Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 36
36 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 Kauptækifæri á Búlgaríu Þú borgar í Íslenskum krónum BORGARTÚN 29 Sími 510 3800 Fax 510 3801 www.husavik.net REYNIR BJÖRNSSON ELÍAS HARALDSSON L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI Um er að ræða fallega 84 fm 3ja herb. íbúð á 2 hæð í glæsilegu 7 hæða lyftuhúsi (byggt 2007) á Sunny beach ströndini við Svartahaf. Verð 19,8 millj. • Fullbúin íbúð með öllu innbúi • Þvottavél í íbúð • Loftkæling og kapalsjónvarp • Garður með sundlaug + barnalaug, sólbaðsaðstöðu og veitingastöðum • Móttaka (lobby) og húsvörður Upplýsingar veitir Elías Haraldsson löggiltur fasteignasali í síma 898 2007 RE/MAX Torg - Garðatorgi 5 - 210 Garðabær - Sími 520 9595 - www.remax.is TIL LEIGU Í NORÐURTURNI KRINGLUNNAR með stórkostlegu útsýni Stórglæsilegt skrifstofurými 130 fm. Fjórar til fimm vinnustöðvar auk móttöku- ritara. Húsnæðið sem er mjög glæsilegt að öllu leyti, leigist með vönduðum húsgögnum Í EITT TIL TVÖ ÁR eða lengur eftir nánara samkomulagi. Húsnæðið getur losnað mjög fljótlega. Tilvalið fyrir t.d. lögmenn, ráðgjafa eða aðra sem gera miklar kröfur. Upplýsingar gefur Bjarni Pétursson hjá Remax Torg í síma 772 9040 25. J esús kenndi í brjósti um mennina (Matt. 9,36), vorkenndi þeim, svo hraktir og vegavilltir og þjáðir sem þeir eru. Hann þráði ekkert heit- ar en að fá að hjálpa, styðja, græða, bjarga. Það var og er kvölin hans, að mennirnir sjá ekki þörf sína og loka á hann. Og Jesús veit, hvernig Guð hugsar. Hver sem sér mig sér föðurinn, segir hann (Jóh. 14,9). Orðin mín eru ekki mín, heldur hans, höndin mín er ekki mín, heldur hans. Ég er kominn til að sýna hann og boða ríki hans. Og ríki hans er náð. Þar sem Guð ríkir og ræður þar er allt náð, eilíf náð. Í þessu ljósi getum við séð, að það er náð að þessi heimur er til. Það er náð, að þú færð að vera til. Það er náð, að þessar dularfullu dyr að baki þér opnuðust og þú fékkst að koma út um þær hingað í heim. Það er náð, að hinar dyrnar framundan þér, ekki síður dularfullar, opnast, þegar stundin er komin, og þú færð að fara út um þær þangað, sem Guð kallar þig þá. Náðarríki hans er þar fyrir handan. Þar verður það opinbert, sem hér er hulið: Að hann er „yfir og allt um kring með eilífri blessun sinni“, yfir fæðingu þinni og hverju fótmáli ævinnar, yfir dauða þínum og því sem þá tekur við. Það er náð að fá að vita þetta og mega treysta því. Taktu þetta til greina, taktu það til þín, sem Guð segir við þig í náð sinni. Ljúk þér upp, þú hefur lykilinn: Biðjið og yður mun gefast, sérhver öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, það er opnað fyrir þeim, sem knýr á, segir Jesús (Matt, 7), enginn fyrirvari um það, enginn vafi. Getur hann sagt þetta? Getur það verið satt? Getur það staðist í ljósi áþreifanlegra, jarðneskra staðreynda? Hvað heyrir maður og sér í daglegum fréttum? Hvað getur maður orðið að horfa upp á af mannlegum raunum og þrautum, hörku, blindu og grimmd? Og hverju getur maður ekki þurft að mæta af vonbrigðum, óleysanlegum vandamálum, áföllum, þjáningum, sorg? Hvað skyldi verða úr þessum fagnaðarboðskap, þegar maður mætir algeru miskunnarleysi, þegar grimmdin urrar upp á mann úr öllum áttum, þegar allir snúa baki við manni, öll sund lokast, ekkert virðist vera til nema kvöl og myrkur? Það var nú einmitt þetta, sem Jesús lifði sjálfur. Og sjálfur Guð í honum. Sá Guð, sem Jesús opinberar, er ljós og myrkur er ekki í honum (1. Jóh. 1,5). En ljósið skín í myrkrinu (Jóh. 1,5). Guð sjálfur er í myrkrinu, neyðinni, kvölinni, örvæntingunni. Guð lifir alla skelfingu, af því að hann þyrstir að hjálpa. Því vill hann segja við hvern, sem þjáist: Ég er hjá þér, ég stend með þér, ég líð með þér og í þér, þín synd og þraut er mín, við líðum saman, við sigrum sam- an. Ég er að endurfæða sköpunarverkið mitt með þraut. Með krossins kvöl og þraut, sem fæðir af sér upprisuna, sigur lífsins, sigur kærleikans. Sjá, ég gjöri alla hluti nýja. Þannig er náðin mín, segir Guð. Og það er þráin mín, að þú, litla barn, viljir verða barn náðar minnar að fullu, vitandi vits, og að eilífu. Leit og svör Sigurbjörn Einarsson » Og ríki hans er náð. Þar semGuð ríkir og ræður þar er allt náð, eilíf náð. Pistlar sr. Sigurbjörns Einarssonar, sem Morgunblaðið birti á sunnudögum á síðasta ári, vöktu mikla ánægju meðal lesenda. Um það samdist, milli sr. Sigurbjörns og Morgunblaðsins, að hann héldi áfram þessum skrifum og hafði hann gengið frá nýjum skammti áður en hann lést. ÞAÐ er skoðun mín að grynnka mætti verulega á pen- ingavandræðum þjóð- arinnar með því að nýta geymdar skatt- tekjur ríkissjóðs í sér- eignarsparnaði. Ég hef ekki heyrt þá hugmynd að taka skattpeningana út úr séreignarsparn- aði. Hugmynd mín er sú að rík- isstjórnin breyti lögum þannig að hún geti tekið út skatt af séreign- arsparnaði sem liggur inni hjá líf- eyrissjóðum og staðgreiðsla skatta af séreignarsparnaði verði tekin upp. T.d. er hægt að ákveða að staðan á séreignarreikningum verði tekin um áramót og skatturinn greiddur þá strax. Þá fær ríkissjóður væntanlega nokkra tugi milljarða. Síðan er stað- greiðsla tekin af séreignarsparnaði svo skatttekjur hvers mánaðar aukast þó nokkuð. Að lokum greið- um við fjármagnstekjuskatt af vöxt- um séreignarsparnaðar eins og er um venjulegar innistæður. Þarna er hægt að ná í verulegar tekjur fyrir ríkissjóð án þess að það komi niður á nokkrum manni. Eflaust er hægt að útfæra þetta á margan hátt en þarna er um töluverðar fjárhæðir að ræða. Mér er spurn, af hverju hefur engin um- ræða farið fram um þetta? Það eina sem ég hef heyrt minnst á er að fólk taki út séreignarsparn- aðinn. Þess gerist ekki þörf ef þessi leið er farin. Það er betra að nýta þetta fé strax og koma okkur áleiðis út úr vandanum. Fjármálaráðherra: Verður þetta ekki komið í lög í næstu viku? Fjármálaráðherra: Hér er lausnin Eftir Hrein Hreinsson »Eru geymdar skatt- tekjur ríkissjóðs lausnin? Af hverju er engin umræða um þær? Hreinn Halldórsson Höfundur er gagnasafnsstjóri hjá Skýrr. SUNNUDAGINN 24. maí síðastliðinn skrifaði ég grein um ASÍ, Samfylkinguna og ESB. Þar kom ég inn á hið svo kallaða Vax- holms-mál í Svíþjóð og afleiðingar þess fyrir launþegahreyfinguna á ESB-svæðinu. Aðdrag- andi þessa máls var að bæjarfélagið Vaxholm í Svíþjóð ákvað árið 2004 að fara í endurbyggingu á skóla- húsnæði í bænum. Gerð voru tilboðs- gögn þar sem meðal annars var kveðið á um að þau fyrirtæki sem áhuga hefðu á að gera tilboð í verkið skyldu skrifa undir samning við Byggnads um launakjör og aðbúnað (koll- ektivavtal) en það var hinn almenna regla á sænskum vinnumarkaði. Lettneska fyrirtækið Laval un Part- neris átti lægsta boðið í verkið og fékk það. Laval hafði þegar þetta var þegar starfað á sænskum byggingamarkaði um nokkurt skeið en þá í gegnum dótturfélag sitt sem hét Baltic AB og á árunum 2002/03 hafði það veltu upp á um 20 milljónir sænskra króna. Bal- tic AB hóf síðan störf við endurbygg- ingu skólans sem undirverktaki fyrir hönd Laval un Partneri en í júní árið 2004 hefur Byggettan samband við Baltic AB og fer fram á að þeir skrifi undir launasamninga við þá eða svo kallaðan tímabundinn kjara- eða vinnuréttarsamning (hängaftal) en það er vaninn í svona tilfellum. Byg- gettan komst fljótt að því að Baltic AB hafði ekki áhuga á slíkum samningi þó að þeir hafi áður undirgengist það við tilboðið að slíkt skyldi gert. Í september sama ár slitnar svo upp úr samningaviðæðum við Baltic AB og í nóvember sama ár er fyrirtækið sett í „frost“ (blockad). Útilokunin stóð í einar 7 vikur og um jólin 2004 hættir Baltic AB störf- um við skólabygginguna og fer til Lettlands. Þetta mál fór síðan fyrir sænska vinnudómstól- inn sem dæmdi Bygg- nads og LO í fullum rétti í þessum átökum, en þar sem dómurinn var ekki einhuga var ákveðið að sækja eft- ir áliti frá Evrópudómstólnum og settu fulltrúar LO sig ekki upp á móti því. Niðurstaða Evrópudómstólsins var sú að heimilt var og er að greiða laun samkvæmt lettneskum launa- samningum þó svo unnið væri í Sví- þjóð. Forsenda dómsins er sú að ESB lítur svo á að þjónusta fyrirtækja og vinnuafls skal geta farið óhindrað um ESB-svæðið án hafta og afskipta stéttarfélaga í viðkomandi landi og án þess að þurfa að gangast undir kjara- samninga viðkomandi lands. Þetta á við öll fyrirtæki og launþega í ESB- löndunum. Í svari sínu 25. maí 2009 við grein minni sem birtist í Mbl. 24 maí 2009 segir Gylfi Arnbjörnsson orðrétt: ASÍ gerði sérstakan kjarasamning við SA 2004 um málefni erlendra starfsmanna sem auðvelda okkur að koma í veg fyrir undirboð. Einnig höf- um við í samstarfi við SA og félags- málaráðherra staðið fyrir innleiðingu ýmissa reglna sem er ætlað að koma í veg fyrir að fyrirtæki geti misnotað aðstöðu sína til að ná samkeppn- isforskoti með því að grafa undan lög- um og kjarasamningum. Að okkar mati hefur skipulag íslensks vinnu- markaðar, þar sem saman fer mikil þátttaka í verkalýðsfélögum, samstarf við samtök atvinnurekanda um trausta kjarasamninga sem eru studdir nauð- synlegri löggjöf, reynst skila bestum árangri í að tryggja hagsmuni bæði launafólks og fyrirtækja. Aðild að ESB ógnar þessu fyrirkomulagi ekki á nokkurn hátt nema síður sé. Ég get ekki betur séð en að LO og Byggnads í Svíþjóð hafi talið sig vera í svipaðri stöðu á sænskum vinnumark- aði áður en til Vaxholms málsins kom. Sjá grein á heimasíðu LO. http:// www.lo.se/home/lo/home.nsf/uni View/4CA5C8558AA549D2C1256 F720060D909 Málalok Vaxhólms málsins hafa sett af stað mikið umrót á meðal sænsku verkalýðshreyfingarinnar sem finnst gróflega vegið að launþegum landsins og að það ógni velferð sænskra laun- þega. Nú í aðdraganda kosninganna til ESB-þingsins er þróun þessara mála mótmælt harðlega af sænska Sósíaldemókrataflokknum og LO/ Byggnads og þess krafist að afstöðu ESB til þessara mála verði breytt eins og má sjá á heimasíðum félaganna. Sjá: http://www.socialdemokra- terna.se/Webben-for alla/EU/ maritaulvskog/MediaKontakt/ Artiklar/EU-kommissionens- ordforande-bor-avga/ og http:// www.byggnads.se/Europaparla- mentsvalet/Byggnads-argument-for- att-du-ska-rosta/ Í dag 28. maí 2009 fór hópur fé- lagsmanna Byggnads og LO með Ma- ritu Ulvskog í broddi fylkingar út til Vaxholms til að greiða atkvæði til ESB-þingsins utankjörstaðar. Það var gert til að minna á Vaxhólms-málið og þá hættu sem þessir aðilar telja að steðji að sænskum launþegum og sænsku velferðarkerfi. Það er augljóst að Sósíaldemokrataflokknum og aðild- arfélögum LO finnst ástæða til að ótt- ast þessa framvindu mála. Það er mér óskiljanlegt að ASÍ skuli ekki óttast þessa þróun eða telja að hana þurfi að taka alvarlega. Hvað gerir okkur betur í stakk búna til að takast á við slík mál innan ESB en önnur aðildarlönd sam- bandsins? Hver verður staða launþega- hreyfingarinnar innan ESB? Eftir Rafn Gíslason » Það er mér óskilj- anlegt að ASÍ skuli ekki óttast þessa þróun eða telja að hana þurfi að taka alvarlega. Rafn Gíslason Höfundur er húsasmiður. , ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.