Morgunblaðið - 07.06.2009, Side 52
52 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 8. júní, kl. 18.15
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
sunnudag 12–17 og mánudag 10–17
SigurðurG
uðm
undsson
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
Þ
egar kemur að kvikmynd-
um á orðatiltækið „tón-
list er tilfinning í hljóði“
einstaklega vel við. Fyrir
hundrað árum var leikið
á píanó undir þöglum kvikmyndum
til þess að kæfa annars æpandi þögn
hvíta tjaldsins. Þegar kvikmynda-
gerðarmenn hitta naglann á höfuðið
hvað tónlistarval varðar við lyk-
ilsenur getur það haft slík áhrif á
áhorfandann að hár rísa á höndum
og tárin leka niður vanga þeirra.
Stundum styðjast leikstjórar við
tónlist poppara eða rokkara sem
smellpassa svo vel að senurnar verða
ógleymanlegar og lögin öðlast jafn-
vel annað líf. Rifjum upp nokkrar
slíkar.
Apocalypse Now
/ The Doors – The End.
Leikstjórinn Francis Ford Cop-
pola gefur tóninn á vonleysislega sýn
sína á Víetnam-stríðið strax í opn-
unaratriði myndarinnar þar sem
þyrlur fljúga yfir þykkan skóg sem
brennur hægt til kaldra kola við
heimsendaóð rokksveitarinnar The
Doors. Hippasveitin hefði líklegast
aldrei samþykkt lagið í myndina ef
ekki hefði verið um stríðsádeilu að
ræða.
Pulp Fiction / Urge Overkill –
Girl, You’ll be a Woman Soon
Þessi afar kynörvandi útgáfa af
smelli Neils Daimonds smellpassar
til þess að fanga spennuna er ríkir á
milli Miu Wallace (Umu Thurman)
og Vincents Vega (Johns Travolta)
eftir að þau koma heim af veitinga-
staðnum Jack Rabbit Slim. Á meðan
Vincent reynir að tala losta sinn nið-
ur á klósettinu stelst Mía í heróínið
hans sem hún taldi ranglega kókaín.
Lagið fjarar svo út um leið og Mía
missir meðvitund með blóð seytlandi
niður nasirnar.
Fight Club / Pixies –
Where is my Mind?
Atriðið sem kynnti Pixies fyrir
nýrri kynslóð rokkunnenda. Persóna
Edwards Nortons (sem aldrei er
nefnd með nafni í myndinni) er fyllt
blöndu af hryllingi og aðdáun þegar
hann fylgist með hryðjuverki níhíl-
istans Tylers Durdens (Brad Pitt).
Áhorfandinn fyllist einkennilegu
æðruleysi á meðan skýjakljúfar sem
hýsa höfuðstöðvar helstu greiðslu-
kortafyrirtækja heims falla einn af
öðrum.
Magnolia / Aimee Mann –
Wise Up
Á viðkvæmum tímapunkti í þess-
ari mögnuðu mynd þegar allar per-
sónur virðast ná botni sínum gerist
hið ótrúlega. Í eymd sinni raula þær
allar með þessum tilfinningaþrunga
óði sem fjallar um að gefast upp fyrir
eigin sjálfi. Meira að segja sjálfur
Tom Cruise syngur og það virkar.
Almost Famous / Elton John –
Tiny Dancer
Hljómsveitin Stillwater sækir gít-
arleikarann Russell Hammond
(Billy Crudup) í partí eldsnemma
um morguninn. Hljómsveitarmór-
allinn er í botni eftir heljarinnar
rifrildi kvöldið áður. Russell er
leiddur inn í rútuna á bömmer og
sveitin heldur tónleikaferðalagi
sínu áfram. Þegar þessi gullni slag-
ari Eltons Johns ómar í rútunni er
hann eins og plástur á sárin.
Wayne’s World / Queen –
Bohemian Rhapsody
Þetta frábæra byrjunaratriði á
fyrri Waynés World-myndinni gef-
ur tóninn í þessari frábæru gam-
anmynd. Wayne (Mike Mayers) eru
í bílnum að syngja með í fíling. Létt
grín sem gerir þó, ótrúlegt en satt,
ekki lítið úr laginu sjálfu.
Donnie Darko /
Gary Jules – Mad World
Það er lítið um orð síðustu fjórar
mínúturnar í vísindaskáldsögunni
Donnie Darko. Enda algjör óþarfi,
þessi ábreiðsla Garys Jules á gamla
Tears for Fears-laginu segir allt
sem segja þarf.
O Brother, Where Art Thou
/ Oh Death – Ralph Stanley
Óborganleg sena þar sem stroku-
fangarnir Everett (George Cloo-
ney), Pete (John Turturro) og Delm-
ar (Tim Blake Nelson) rata óvart inn
á útiþing Klux Klux Klan. Atriðið er
listavel sett upp og er spaugilegur
óður til nasistamynda Lene Riefen-
stahl.
Romeo + Juliet / Des’ree –
Kissing You
Leikstjórinn Baz Luhrman ber
einstakt skynbragð á að blanda sam-
an popptónlist við kvikmyndun. Það
sannar þessi listfengna og róm-
antíska sena þegar augu dæmdu
elskhuganna Rómeós (Leonardo Di-
Caprio) og Júlíu (Clare Daines) mæt-
ast fyrst í gegnum fiskabúr á sal-
ernum skemmtistaðar.
Easy Rider / The Band –
The Weight
Ekkert spes að gerast í myndinni.
Wyatt (Peter Fonda) og Billy (Denn-
is Hopper) keyra á mótorhjólum sín-
um í gegnum Arizona og tónlist The
Band smellpassar.
10 eftirminnileg lög í kvikmyndum
Magnolia Tom Cruise syngur.
O Brother Lagið Oh Death hljómaði í óborganlegri senu.
Almost Famous Elton John bjargar hljómsveitarmóralnum.
Pulp Fiction Lagið fangaði senuna.
Fight Club Kynnti Pixies fyrir nýrri kynslóð rokkunnenda.
Wayne’s World Bohemian Rhapsody hljómaði í skemmtilegu byrjunaratriði.
STÓRSTJÖRNURNAR Jessica Biel
og Justin Timberlake eyddu mikl-
um tíma í símanum áður en þau
fóru á sitt fyrsta stefnumót.
Biel, sem hefur verið á föstu
með Timberlake síðan 2007, hefur
sagt frá því að þeim hafi verið
komið saman af vini en þau hafi
viljað kynnast betur áður en þau
hittust.
„Við höfum verið saman í nokk-
ur ár, ég vil ekki tala mikið um
það en við hittumst í gegnum
sameiginlegan vin. Við töluðum
mikið við hvort annað í síma áður
en við hittumst svo við náðum að
kynnast á þann háttinn,“ sagði
Biel í spjallþætti David Letterman.
Biel sagði líka að hún hefði eng-
an sérstakan áhuga á því að gifta
sig í nálægri framtíð því hún vill
frekar einbeita sér að vinnunni.
Sameiginlegum
vini að þakka
Ástfangin Justin Timberlake og
Jessica Biel á rauða dreglinum.