Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 07.06.2009, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 mbl.is/moggaklubburinn GJAFABRÉF FRÁ þú ert heppinn vin ningshafi í Moggak lúbbnum í maí 200 9 og vannst vikuferð til Costa del Sol m eð Heimsferðum: Gegn framvísun þe ssa gjafabréfs fær ðu farmiðana afhenta á næstu s krifstofu Heimsferð a. Moggaklúbburinn óskar þér til hamin gju með vinninginn . Góða ferð! Dags. Fyrir hönd Moggakl úbbsins Vikuferð til Costa d el Sol Ásdís Pedersen fyrir tvo fullorðna o g tvö börn – meira fyrir áskrifendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Til hamingju með vinningin Vinningshafi Moggaklúbbsins í maí fær viku ferð fyrir fjóra til Costa del Sol Langar þig að stunda hluta af vinnu- staðanámi þínu á Norðurlöndum? Ferða- og dvalarstyrkur IÐAN fræðslusetur auglýsir eftir umsóknum til vinnu- staðanáms á Norðurlöndunum. Norræna ráðherranefndin styrkir nemendur í öllu iðn- og starfsnámi til að stunda hluta af vinnustaðanámi sínu á Norðurlöndunum. Úthlutað verður úr sjóðnum í júní 2009 og október 2009. Hámarks- dvöl er sex mánuðir og lágmarksdvöl er tveir mánuðir. Sækja þarf um fyrir 15. júní 2009 og seinni umsóknarfrestur er 15. september 2009. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs, http://idan.is/styrkir/ eða í síma 590-6400. ÞRIÐJA júní skrif- aði Áslaug Helgadótt- ir fróðlega grein í Morgunblaðið um erfðatækni í landbún- aði. Það er áhugavert að hún telur ræktun á erfðabreyttu byggi til lyfja- og snyrtivöru- framleiðsu vera land- búnað. Í þessari grein fer Áslaug mörgum orðum um að und- irrituð hafi andmælt því að líf- tæknifyrirtækinu ORF Líftækni verði veitt leyfi til þess að rækta erfðabreytt bygg utandyra í Gunnarsholti. Það er rétt að ég skrifaði slíkt bréf – hins vegar er grein Áslaugar um allt annað efni en mitt bréf. Bréfið skrifaði ég til þess að vekja athygli á því að ekki hefði verið gefinn nægur tími fyrir almenning til þess að koma með athugasemdir um fyrirhugaða ræktun. Umhverfisstofnun gaf eina viku en samkvæmt Evr- ópulögum þarf að gefa 30 daga (ég sagði sex vikur í bréfinu – sem er rangt). Síðan skrifaði ég að um- sóknin væri ekki að fullu gefin til umfjöllunar almenningi og því væri erfitt að meta hvaða grunn- rannsóknir liggja að baki umsókn- inni. Samkvæmt ESB-lögum á að gera umhverfisáhættumat áður en leyfi er gert til útiræktunar á gen- breyttum lífverum. Slíkt mat hef- ur ekki farið fram. Þetta mat met- ur míkró- og makrólvistkerfið fyrir ræktun og svo á meðan á ræktun stendur. Samkvæmt þeim gögnum sem lágu fyrir á vefsíðu UST hafa slíkar rannsóknir ekki verið unnar og eru ekki skipulagð- ar eftir að ræktun hefst. Síðan ræddi ég í bréfi mínu um möguleg áhrif á umhverfið en þau er ein- ungis unnt að meta ef grunnrann- sóknir á lífríkinu eru unnar. Þá spurði ég um öryggi tilrauna- reitsins svo að eng- inn, hvorki dýr né menn, gæti neytt þessa byggs sem kemur til með að hafa vaxtarþætti úr mönnum og er því ekki til manneldis. Í bréfi mínu spurði ég einnig hver myndi standa að grunnrann- sóknum á meðan á tilraunum stendur og hvaða trygginga- félag tryggir fram- kvæmdir ef eitthvað fer úr bönd- unum. Gögn vantar um að meta möguleika á að matvæli og fóður í nágrenni tilraunareitanna mengist. Þar sem grunnrann- sóknir eru ekki fyrir hendi er ekki hægt að svara þessum spurningum. Það er áhugavert að Ísland átti að samþykkja löggjöf ESB um ræktun erfðabreyttra lífvera fyrir 28. mars, 2008. Þessi lög- gjöf er Directive 18/2001 sem dróst að samþykkja í Evr- ópuþinginu vegna þess að Norð- menn vildu að þessi lög yrðu enn strangari. Nú er verið að fjalla um að aðlaga þessi lög á alþingi og þess vegna ætti ekki að gefa nein leyfi til útiræktunar uns löggjöfin hefur verið samþykkt. Loks vek ég athygli á því í bréfi mínu að ESB hefur aldrei leyft útiræktun erfðabreyttra lyfja- eða iðnaðarplantna til framleiðslu fyrir markað. Núna eru þrjár umsóknir um tilraunar- æktun slíkra plantna til umfjöll- unar hjá ESB og ORF-umsóknin er ein þeirra. Evrópusambandið leyfir aðeins ræktun einnar teg- undar erfðabreyttra plantna til framleiðslu fyrir markað. Þetta er fóður- og matjurtin Mon 810 maís en nú hafa Austurríki, Frakkland, Grikkland, Holland, Sviss, Ungverjaland og Þýska- land bannað ræktun hennar. Á meðan grunnrannsóknir um umhverfisáhættumat eru ekki unnar á að mínu mati ekki að gefa leyfi til utanhússræktunar gen- breyttra plantna á Íslandi. Hér á að beita varúðarreglunni til að vernda náttúruna eins og gert er ráð fyrir í lögum ESB og Samein- uðu þjóðanna. Ég stend því enn við hvert orð sem var í bréfi mínu til UST og umhverfisráðherra í sl. viku. Eins og sjá má hér að ofan er grein Áslaugar Helgadóttur í Morgunblaðinu 3. júní um allt annað efni en bréf mitt til UST og umhverfisráðherra og er grein hennar því ekki málefnaleg. Fjaðrafok varðandi leyfi til ræktunar á erfðabreyttu byggi Eftir Kristínu Völu Ragnarsdóttur »Mikilvægt er að umfjöllun um ræktun erfða- breyttra lífvera sé málefnaleg Kristín Vala Ragnarsdóttir Höfundur er doktor í jarðefnafræði og hefur 25 ára reynslu í umhverf- isrannsóknum. svipar helst til keðjubréfa eða pí- ramídasvindls. Auðlindir í almannaeigu Auðlindir þjóða geta aldrei ver- ið einkamál fárra, þær eru lífsvið- urværi þjóða, sá grunnur sem hvert samfélag hefur til að byggja á. Þróa sína atvinnuvegi og ná samfélagslegum árangri. Það að afhenda fáum auðlindir heillar þjóðar er vanviska og raunar ófyr- irgefanlegt. Þjóðin öll á að njóta auðlinda sinna og nýting þeirra á að vera með hagsmuni samfélags- ins að leiðarljósi. Ef við lítum á aðra mikilvæga auðlind, orkuauð- lindina, er það mikil gæfa að tvö stærstu orkufyrirtæki landsins, Landsvirkjun og Orkuveita Reykjavíkur, eru enn að fullu í al- mannaeigu. Orkufyrirtækin gegna mikilvægu hlutverki sem liggur í því að nýta mikilvægar auðlindir landsins, auk þess að veita mik- ilvæga grunnþjónustu. Nýting á sameiginlegum orkuauðlindum verður að vera sjálfbær og í sátt við umhverfið og ráðstöfun ork- unnar verður að fara saman við þjóðarhagsmuni. Að fyrirtækin verði áfram í opinberri eigu er grundvöllur þess að tryggja að svo verði. Ekki er nóg að orkufyr- irtækin hafi viðunandi hagn- aðarvon af orkusölunni heldur ber okkur skylda til að beina notk- uninni í þjóðhagslega hagkvæman farveg. Horfa verður til fjöl- breytni, mannaflsþarfar og um- hverfissjónarmiða þegar við horf- um til uppbyggingar á raforkufrekum iðnaði. Sú grunnþjónusta sem Orkuveit- an veitir, rafmagn, hitaveita, drykkjarvatn, gagnaveita og frá- veita er þess eðlis að miklir sam- félagslegir hagsmunir liggja í því að þessi starfsemi sé á hendi op- inberra aðila sem hafa fyrst og fremst samfélagslega hagsmuni í fyrirrúmi. Einkarekstur og sam- keppni hafa vissulega kosti fyrir uppgang í samfélaginu en einka- rekstur er ekki sjálfkrafa betri en opinber rekstur. Sérstaklega þegar kemur að þáttum þar sem nauð- synlegt er að hagsmunir heildar- innar séu ávallt ofar einkahags- munum, þetta á við um helstu innviði samfélagsins og sameig- inlegar auðlindir. Því verðum við að ná þeim auðlindum til baka sem stjórnir Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa í leyfisleysi gefið frá okkur og verja þær auð- lindir og þá grunnþjónustu sem enn er í almannaeigu. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylk- ingar og stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur. , ,magnar upp daginn Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.