Morgunblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2009
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Söngvaseiður (Stóra sviðið)
Sannleikurinn (Stóra sviðið)
Söngvaseiður. Aukasýning 13. júní
Við borgum ekki (Nýja sviðið)
Uppsetning Nýja Íslands.
Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust.
Djúpið (Litla sviðið)
Munið afslátt fyrir viðskiptavini Vodafone!
Lau 20/6 kl. 19:00 stóra svið
Lau 27/6 kl. 19:00 stóra svið
Fös 3/7 kl. 19:00 stóra svið
Lau 11/7 kl. 19:00 stóra svið
Lau 18/7 kl. 19:00 stóra svið
Sun 7/6 kl. 16:00 U
Fim 11/6 kl. 20:00 U
Fös 12/6 kl. 20:00 U
Lau 13/6 kl. 14:00 U
Lau 13/6 kl. 18:00 Ný aukasÖ
Sun 14/6 kl. 16:00 U
Fös 4/9 kl. 19:00 Ö
Lau 5/9 kl. 19:00 Ö
Sun 6/9 kl. 19:00 Ö
Mið 9/9 kl. 19:00 U
Fim 10/9 kl. 19:00 Ö
Fös 18/9 kl. 19:00 Ö
Lau 19/9 kl. 19:00 Ö
Fim 11/6 kl. 20:00
Fös 12/6 kl. 20:00
Fim 18/6 kl. 20:00 Fös 19/6 kl. 20:00
Mið 10/6 kl. 20:00 Ö
Fim 11/6 kl. 20:00 Ö
Fös 12/6 kl. 19:00 Ö
Lau 13/6 kl. 19:00 Ö
Sun 14/6 kl. 20:00 Ö
Fim 18/6 kl. 20:00
GREASE – Vinsælasti rokksöngleikur allra tíma!
Þri 9/6 kl. 20:00 forsýn.U
Mið 10/6 kl. 20:00 forsýn.U
Fim 11/6 kl. 20:00 frums. U
Fös 12/6 kl. 20:00 2. sýn Ö
Lau 13/6 kl. 20:00 3.sýn U
Sun 14/6 kl. 16:00 4. sýn Ö
Lau 20/6 kl. 16:00 5. sýn Ö
Sun 21/6 kl. 16:00 6.sýn Ö
Fös 26/6 kl. 20:00 7.sýn
Lau 27/6 kl. 20:00 8.sýn
Sun 28/6 kl. 16:00 9.sýn
Leikfélag Akureyrar
Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is
Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200
Sýningum lýkur í júní
Sun 7/6 kl. 20:00 U Fim 11/6 kl. 20:00 Ný aukas. Fös 12/6 kl. 20:00 Ný aukas
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar
(Söguloftið)
Fös 12/6 kl. 20:00 Ö
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Fös 19/6 kl. 20:00
Lau 20/6 kl. 20:00
Sun 21/6 kl. 16:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
BANDIÐ BAK VIÐ EYRAÐ (HVÍTISALUR)
Fim 11/6 tónleikar kl. 21:00 Fös 12/6 tónleikar kl. 21:00
F
ranskir mansöngvar
eru frábrugðnir því
sem tíðkast víða ann-
ars staðar í því að
beinlínis er gert ráð
fyrir rödd sem ekki er hægt að
kalla fallega; brákuð og beygluð,
tilfinningarík og dramatísk, laus
við væmni og tilgerð. Þannig rödd
er Iggy Pop einmitt með og í
fyrstu hendingu af fyrsta lagi Pré-
liminaires er meiri saga og þungi
en í ævistarfi margra annarra tón-
listarmanna.
Haustlauf
Í laginu „Les feuilles mortes“,
textinn eftir ljóðskáldið Jacques
Prévert, lagið eftir Joseph Kosma,
syngur Iggy í brotnum barítón um
haustlauf og glataða ást, en lagið
sló í gegn í Frakklandi 1945 og oft
eftir það, meðal annars í flutningi
Edith Piaf (bæði á frönsku og
ensku). Aðrir sem sungið hafa lag-
ið eru Nat King Cole, Yves Mont-
and og Eva Cassidy, en fjölmargir
hafa einnig gefið lagið út án
söngs.
Undirspilið í „Les feuilles mor-
tes“ að hætti Iggy Pop er naum-
hyggjulegt, slagverk, ástsjúkt org-
el, rómantískur bassi og smávegis
rafeindamúsík sem nær hápunkti í
tregaþrungnu klarínettsólói –
aðdáendur Iggy Pop fá flog. Hann
lætur ekki nægja að taka fyrir
franskan vísnasöng, heldur er líka
á skífunni bossanova-lag, „In-
sensatez“ eftir Antonio Calos Jo-
bim, sem heitir „How Insensitive“
í meðförum Iggys, og í því eru
fiðlurnar ekki sparaðar.
Að þessu sögðu koma gítarar
víða við sögu á plötunni, heyr til
að mynda lagið „Spanish Coast“
þar sem skældur gítar ber uppi
laglínuna (og minnir ekki svo lítið
á Tindersticks) og eins „Nice to
Be Dead“, hefðbundið rokklag
sem gæti eins hafa verið á hvaða
sólóskífu Iggys sem er.
Fleiri dæmi eru um
slíkt á plötunni, svona
rétt eins og Iggy Pop
hafi ekki alveg get-
að sagt skilið við
uppruna sinn, en
lögin sem koma
á óvart eru þó
fleiri, til að
mynda áður-
nefnt upp-
hafslag
plötunnar
New Or-
leans-
djasslagið
„King of the
Dogs“, þar
sem Iggy
fær laglínu
lánaða hjá
Louis
Armstrong,
„He’s Dead
– She’s
Alive“, kassa-
gítarblús og
bjöguð rödd, og
svo lagið „A
Machine For Lo-
ving“, þar sem
sungið/talað er um
ástríka hunda.
Tónlist við skáldsögu
Kveikjan að Prélim-
inaires var sú að Iggy var
beðinn að semja tónlist við
heimildarmynd um það er
Michel Houellebecq semur
kvikmyndahandrit upp úr
bók sinni La Pos-
sibilité d’une île og
reynir síðan að telja
menn á að gera mynd eftir hand-
ritinu. Undirbúningur að verkefn-
inu fólst í því að lesa bókina, sem
varð Iggy svo mikill inn-
blástur að í stað þess að
semja tónlist fyrir téða
heimilarmynd samdi hann
plötu upp úr bókinni, eins konar
hljóðrás við hana. (Þess má geta
að textinn við „A Machine For
Loving“ er fenginn úr enskri út-
gáfu á bók Houellebecqs.)
Þegar við ofangreint bæt-
ist að Iggy var búinn að
fá ógeð á lúðum með
rafgítara, að eigin
sögn, kemur kannski
ekki á óvart að hann
hafi kosið að kú-
venda svo rækilega.
Þess má svo geta
að plötuna má
kaupa sem niðurhal
og á diski, en einnig
er til sérstök viðhafnarútgáfa
sem er meðal annars skreytt
myndum eftir teiknarann snjalla
Marjane Satrapi.
arnin@mbl.is
Glataðar ástir
pönkarans
» Þegar við ofan-greint bætist að
Iggy var búinn að
fá ógeð á lúðum
með rafgítara, að
eigin sögn, kemur
kannski ekki á
óvart að hann hafi
kosið að kúvenda
svo rækilega.
Iggy Pop Orð-
inn bandarísk-
ur raulari.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Iggy Pop er sönnun þess að fátt sé betra en grenjandi rafgítarar og organdi
söngvari; þeir sem séð hafa hann á sviði getað vitnað um það að hann er hold-
gervingur rokksins. Ekki er þó allt sem sýnist því honum er líka vel lagið að
syngja við vælandi klarínett eins og sannast á nýrri plötu hans, Préliminaires.
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus
Það getur verið erfitt að sitja fastur
í sama hlutverkinu, hvort sem mað-
ur er leikarinn sem leikur alltaf
vonda löggu eða tónlistarmaðurinn
sem verður alltaf að vera hressi
gæinn. Það getur þó verið erfitt að
breyta um stíl og stefnu; ekki er
gott að gera aðdáendurna fráhverfa
sér til frambúðar því ekki er öruggt
að stílbrotið skaffi nýja vini.
Með frægustu umskiptum rokk-
sögunnar er þegar Bob Dylan
hætti að vera vælandi mótmæla-
söngvari og fann upp nýtt tónlistar-
form í leiðinni; rafmagnað þjóð-
lagarokk. Aðdáendur hans tóku því
illa, gerðu hróp að honum á tón-
leikum, en sagan hefur sýnt að
þetta var réttur leikur.
Þegar menn eru komnir á síðasta
snúning getur verið gott að taka
annan kúrs. Það dugði til að mynda
Johnny Cash vel í upphafi tíunda
áratugarins þegar hann birtist einn
með kassagítarinn á American Rec-
ordings og græddi grúa af nýjum
aðdáendum – fór semsé í öfuga átt
við Dylan.
David Bowie er meðal annars
frægur fyrir sín stílbrigði og hefur
dugað honum vel í gegnum árin.
Sum hamskipti hans eru þó einfald-
lega hallærisleg, til að mynda til-
raunirnar þrjár í lok níunda áratug-
arins og upphafi þess tíunda;
hallærisrokk með Tin Machine, eins
konar síðnýrómantík með Outside
1995 og svo loks drum’n’bass-
dellan Earthling 1997.
Stundum skipta listamenn um
stíl og stefnu vegna þess að þeir
eru í blindgötu og svo var því farið
til að mynda þegar Björk hætti í
gítarpoppsveitinni Sykurmolunum
og tók til við framsækið danspopp
ein síns liðs. Síðasta plata Syk-
urmolanna var meira af því sama,
en fyrsta sólóplata Bjarkar, Debut,
var byrjun á einhverju nýju.
Söngkonan Jewel var fræg fyrir
sitt meinlausa menningarpopp þeg-
ar hún sendi frá sér breiðskífuna
0304. Aðdáendum hennar brá svo
við þegar þeir heyrðu skífuna að
það skvettist upp úr rauðvínsglös-
unum enda var tónlistin fjörugt og
dansvænt popp, en ekki þjóðlaga-
gaul að hætti hússins. Þessi
stefnubreyting Jewel entist ekki
nema þessa einu skífu, en 0304 er
besta skífa hennar að margra mati
og einnig sú skemmtilegasta.
Hamskiptingar
FYRSTA plata poppdívunnar
Whitney Houston í sjö ár kemur
út í Bretlandi 31. ágúst næst-
komandi og í Bandaríkjunum
daginn eftir. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá plötufyr-
irtæki hennar.
Nýja platan hefur ekki hlotið
nafn en hún var framleidd af
Akon og Will. i.am úr Black
Eyed Peas.
Undanfarin ár hefur ekki farið
mikið fyrir tónlist í lífi Houston,
hún hefur frekar komist í fréttir
vegna skilnaðar frá Bobby
Brown og ferða í meðferð. Hins
vegar kom hún fram í upphit-
unarpartíi fyrir Grammy-
verðlaunin í febrúar og afhenti
verðlaun á sjálfri athöfninni.
Houston er orðin 45 ára en
hún varð stórstjarna árið 1985
þegar plata, samnefnd henni,
kom út. Hún hefur unnið til sex
Grammy-verðlauna og til Amer-
ísku tónlistarverðlaunanna í
tuttugu og þrjú skipti á ferl-
inum.
Síðasta plata hennar, Just
Whitney, kom út 2002 en náði
ekki miklum vinsældum.
Von á plötu frá Whit-
ney Houston í haust
Reuters
Söngur Whitney Houston syngur í
partíi fyrir Grammy-verðlaunin.