Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 50
Tívolíið í Hveragerði er ekki eina tívolíið
sem hefur verið sett upp á Íslandi. Í júlí
árið 1946 var opnaður skemmtigarðurinn
Tívolí í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Þar
mátti finna margt spennandi, m.a. parísar-
hjól, hestahringekju, bílabraut, speglasal,
draugahús, rakettubraut, skotbakka og
hægt var að sigla á fótstignum bátum á
tjörn. Einnig var þar leiksvið þar sem
ýmsir skemmtikraftar komu fram og
sýndu listir sínar, eins og loftfim-
leikamenn og kraftakarlar. Reglulega
flaug flugvél yfir svæðið og dreifði sæl-
gæti.
Á tímabili var vísir að dýragarði í tív-
olíinu og mátti þar sjá dýr sem fengin voru
að láni frá dýragörðum erlendis, m.a. ljón,
hlébarða, birni, apa, leðurblökur, fugla,
fiska, skjaldbökur og froska.
Fegurðardrottningar Íslands voru
valdar í tívolíinu og einu sinni fór fram
keppni um Herra Ísland.
Í útjaðri skemmtigarðsins stóð öld-
urhúsið Vetrargarðurinn þar sem full-
orðna fólkið sótti í sinn ævintýraheim.
Tívolíið var yfirleitt opið frá maí fram í
september. Því var lokað endanlega árið
1965 eftir stopulan rekstur.
Tívolí Einu sinni var hægt að fara hring eftir hring á hestahringekju í Vatnsmýrinni.
Tívolí í Vatnsmýrinni
us. Þar var tekist á í reiptogi og margoft tók
Jón Páll reiptog einn gegn fjölda tívolígesta í
einu og hafði jafnan betur. Einnig var sýnd
vaxtarrækt, sem þá var nýmæli á Ís-
landi.
Þarna voru haldnir tónleikar með
helstu hljómsveitum landsins. Hús-
ið rúmaði allt að 3.000 manns,
sem var sambærilegt
við Laugardals-
höllina,“ seg-
ir Ólafur
Rekið
í átta ár
Tívolíið í Hveragerði
hóf starfsemi vorið
1986 og var lokað vorið
1994.
Fyrsta árið var það á
vegum Sigurðar Kára-
sonar en síðan tók Ólaf-
ur við allri starfseminni
og kom henni undir
þak.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
T
ívolíið var fjölskyldugarður. Þarna
voru klessubílar, speglasalir, drauga-
hús, hringekjur, parísarhjól, járn-
brautarlestir, kolkrabbi, þeytivindur,
skotbakkar, bátatjörn, go-kart-bílabraut og
fleiri tæki. Ný tæki voru keypt á hverju ári og
mikið lagt upp úr endurnýjun. Trúðar völsuðu
um svæðið og seldur var kandíflos í básum,“
segir Ólafur Ragnarsson hæstaréttarlögmað-
ur sem rak Tívolíið í sjö ár.
„Gestum gafst jafnframt tækifæri til að
freista gæfunnar með því að taka þátt í alls-
kyns uppátækjum á skotbökkum. Þá voru
reglulega fluttir inn erlendir skemmtikraftar.
T.d. var þar eitt sinn kínverskur fjöllistahópur
og akróbatar í þrjá mánuði sem sýndu loftfim-
leika og línudans.
Sleggjuhamarinn var svo vinsælt tæki hjá
hraustmennum sem komu helgi eftir helgi til
að slá ný met frá helginni áður. Einnig sýndu
aflraunamenn krafta sýna í Tívolíinu, m.a. Jón
Páll Sigmarsson, Magnús Ver og Hjalti Úrs-
Innandyra Barnafjölskyldur af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandsundirlendinu voru helstu viðskiptavinir tívolísins.
Manstu eftir …
Undir þak Burðarvirki bygginganna voru límtrésbogar og gagnsæ báruplast klæðning á milli.
Ólafur segir að markmiðið með Tívolíinu
hafi verið að bjóða fjölbreytta og nýja teg-
und afþreyingar.
„Tívolíið varð frá fyrsta degi gífurlega
vinsælt. Barnafjölskyldur af höfuðborg-
arsvæðinu og Suðurlandsundirlendinu
voru helstu viðskiptavinir þess. Að-
sókn var mikil fyrstu þrjú ár-
in og á góðum degi
komu fleiri þús-
und manns.
Óhætt
er að
fullyrða
að Tívolíið hafi ver-
ið metnaðarfull
framkvæmd frá
upphafi. Starfsemin
var rekin undir þaki
tveggja sérhann-
aðra bygginga.
Hvort hús var 3.000
fermetrar að grunn-
fleti með yfir 20
metra lofthæð. Stór
kaffistofa og veitingastaður var í miðju húss-
ins. Tívolíð var opið daglega frá 1. maí til 15.
september ár hvert. Fyrstu dagarnir sem var
opið voru þó frídagarnir í kringum páskana og
þá var aðsókn alltaf mjög góð.“
Ólafur segir að koma bresks farandtívolís
til Íslands sumarið 1990 hafi dregið úr aðsókn
í Tívolíið í Hveragerði. „Þetta farandtívolí var
með mörg stór og öflug tæki sem þóttu
spennandi hjá ungu kynslóðinni. Það ferðaðist
um landið í nokkrar vikur hvert sumar í nokk-
ur ár og þá fór að draga mjög úr aðsókn að
Tívolíinu í Hveragerði. Vorið 1994 keypti
breska tívolíið öll tækin frá Hveragerði og
seldi þau svo til Afríku.“
Spurður að lokum hvað sé honum minn-
isstæðast frá þessum rekstri segir Ólafur að í
sínum huga sé þetta ævintýratími. „Vinnan og
rekstur Tívolísins var stórskemmtileg til-
breyting frá hefðbundnum lögmannsstörfum
sem ég hef stundað fyrir og eftir þetta æv-
intýratímabil,“ segir Ólafur og bætir við að
viðkynning og umgengni við hina venjulegu
íslensku barnafjölskyldu og þá ekki síst börn-
in hafi verið skemmtilegasti hluti starfsins.
Tívolíinu í Hveragerði
50 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Þeytivindan var án efa eitt af vinsælustu
tækjunum í Tívolíinu í Hveragerði. Fólk
stóð í hálfgerðum bás inni í hringekju
sem snerist svo á miklum hraða upp í
loft og niður aftur. Hraðinn var mikill
og sú saga gekk lengi að fólk ældi í
hrönnum í þessu tæki og ælan fyki á
hina sem í tækinu voru. Vissulega var
mörgum óglatt eftir ferð með Þeytivind-
unni en ælan fauk ekki um í hverri ferð
eins og haldið var fram í sögunni.
Á fullum snúning Allskonar gubbusög-
ur gengu um þetta tæki.
Þeytivindan