Morgunblaðið - 07.06.2009, Síða 60
EINELTI á
vinnustað er al-
varlegt vandamál
en talið er, að allt
að 8% launþega
verði fyrir
barðinu á því.
Getur það haft
mjög slæmar af-
leiðingar fyrir
þann, sem fyrir
því verður, og verið mjög dýrt fyrir
fyrirtækin.
Kemur þetta fram í viðtali í At-
vinnublaði Morgunblaðsins við
Brynju Bragadóttur, mannauðs-
ráðgjafa hjá Par-X, sem sérhæfir sig í
streitu- og eineltismálum.
Brynja segir, að mörkin á milli aga
og samkeppni á vinnustað og einelt-
ishegðunar geti verið óglögg en ein-
eltið hafi ávallt slæm áhrif á lík-
amlega og andlega líðan þolandans.
Afleiðingarnar birtist í auknum veik-
indum og fjarvistum, minni afköstum
og verri ímynd fyrirtækisins.
Vitnar Brynja í enskar og sænskar
rannsóknir, sem sýna, að einelti kost-
ar meðalstóran vinnustað 3,5 til 12
milljónir króna árlega. | Atvinna
Eineltið
alvarlegt
vandamál
Dýrt og skaðar
ímynd fyrirtækja
Brynja Bragadóttir
EINAR Ólafsson var barnastjarna og viðurnefnið sem hann fékk, „Einar áttavillti“, eftir slagaranum kunna, Þú
vilt ganga þinn veg, átti hreint ekki illa við. Það tók Einar nefnilega þrjá áratugi að gera upp við þetta skeið í lífi
sínu. Á þessu tímabili leið honum oft illa. Vatnaskil urðu þegar hann fór á samkomu hjá Krossinum árið 2000 en
allar götur síðan hefur Einar gengið með Guði. Nú eru heilbrigði og lífsgleði í fyrirrúmi, auk þess sem Einar er
með ólæknandi veiðidellu. Hann hefur fyrirgefið því fólki sem lagði hann í einelti. | 12
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einar náði áttum
„Hættur að láta skömm vegna lags stjórna lífi mínu“
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 158. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 15°C | Kaldast 7°C
Hæg, suðlæg eða
breytileg átt, léttir til
um norðaustanvert
landið, annars skýjað
og væta. » 10
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Meint mismunun
Forystugrein: Hátíð sjómanna
Pistill: Vörslumenn duftsins
Staksteinar: Er einhver ástæða til að
fagna?
Reykjavíkurbréf: Orð eru til alls fyrst
Streitulaust og uppbyggjandi líf á
milli starfa
Laus störf á Starfatorgi
Penni er ekki bara penni
ATVINNA»
TÓNLIST»
Iggy Pop syngur með
vælandi klarínetti. »53
Gott silfur gulli
betra, með sínum já-
kvæða boðskap og
trú á að ekkert sé
útilokað, á að vera til
á hverju heimili. »56
KVIKMYNDIR»
Ekkert er
útilokað
FÓLK»
Allir vilja láta Aniston
passa gæludýrið sitt. »51
KVIKMYNDIR»
Eftirminnileg lög í kvik-
myndum rifjuð upp. »52
Gríðarleg gróska er
á vefnum þegar mat-
ur er annars vegar,
þar er legíó af síðum
sem helgaðar eru
matargerð. »54
Mannsins
megin
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sjö ára stúlka svelt í hel
2. Leiddi kynlífsathöfn til dauða?
3. Fannst látinn í fangaklefa
4. Tveir handteknir á Akureyri
’Starfsemi Orfs getur aldrei orðiðÍslandi til sóma nema því aðeins aðræktun þess á erfðabreyttum plöntumverði haldið tryggilega innandyra undirströngu opinberu eftirliti þannig að eng-
in efni úr þessari framleiðslu geti borist
út í umhverfið fyrir slysni eða með frá-
rennsli, sorpi eða öðru (Orf er reyndar
ekki tryggt fyrir tjóni af þessu tagi). » 37
DOMINIQUE PLEDEL JÓNSSON
’Þeir sem skipuleggja og/eða seljaýmiss konar ferðir innan lands semutan verða að hafa til þess leyfi fráFerðamálastofu. Þeir sem ekki hafa til-skilin leyfi stunda því ólöglega starf-
semi. Til að vita hverjir hafa leyfi og
hverjir ekki þá ber söluaðilum ferða að
nota og birta auðkenni sem Ferða-
málastofa gefur út þannig að fólk geti á
auðveldan hátt gengið úr skugga um
hvort tilskilin leyfi séu fyrir hendi eða
ekki. » 37
HELENA KARLSDÓTTIR
’Til þess að koma böndum á þá dug-ar fátt annað en öflugt lögreglueft-irlit og haldlagning á ökutækinu í verstutilfellunum. Svo virðist sem þeirri heim-ild hafi ekki enn verið beitt þótt margir
einstaklingar hafi ítrekað brotið gróflega
af sér í umferðinni og ættu alls ekki að
hafa forráð yfir vélknúnu ökutæki. » 38
RAGNHEIÐUR DAVÍÐSDÓTTIR
’Afskriftaleið ríkisstjórnarinnar gerirráð fyrir að 5% aflaheimilda séuendurheimt árlega, það er mildileg leiðtil þess að ná auðlindinni aftur í al-mannaeigu og endurúthluta á öðrum
grunni. Verði aflaheimildir endurheimtar
þurfa þeir sem vilja koma að sjósókn
ekki að kaupa sig inn í greinina með því
að borga útgerðarmönnum sem fyrir
eru „eignarverð“ fyrir kvótann, eða
leigja kvóta af þeim tímabundið, á upp-
sprengdu verði. » 38
SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR
’Það er áhugavert að Ísland átti aðsamþykkja löggjöf ESB um ræktunerfðabreyttra lífvera fyrir 28. mars2008. Þessi löggjöf er Directive 18/2001 sem dróst að samþykkja í Evr-
ópuþinginu vegna þess að Norðmenn
vildu að þessi lög yrðu enn strangari.
» 39
KRISTÍN VALA RAGNARSDÓTTIR
Skoðanir
fólksins
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
AFGREIÐSLU Póstsins í Flatey á Breiðafirði
var lokað um síðustu mánaðamót og er sú breyt-
ing liður í nauðsynlegri hagræðingu í rekstri Ís-
landspósts. Í Flatey þjónar ferjan Baldur sem
landpóstur hér eftir.
Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslands-
pósts, segir að afgreiðslunni í Flatey hafi verið
lokað þar sem umsvif hafi verið lítil og starfsem-
in þar engan veginn staðið undir sér. Lengi hafi
verið tilefni til að loka, en látið var verða af því
núna þegar afgreiðslustjórinn lætur af störfum
vegna aldurs.
Í Flatey verða útburðar- og móttökumál leyst
með þeim hætti að póstkassar hafa verið settir
upp við bryggjuna og þjónar Breiðafjarðarferjan
Baldur Flateyingum sem landpóstur.
Tvær fjölskyldur búa í Flatey allt árið, en fólk
er í flestum húsum yfir sumarið. Talsvert er um
ferðamenn í Flatey og hafa þeir gjarnan fengið
póststimpil í eynni, en héðan í frá verður póstur
stimplaður um borð í Baldri.
Ingimundur segir að Íslandspóstur hafi lokað
afgreiðslum á nokkrum stöðum á undanförnum
árum og tekið upp samstarf við rekstraraðila á
öðrum stöðum, þar sem tilefni hefur verið til.
Fyrirtækið sé stöðugt með í endurmati hvar þörf
sé á rekstri pósthúsa eða -afgreiðslna.
Póstafgreiðsla á hjólum
„Við höfum tekið upp póstafgreiðslu á hjólum í
auknum mæli með landpóstunum,“ segir Ingi-
mundur. „Það er okkar mat og við heyrum ekki
annað frá viðskiptavinum en að þjónustan hafi í
flestum tilvikum batnað með þessum breyt-
ingum.
Hlutverk landpóstanna, þar sem ekki eru af-
greiðslur, er að taka á móti sendingum og skila
heim á bæi. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel,
til dæmis á Borgarfirði eystra, í Eyjafirði og víð-
ar um land,“ segir Ingimundur.
Langflestir bæir á Íslandi njóta þjónustu
Póstsins fimm daga vikunnar. Frá því er þó 81
undantekning þar sem þjónustan er þrjá daga í
viku og eru undantekningarnar einkum á Barða-
strönd, í Arnarfirði, Inn-Djúpi, á Ströndum, í
Grímsey og á Möðrudal.
Ferjan sem landpóstur í Flatey
Starfsemi Póstsins í Flatey á Breiðafirði stóð ekki undir sér Afgreiðslu-
stjórinn lét af störfum vegna aldurs Póstur stimplaður um borð í Baldri
Morgunblaðið/G.Rúnar
Lokað Starfsemi pósthússins í Flatey hefur verið
hætt, en umsvif þar hafa ekki verið mikil.
Í HNOTSKURN
»Tvær fjölskyldur búa í Flatey á Breiða-firði árið um kring en yfir sumarið
fjölgar íbúum allverulega.
»Flatey er vinsæll áningarstaður ferða-manna á sumrin en nú verða þeir að fá
póstinn stimplaðan um borð í Baldri.