Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 40

Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 40
40 Útskriftir MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI Íslands brautskráði 54 nemendur 29. maí sl. við athöfn sem fór fram í Reyk- holtskirkju. Þetta er fimmta vorið sem nemendur eru brautskráðir frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Árið 2009 er mikið tímamótaár fyrir skólann en nú eru 120 ár liðin frá því að fyrsti nemandinn innritaðist til náms á Hvanneyri sem markar upphaf skólastarfs á staðn- um. Þá eru nú liðin 70 ár frá því að garðyrkjumenntun hóf göngu sína og markar þannig árið 1939 upphaf starfsins á Reykjum í Ölfusi þar sem höfuðstöðvar garðyrkjunáms eru. Í vor eru 60 ár liðin frá því að fyrstu búfræðikandídatarnir útskrifuðust en þann lær- dómstitil báru háskólamenntaðir Hvanneyringar allt til ársins 1999. Útskrift Landbúnaðarháskóla Íslands FJÖLBRAUTASKÓLANUM í Breiðholti var slitið í íþróttahúsi FB föstudaginn 22. maí sl. í sjötugasta og fyrsta sinn en 174 lokaprófs- skírteini afhent. Bestum árangri á stúdents- prófi náði Ragna Ólöf Guðmundsdóttir, 9,09. Athygli vekur að nú voru 35 rafvirkjar út- skrifaðir, en þeir hafa aldrei verið fleiri. Krist- ín Arnalds lætur í sumar af störfum við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti eftir 33 ára starf við skólann. Framkvæmdir við nýja viðbyggingu ganga samkvæmt áætlun og er mikil tilhlökkun með- al starfsfólks og nemenda að taka bygginguna í notkun, en afhending er áætluð síðsumars. Byggingin mun gerbylta aðstöðu kennara og nemenda, því þar verða kennslustofur og góð mötuneytisaðstaða fyrir nemendur. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti tekur þátt í ýmsum þróunar- og samstarfsverkefnum. Listnámsbraut skólans tekur þessi misserin þátt í evrópsku Comenius-verkefni og voru t.d. 32 nemendur og kennarar frá þremur löndum gestir FB nú á vordögum. Þá fékk skólinn m.a. styrk frá Evrópusambandinu vegna Leonardo-verkefnis á innflytj- endabraut, en hún tekur þátt í ýmsum verk- efnum. Starfsbraut skólans hefur einnig feng- ið góða styrki og tekið þátt í fjölda þróunarverkefna. Skólaslit í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti MENNTASKÓLINN á Egilsstöðum brautskráði 34 stúdenta laug- ardaginn 23. maí sl., 23 stúdentar brautskráðust af félagsfræðibraut en 10 af náttúrufræðibraut og einn brautskráðist af báðum brautunum. Fjórir nýstúdentar luku listnámsbraut sem hluta af stúdentsprófi og tveir luku íþróttabraut á sama hátt. Kristinn Kristinsson frá Hall- ormsstað skilaði besta náms- árangri og hlaut að auki við- urkenningu fyrir góðan námsárangur í raungreinum, stærðfræði og spænsku. Kristinn mun í sumar taka þátt í Ólympíu- móti í eðlisfræði fyrir Íslands hönd, en hann hafnaði í öðru sæti í landskeppninni í eðlisfræði í vor. Urður María Sigurðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir fram- úrskarandi námsárangur í ís- lensku, samfélagsgreinum og list- greinum. Leif Kristján Gjerde og Sig- urður Páll Guttormsson hlutu við- urkenningu fyrir góðan náms- árangur í þýsku. Saulius Genutis, litháskur nem- andi, fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í íslensku fyr- ir erlenda nemendur og fyrir spænsku. Ásta Hlín Magnúsdóttir hlaut einnig viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í spænsku. Þá var þeim Ástu Hlín, Báru Dögg Þórhallsdóttur, Birki Snæ Mánasyni, Kristófer Nökkva Sig- urðssyni og Heiðdísi Fjólu Tryggvadóttur einnig veitt við- urkenning vegna starfa í þágu fé- lagslífs í skólanum. Útskrift frá Menntaskólanum á Egilsstöðum Sumarbrids hafinn á Akureyri Fyrsta sumarbridskeppni ársins var haldin hjá BA 26. maí og var spil- aður impatvímenningur. Örlygur og Stefán tóku snemma forystu og unnu með nokkrum yfirburðum. Efstu pör: Örlygur Örlygsson – Stefán Vilhjálmsson 69 Ragnheiður Haraldsd. – Ólína Sigurjónsd. 33 Ingólfur P. Mattíasson – Víðir Jónsson 10 Síðastliðinn þriðjudag var spilað í annað skipti og fór vel fram. Mótið var mun jafnara en síðast þegar það vannst með 66 impum í plús. Hér er lokastaðan: Frímann Stefánsson - Reynir Helgason 19 Ragnheiður Haraldsd. - Ólína Sigurjónsd. 13 Sigurður Marteinss. - Þórh. Hermannss. 12 Spilað er í Lionssalnum á Skipa götu 14 á þriðjudögum kl. 19:30. Sumarbrids á Suðurnesjum Spilað verður á þriðjudögum kl. 19:15 í allt sumar og til að byrja með verður spilastaður veitingastaðurinn Ráin, Hafnargötu 19 í Keflavík, en unnið er að lagfæringum á húsnæði okkar að Mánagrund. Allir bridsspilarar eru boðnir hjart- anlega velkomnir í léttan tvímenning. Aðstoðað verður við myndun para ef þarf. Hér er upplagt tækifæri fyrir heimamenn og ferðalanga að grípa í spil yfir sumartímann. Spilagjald er 800 kr. Ekki er posi á staðnum. Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 29. maí var spilað á 15 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Magnús Halldórsson – Rafn Kristjánss. 405 Sæmundur Björnsson – Örn Einarsson 380 Bragi Björnsson – Bjarnar Ingimarss. 378 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 362 A/V Oddur Jónsson – Magnús Jónsson 346 Steinmóður Einarss. – Jón Sævaldss. 346 Jóhann Benediktsson – Pétur Antonss. 342 Þriðjudaginn 2 júní var spilað á 14 borðum.Úrslit urðu þessi í N/S Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 371 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 344 Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónsson 342 A/V Haukur Guðmundss. – Jón Gunnarss. 377 Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldsson 364 Knútur Björnss. – Jóhanna Gunnlaugsd. 353 Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, fimmtud. 28. maí. Spilað var á 10 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S Ragnar Björnsson – Jón Lárusson 255 Magnús Oddsson – Oliver Kristóferss. 230 Júlíus Guðmundss. – Rafn Kristjánss. 227 Árangur A-V Oddur Halldórsson – Oddur Jónsson 264 Magnús Jónsson – Gunnar Jónsson 257 Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 253 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.