Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 53

Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Sannleikurinn (Stóra sviðið) Söngvaseiður. Aukasýning 13. júní Við borgum ekki (Nýja sviðið) Uppsetning Nýja Íslands. Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust. Djúpið (Litla sviðið) Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone! Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið Lau 18/7 kl. 19:00 stóra svið Sun 7/6 kl. 16:00 U Fim 11/6 kl. 20:00 U Fös 12/6 kl. 20:00 U Lau 13/6 kl. 14:00 U Lau 13/6 kl. 18:00 Ný aukasÖ Sun 14/6 kl. 16:00 U Fös 4/9 kl. 19:00 Ö Lau 5/9 kl. 19:00 Ö Sun 6/9 kl. 19:00 Ö Mið 9/9 kl. 19:00 U Fim 10/9 kl. 19:00 Ö Fös 18/9 kl. 19:00 Ö Lau 19/9 kl. 19:00 Ö Fim 11/6 kl. 20:00 Fös 12/6 kl. 20:00 Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00 Mið 10/6 kl. 20:00 Ö Fim 11/6 kl. 20:00 Ö Fös 12/6 kl. 19:00 Ö Lau 13/6 kl. 19:00 Ö Sun 14/6 kl. 20:00 Ö Fim 18/6 kl. 20:00 GREASE – Vinsælasti rokksöngleikur allra tíma! Þri 9/6 kl. 20:00 forsýn.U Mið 10/6 kl. 20:00 forsýn.U Fim 11/6 kl. 20:00 frums. U Fös 12/6 kl. 20:00 2. sýn Ö Lau 13/6 kl. 20:00 3.sýn U Sun 14/6 kl. 16:00 4. sýn Ö Lau 20/6 kl. 16:00 5. sýn Ö Sun 21/6 kl. 16:00 6.sýn Ö Fös 26/6 kl. 20:00 7.sýn Lau 27/6 kl. 20:00 8.sýn Sun 28/6 kl. 16:00 9.sýn Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200 Sýningum lýkur í júní Sun 7/6 kl. 20:00 U Fim 11/6 kl. 20:00 Ný aukas. Fös 12/6 kl. 20:00 Ný aukas Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar (Söguloftið) Fös 12/6 kl. 20:00 Ö BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Fös 19/6 kl. 20:00 Lau 20/6 kl. 20:00 Sun 21/6 kl. 16:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið BANDIÐ BAK VIÐ EYRAÐ (HVÍTISALUR) Fim 11/6 tónleikar kl. 21:00 Fös 12/6 tónleikar kl. 21:00 F ranskir mansöngvar eru frábrugðnir því sem tíðkast víða ann- ars staðar í því að beinlínis er gert ráð fyrir rödd sem ekki er hægt að kalla fallega; brákuð og beygluð, tilfinningarík og dramatísk, laus við væmni og tilgerð. Þannig rödd er Iggy Pop einmitt með og í fyrstu hendingu af fyrsta lagi Pré- liminaires er meiri saga og þungi en í ævistarfi margra annarra tón- listarmanna. Haustlauf Í laginu „Les feuilles mortes“, textinn eftir ljóðskáldið Jacques Prévert, lagið eftir Joseph Kosma, syngur Iggy í brotnum barítón um haustlauf og glataða ást, en lagið sló í gegn í Frakklandi 1945 og oft eftir það, meðal annars í flutningi Edith Piaf (bæði á frönsku og ensku). Aðrir sem sungið hafa lag- ið eru Nat King Cole, Yves Mont- and og Eva Cassidy, en fjölmargir hafa einnig gefið lagið út án söngs. Undirspilið í „Les feuilles mor- tes“ að hætti Iggy Pop er naum- hyggjulegt, slagverk, ástsjúkt org- el, rómantískur bassi og smávegis rafeindamúsík sem nær hápunkti í tregaþrungnu klarínettsólói – aðdáendur Iggy Pop fá flog. Hann lætur ekki nægja að taka fyrir franskan vísnasöng, heldur er líka á skífunni bossanova-lag, „In- sensatez“ eftir Antonio Calos Jo- bim, sem heitir „How Insensitive“ í meðförum Iggys, og í því eru fiðlurnar ekki sparaðar. Að þessu sögðu koma gítarar víða við sögu á plötunni, heyr til að mynda lagið „Spanish Coast“ þar sem skældur gítar ber uppi laglínuna (og minnir ekki svo lítið á Tindersticks) og eins „Nice to Be Dead“, hefðbundið rokklag sem gæti eins hafa verið á hvaða sólóskífu Iggys sem er. Fleiri dæmi eru um slíkt á plötunni, svona rétt eins og Iggy Pop hafi ekki alveg get- að sagt skilið við uppruna sinn, en lögin sem koma á óvart eru þó fleiri, til að mynda áður- nefnt upp- hafslag plötunnar New Or- leans- djasslagið „King of the Dogs“, þar sem Iggy fær laglínu lánaða hjá Louis Armstrong, „He’s Dead – She’s Alive“, kassa- gítarblús og bjöguð rödd, og svo lagið „A Machine For Lo- ving“, þar sem sungið/talað er um ástríka hunda. Tónlist við skáldsögu Kveikjan að Prélim- inaires var sú að Iggy var beðinn að semja tónlist við heimildarmynd um það er Michel Houellebecq semur kvikmyndahandrit upp úr bók sinni La Pos- sibilité d’une île og reynir síðan að telja menn á að gera mynd eftir hand- ritinu. Undirbúningur að verkefn- inu fólst í því að lesa bókina, sem varð Iggy svo mikill inn- blástur að í stað þess að semja tónlist fyrir téða heimilarmynd samdi hann plötu upp úr bókinni, eins konar hljóðrás við hana. (Þess má geta að textinn við „A Machine For Loving“ er fenginn úr enskri út- gáfu á bók Houellebecqs.) Þegar við ofangreint bæt- ist að Iggy var búinn að fá ógeð á lúðum með rafgítara, að eigin sögn, kemur kannski ekki á óvart að hann hafi kosið að kú- venda svo rækilega. Þess má svo geta að plötuna má kaupa sem niðurhal og á diski, en einnig er til sérstök viðhafnarútgáfa sem er meðal annars skreytt myndum eftir teiknarann snjalla Marjane Satrapi. arnin@mbl.is Glataðar ástir pönkarans » Þegar við ofan-greint bætist að Iggy var búinn að fá ógeð á lúðum með rafgítara, að eigin sögn, kemur kannski ekki á óvart að hann hafi kosið að kúvenda svo rækilega. Iggy Pop Orð- inn bandarísk- ur raulari. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Iggy Pop er sönnun þess að fátt sé betra en grenjandi rafgítarar og organdi söngvari; þeir sem séð hafa hann á sviði getað vitnað um það að hann er hold- gervingur rokksins. Ekki er þó allt sem sýnist því honum er líka vel lagið að syngja við vælandi klarínett eins og sannast á nýrri plötu hans, Préliminaires. Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Það getur verið erfitt að sitja fastur í sama hlutverkinu, hvort sem mað- ur er leikarinn sem leikur alltaf vonda löggu eða tónlistarmaðurinn sem verður alltaf að vera hressi gæinn. Það getur þó verið erfitt að breyta um stíl og stefnu; ekki er gott að gera aðdáendurna fráhverfa sér til frambúðar því ekki er öruggt að stílbrotið skaffi nýja vini. Með frægustu umskiptum rokk- sögunnar er þegar Bob Dylan hætti að vera vælandi mótmæla- söngvari og fann upp nýtt tónlistar- form í leiðinni; rafmagnað þjóð- lagarokk. Aðdáendur hans tóku því illa, gerðu hróp að honum á tón- leikum, en sagan hefur sýnt að þetta var réttur leikur. Þegar menn eru komnir á síðasta snúning getur verið gott að taka annan kúrs. Það dugði til að mynda Johnny Cash vel í upphafi tíunda áratugarins þegar hann birtist einn með kassagítarinn á American Rec- ordings og græddi grúa af nýjum aðdáendum – fór semsé í öfuga átt við Dylan. David Bowie er meðal annars frægur fyrir sín stílbrigði og hefur dugað honum vel í gegnum árin. Sum hamskipti hans eru þó einfald- lega hallærisleg, til að mynda til- raunirnar þrjár í lok níunda áratug- arins og upphafi þess tíunda; hallærisrokk með Tin Machine, eins konar síðnýrómantík með Outside 1995 og svo loks drum’n’bass- dellan Earthling 1997. Stundum skipta listamenn um stíl og stefnu vegna þess að þeir eru í blindgötu og svo var því farið til að mynda þegar Björk hætti í gítarpoppsveitinni Sykurmolunum og tók til við framsækið danspopp ein síns liðs. Síðasta plata Syk- urmolanna var meira af því sama, en fyrsta sólóplata Bjarkar, Debut, var byrjun á einhverju nýju. Söngkonan Jewel var fræg fyrir sitt meinlausa menningarpopp þeg- ar hún sendi frá sér breiðskífuna 0304. Aðdáendum hennar brá svo við þegar þeir heyrðu skífuna að það skvettist upp úr rauðvínsglös- unum enda var tónlistin fjörugt og dansvænt popp, en ekki þjóðlaga- gaul að hætti hússins. Þessi stefnubreyting Jewel entist ekki nema þessa einu skífu, en 0304 er besta skífa hennar að margra mati og einnig sú skemmtilegasta. Hamskiptingar FYRSTA plata poppdívunnar Whitney Houston í sjö ár kemur út í Bretlandi 31. ágúst næst- komandi og í Bandaríkjunum daginn eftir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá plötufyr- irtæki hennar. Nýja platan hefur ekki hlotið nafn en hún var framleidd af Akon og Will. i.am úr Black Eyed Peas. Undanfarin ár hefur ekki farið mikið fyrir tónlist í lífi Houston, hún hefur frekar komist í fréttir vegna skilnaðar frá Bobby Brown og ferða í meðferð. Hins vegar kom hún fram í upphit- unarpartíi fyrir Grammy- verðlaunin í febrúar og afhenti verðlaun á sjálfri athöfninni. Houston er orðin 45 ára en hún varð stórstjarna árið 1985 þegar plata, samnefnd henni, kom út. Hún hefur unnið til sex Grammy-verðlauna og til Amer- ísku tónlistarverðlaunanna í tuttugu og þrjú skipti á ferl- inum. Síðasta plata hennar, Just Whitney, kom út 2002 en náði ekki miklum vinsældum. Von á plötu frá Whit- ney Houston í haust Reuters Söngur Whitney Houston syngur í partíi fyrir Grammy-verðlaunin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.