna (now) hafi farið mjög vel af stað og vegna fjölbreyti- leika sé ástæða til að ætla að hátíðin eigi bjarta framtíð. ,,Með hátíðinni í ár styrktum við ræturnar í samfélag- inu og í því sambandi hafði mikið að segja að dreifa viðburðunum á fimm helgar með áherslu á sérstaka list- grein um hverja helgi. Hátíðin gekk vel fyrstu tvö árin og núna fór hún á flug. Góð aðsókn var á alla viðburði, listamennirnir fengu fín viðbrögð og vonandi getum við gert sambærilega hluti á Íslandi í náinni framtíð.“ 35 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Peter Bjornson, mennta- málaráðherra Manitoba, segir að fylkið sé eins öflugt og það er vegna fjölmenn- ingarinnar. Þjóð- arbrotin hafi komið með menningu sína með sér og lagt rækt við hana. Hvergi í Kanada séu fleiri lista- menn miðað við fólksfjölda og Manitobafylki leggi mikið upp úr menningar- og listalífi. „Það er mikill akkur í hátíð eins og núna (now), því hún er ekki aðeins til vitnis um íslenskan menningararf heldur eflir öflugt listalíf í fylk- inu.“ Íslensk tónlist Gegnt Lakeview-hótelinu á Gimli eru nokkrir veitingastaðir og þegar gengið er framhjá Kris’s Fish má heyra tónlist með Megasi og Baggalúti, listamönnum sem skemmtu í Winnipeg, Riverton og á Gimli síðustu helgina í apríl, þegar þjóðræknisþingið fór fram á Gimli. „Ég fór á tónleikana hjá þeim og skemmti mér kon- unglega,“ segir Nick Batger sem rekur veitingastaðinn. Hann bætir við að tónlist Megasar og Bagga- lúts sé honum að skapi og hann vilji leyfa gestum og gangandi að njóta tónlistarinnar með sér. Nick segist hafa hlustað á ís- lenska tónlist lítillega en þetta hafi verið fyrstu tónleikarnir með íslenskum tónlistarmönnum sem hann hafi farið á. „Tónleikarnir færðu mig nær uppruna mínum og höfðu mikil áhrif á mig.“ Gimli hentar vel Tammy Axelsson, bæjarstjóri á Gimli, segir frábært að hafa feng- ið hluta hátíðarinnar til Gimli og aðsóknin hafi sýnt að bæjarbúar og aðrir hafi kunnað að meta sýn- ingarstaðinn og listamennina. „Það hentar mjög vel fyrir alla að hafa hluta hátíðarinnar á Gimli,“ segir hún. „Menning og listir eiga sér mikla hefð á Gimli og hér hafa alist upp margir listamenn á ýms- um sviðum.“ Gimli er hjarta Nýja Íslands, eins og stendur á skilti við þjóð- veg númer 8, og margir íslenskir listamenn hafa komið fram á Gimli undanfarin ár. Tammy segir að séu listamenn óþekktir sé allt- af erfitt að fá áhorfendur og það eigi við um Gimli eins og aðra staði. Hins vegar sé alltaf mikill áhugi á íslenskum listamönnum, þegar þeir komi til Gimli. „Ís- lenskir tónlistarmenn eins og til dæmis Björk, Sigur Rós og Magni, sem hafa skapað sér nafn erlend- is, hafa rutt brautina fyrir aðra og því er alltaf góð aðsókn á Gimli þegar íslenskir tónlistarmenn eru á ferðinni,“ segir hún. Tammy bætir við að óvenjuleg list eigi líka upp á pallborðið á Gimli. „Fólk er spennt fyrir hinu óþekkta og sýning Haraldar Jónssonar er gott dæmi um það.“ Tammy segist þegar hafa greint skipuleggjendum hátíðarinnar frá því að hún voni að Gimli verði áfram vettvangur hátíðarinnar að einhverju leyti. „Við höfum góða aðstöðu fyrir hina ýmsu list- viðburði, staðarblaðið Interlake Spectator sinnir þeim vel og við viljum taka þátt í þessu verkefni.“ Eflir listalífið í Manitoba Peter Bjornson menntamála- ráðherra Manitoba. Tammy Axelsson, bæjarstjóri á Gimli. Nick Batger við veitingahús sitt á Gimli. Núna (now) (www.nunanow.com) er listahátíð ungs fólks af íslenskum ættum í Vesturheimi og á Íslandi. Hún fór fram í apríl og maí og var þetta í þriðja skipti sem hátíðin er haldin. Megináhersla er á Winnipeg og þar hafa flestir viðburðir verið, en einnig í Calgary, To- ronto, Gimli og Riverton. Tugir íslenskra og kanadískra listamanna hafa tekið þátt í hátíðinni og nokkrir kan- adískir listamenn hafa einnig farið til Íslands á vegum núna (now). ,,Árangurinn er ótrúlegur og það er frá- bært að hafa fengið tækifæri að vera með í uppbygg- ingunni frá byrjun,“ segir Freya Olafson, dansari og stjórnarmaður í listráði sýningarinnar. Listahátíð ungs fólks Freya Olafson, balletdansari í Winnipeg. Guðmundur Pálsson, söngvari Baggalúts, segir að þátttakan skilji eftir frábærar minningar. Gífurleg stemning hafi verið á öllum stöðum. And- rúmsloftið á tónleikunum í Winnipeg hafi verið eins og á hverjum öðrum tónleikum í stórborg en á litlu stöðunum úti á landi hafi allt verið heim- ilislegra og líkara samkomum. „Tónlistin féll ekki síður í kramið hjá eldra fólkinu og auðvitað fundum við meiri tengingu við Ísland á þjóðrækn- isþinginu á Gimli og í Riverton en á tónleikunum í Winnipeg enda hikaði fólk ekki við að koma til okkar og ræða málin á íslensku. Það var mjög sérstök upplifun.“ Guðmundur bætir við að það hafi líka verið einstök upplifun að spila í Icelandic State Park skammt frá Mountain í Norður-Dakóta, en diskurinn nefnist einmitt Sólskinið í Dakota og verður væntanlega gefinn út á Ís- landi innan skamms. „Sérstök upplifun“ TIL LEIGU TVÆR ÍBÚÐIR Í AUSTURSTRÆTI 12 Í REYKJAVÍK. Annars vegar er um að ræða 2ja herbergja íbúð á 4. hæð hússins, alls um 65 fm. Nýlegar innréttingar og parket. Lítur mjög vel út og snýr að Austurstrætinu. Hins vegar 4ra herbergja íbúð á 5. hæð hússins, alls 110 fm. Svalir Austurvallarmegin. Nýlegar innréttingar, parket og flísar á öllu. Lítur vel út. Báðar íbúðirnar eru lausar til afhendingar. Íbúðir til leigu í 101 Vinsamlegast sendið tölvupóst á irj@landicproperty.is til þess að nálgast umsóknir og frekari upplýsingar. Kringlunni 4–12 103 Reykjavík www.landic.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.