Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 37

Morgunblaðið - 07.06.2009, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 • Deildarstjóri-meðeigandi óskast að meðalstóru þjónustufyrirtæki á sviði tölvu- og tæknibúnaðar. Æskilegt að viðkomandi sé rafeindafræðingur eða hafi svipaða menntun og starfsreynslu. Fyrirtækið er ört vaxandi og er nú með 12 starfsmenn. Fyrirtækið er 100% í eigu starfsmanna. • Ein þekktasta og elsta ísbúð borgarinnar. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 8 mkr. • Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli). Ársvelta 260 mkr. • Þekkt sérverslun með heimilisvörur. Ársvelta 170 mkr. Góður leigusamningur. • Sérhæft hugbúnaðarfyrirtæki með langtímasamninga. Hentugt til sameiningar. • Rótgróin heildverslun með fyrirtækjavörur. Ársvelta 140 mkr. Hagstæðar skuldir. • Trésmiðja til sölu eða leigu. Sérhæfð framleiðsla og góð tæki. Lítið skuldsett og vel staðsett í 600 fermetra ódýru húsnæði. Ráðgjöf til fyrirtækja                                          !  "    #   $        ! %      &' Firma Consulting, Þingasel 10, 109 Reykjavík. Símar: 820-8800 og 896-6665. Fax 557-7766 info@firmaconsulting.is, www.firmaconsulting.is Í Morgunblaðinu 3. júní birtast tvær grein- ar varðandi Orf líf- tækni ehf. og umsókn fyrirtækisins um leyfi til að rækta erfða- breytt bygg sem inni- heldur lyfjaprótín. Þessi prótín eru notuð sem grunnefni í lyfja- iðnaði og snyrtivöru- iðnaði (sbr. greinar sem birst hafa á heima- síðu Samtaka iðnaðarins). Gríð- arlega sterk viðbrögð hafa komið frá almenningi að undanförnu gegn þessari umsókn og fjölmargar at- hugasemdir verið sendar, m.a. til Umhverfisstofnunar, í þá veru. Í umfjöllun um málið hafa hvorki Orf líftækni né ýmsir fræðimenn gætt nákvæmni til hins ýtrasta og því miður villir það fyrir umræðunni. Á fundinum sem haldinn var í Gunn- arsholti h. 26. maí sl. var bent á að Orf sækir um leyfi á Íslandi til fram- leiðslu og tilrauna á 600 fm til 10 ha en til ESB er sótt um 200 fm til 1 ha – hvað er framleiðsla, hvað er tilraun og vegna hvers þetta misræmi? Hér er fátt um svör. Örfá tilraunaleyfi veitt í Evrópu Í fyrsta lagi fullyrðir Björn L. Örvar frá Orf um „104 leyfi veitt fyr- ir svipaða ræktun í Evrópu“. Hið sanna í málinu er að eina tegund eb- plantna sem leyft er að rækta í Evr- ópu fyrir markað er maísyrkið Mon810 frá Monsanto, – allt hitt varðar tilraunir. Hjá ESB eru í gangi nákvæmlega 3 umsóknir um leyfi til tilraunaræktunar á eb- plöntum með lyfjaprótín, þar af um- sókn Orfs, ein umsókn sem varðar tóbaksplöntu með plöntugeni og ein með lyfjaprótín frá Ungverjalandi sem er óafgreidd. Það er allt og sumt! Engin leyfi hafa verið veitt til framleiðslu fyrir eb-plöntum með lyfjaprótín í Evrópu þar sem áhrifin þykja ekki nógu vel rannsökuð. Gagnrýni óvelkomin Í öðru lagi er gert mikið úr töfum sem hafi orðið á afgreiðslu leyfisins og ástæðan sögð sú að öll gögnin hefðu ekki borist í tíma til Umhverfisstofn- unar. Hvers vegna höfðu öll gögnin ekki borist í tíma? Vegna þess að Orf líftækni ehf. kærði í gegnum lögfræðinga sína setu Gunnars Á. Gunnarssonar (fulltrúa ráðherra í nefndinni en ekki fulltrúa hagsmunasamtakanna eins og Orf kýs að láta það líta út fyrir að vera – sbr. tilkynning frá starfsgreinahóp, “Líftæknifyr- irtæki“, hjá SI,www.si.is) í ráð- gjafanefndinni. Eftir að því máli lauk var sett pressa á UST til að af- greiða málið eins fljótt og hægt var og átti að fórna upplýsingaskyldu til almennings í ferlinu. Í þriðja lagi hefur verið ráðist á mannorð dr. Kristínar Völu Ragnarsdóttur, for- seta verkfræði- og náttúrusviðs Há- skóla Íslands, fyrir að benda á að áhættumat hefur ekki verið gert, sem hún gerði með gildum rökum. Ekki má gleyma að Orf líftækni hef- ur gert samning við Háskóla Íslands um samstarf á sviði rannsókna og tækniþróunar á lífvirkum prótínum (11.2.09 – sbr. www.orf.is). Því hljót- um við að spyrja hvort Háskóli Ís- lands sé þar með orðinn vanhæfur og hvort starfsmönnum hans sé þar með óheimilt að gagnrýna umsóknir Orfs… eða mæla með þeim? Von- andi hefur háskólarektor ekki verið beittur þrýstingi úr þeirri átt, enda hafa gagnrýnisraddir komið úr mjög mörgum áttum. Úreld löggjöf og samfélagsleg ábyrgð Umsókn Orf átti að afgreiða í hljóði og í skugga úreltar löggjafar. Evróputilskipun, sem afgreiða ber umsóknir eftir, er frá árinu 2001. Sú tilskipun var ekki samþykkt hjá EES fyrr en 2007 vegna þess að Norðmenn kusu að ganga lengra en hún kveður á um. Íslendingar hafa tekið hinn pólinn, sem sagt að horfa framhjá þessari tilskipun og styðjast í flýti við tilskipun frá 1990 rétt áður en „nýja“ tilskipunin átti að komast á dagskrá á Alþingi. Við erum ekki lengur á árinu 2007 eins og menn segja gjarnan í dag um slíka af- greiðslu mála, í dag er 2009 og þetta mál varðar okkur öll, umræðan verð- ur að fara fram og almenningur hef- ur fullan rétt að tjá sig og hafa sína skoðun á þessu. Þar ríkir sú al- menna skoðun að ekki skuli sleppa erfðabreyttum lífverum út í náttúr- una og er sú skoðun ekki frábrugðin því sem þekkist í Evrópu og víðar. Starfsemi Orfs getur aldrei orðið Ís- landi til sóma nema því aðeins að ræktun þess á erfðabreyttum plönt- um verði haldið tryggilega innan- dyra undir ströngu opinberu eftirliti þannig að engin efni úr þessari framleiðslu geti borist út í umhverfið fyrir slysni eða með frárennsli, sorpi eða öðru (Orf er reyndar ekki tryggt fyrir tjóni af þessu tagi). Það kann að vera eitthvað dýrara fyrir Orf – kostnaður er raunveruleg ástæða umsóknarinnar eins og skýrt kom fram á fundi í Gunnarsholti. Ísland á það hinsvegar ekki skilið að um- hverfi þess og öryggi sé stefnt í hættu með sleppingu erfðabreyttra lífvera. Erfðabreytt bygg með lyfja- prótín – villandi upplýsingar? Eftir Dominique Pledel Jónsson » Sleppingar af EB- plöntum með lyfja- prótín fyrir markað eru ekki leyfðar í Evrópu og áhættumat um áhrif þeirra hefur ekki farið fram á Íslandi. Dominique Pledel Jónsson Höfundur er formaður Slow Food Reykjavík. FRAMUNDAN er mikið ferðasumar á Íslandi, líklega eitt það mesta í langan tíma. Samkvæmt könnun Ferða- málastofu um ferða- áform Íslendinga má búast við að um 90% Íslendinga ætli að ferðast innanlands í sumar, sem er nokkuð hærra hlutfall en fyrri kannanir hafa sýnt, en auk þess bendir margt til þess að vænlega horfi í komum erlendra ferðamanna. Þegar sumarfrí er skipulagt má gera ráð fyrir að ferðalangar sæki í ýmiss konar afþreyingarferðir. Þá er vert að huga að leyfismálum í ferðaþjónustu og við hverja best er að eiga viðskipti. Þeir sem skipuleggja og/eða selja ýmiss konar ferðir innan lands sem utan verða að hafa til þess leyfi frá Ferðamálastofu. Þeir sem ekki hafa tilskilin leyfi stunda því ólöglega starfsemi. Til að vita hverjir hafa leyfi og hverjir ekki þá ber söluaðilum ferða að nota og birta auðkenni sem Ferðamálastofa gefur út þannig að fólk getur á auðveldan hátt gengið úr skugga um hvort tilskilin leyfi séu fyrir hendi eða ekki. Ferðaþjónustuað- ilunum ber að birta auðkennin á heimasíðum og í auglýsingum sín- um. Auðkenni Ferða- málastofu fá einungis þeir aðilar sem hafa leyfi til að skipuleggja og/eða selja ferðir. Það er því ákveðinn gæðastimpill fyrir við- komandi aðila og stað- festing á því að við- komandi sé með lögbundið leyfi. Leyfi eru því ákveðin með- mæli með starfsem- inni, veita aðhald og með því eru ákveðnir hagsmunir neytenda verndaðir. Gerður er greinarmunur á ferða- skipuleggjenda- og ferðaskrif- stofuleyfum. Hlutverk ferðaskipu- leggjenda er að setja saman, bjóða fram og selja í atvinnuskyni eft- irfarandi ferðatengda þjónustu fyr- ir almenning: Skipulagningu ferða hópa og ein- staklinga innan lands og erlendis, skipulagningu funda, sýninga og ráðstefna og hvers kyns þjónustu því tengda, innan lands sem utan, umboðs- og endursölu farmiða með t.d. bifreiðum, skipum og flug- vélum, dagsferðir sem fela í sér ýmiss konar afþreyingu og frí- stundaiðju s.s. hestaferðir, vél- sleðaferðir, fljótasiglingar, jeppa- ferðir, gönguferðir, hlaupaferðir, hvalaskoðunarferðir, veiði í ám og vötnum, veiði villtra dýra, báta- leiga, köfun, seglbrettaleiga, kletta- klifur, fallhlífarstökk, teygjustökk o.s.frv., ferðir og veitingar sem hluta af veittri þjónustu. Hlutverk ferðaskrifstofa er að selja alferðir í atvinnuskyni en alferð er fyrirfram ákveðin samsetning tveggja eða fleiri þátta sem seldir eru saman á einu verði, t.d. flug og gisting eða hestaferð með gistingu. Mikil aukning hefur verið í út- gáfu ferðaskipuleggjendaleyfa en það sem af er þessu ári hefur verið sótt um fleiri leyfi en gefin voru út allt árið í fyrra. Um 165 slík leyfi eru í gildi og fer þeim fjölgandi. Því miður má reikna með að ein- hverjir bjóði til sölu ferðir án þess að hafa tilskilin leyfi. Ferða- málastofu hafa borist fjölmargar ábendingar um slíkt. Þá er um ólöglega starfsemi að ræða. Tilvon- andi ferðalangar eru hvattir til að snúa viðskiptum sínum til aðila sem hafa tilskilin leyfi en ekki stuðla að því að ólögleg starfsemi viðgangist. Á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is, má finna lista yfir ferðaskrifstofur og -skipu- leggjendur sem hafa tilskilin leyfi. Er ferðalag framundan? Eftir Helenu Þ. Karlsdóttur » Tilvonandi ferða-langar eru hvattir til að snúa viðskiptum sín- um til aðila sem hafa til- skilin leyfi en ekki stuðla að því að ólögleg starfsemi viðgangist. Helena Þ. Karlsdóttir Höfundur er lögfræðingur Ferðamálastofu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.