Morgunblaðið - 08.06.2009, Page 2
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
ÁRNESHREPPUR á Ströndum er
eitt fámennasta sveitarfélag lands-
ins og því er fjölgun í hreppnum
eðlilega fagnað af Oddnýju Þórð-
ardóttur oddvita. „Unga fólkið er
fullt af hugmyndum og þeirra er
framtíðin. Við getum bara verið já-
kvæð og bjartsýn,“ segir Oddný,
oddviti í Árneshreppi.
Ein fæðing kom af stað keðju-
verkun, sem leiðir til fjölgunar og í
skólanum í Trékyllisvík fjölgar um
hvorki meira né minna en 50% þeg-
ar nýr nemandi byrjar í skólanum í
haust. Nemendur verða þrír í stað
tveggja á þessu skólaári.
Elín Agla Briem skólastjóri og
Hrafn Jökulsson eignuðust stúlku
20. maí sl. Skólastjórinn verður því
í barneignarfríi næsta vetur. Elísa
Ösp Valgeirsdóttir frá Árnesi 2 hef-
ur verið ráðin skólastjóri næsta
skólaár. Hún flyst ásamt fjölskyldu
sinni í gamla prestssetrið í Trékyll-
isvík í næsta mánuði, en maður
hennar er Ingvar Bjarnason og
börnin Kári og Þórey. Kári byrjar í
skólanum í haust.
Verða senn 52 að tölu
Skráðir íbúar í Árneshreppi voru
49 hinn 1. desember sl. Frá þeim
tíma hefur einn íbúi flust úr sveit-
inni og einn hefur látist á þessu
tímabili. Íbúatalan hækkar samt í
52 innan skamms.
Gunnsteinn Gíslason og Margrét
Jónsdóttir hættu nýverið störfum
við verslunina í Norðurfirði. Edda
Hafsteinsdóttir hefur tekið við
rekstrinum en hún rak kaffihúsið
þar á síðasta sumri. Við því hefur
tekið Einar Óskar Sigurðsson, nemi
í ferðamálafræðum við HÍ. Kona
hans, Rakel Valgeirsdóttir frá Ár-
nesi 2, hefur séð um safnið og versl-
unina Kört í Árnesi síðustu sumur.
Fjölgar
í Árnes-
hreppi
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
NÝ TÆKNI, svokölluð ljósdíóðu-
tækni, gæti lækkað kostnað vegna
raflýsingar í gróðurhúsum um allt
að helming, gefi tæknin góða raun.
Þetta segir Ásbjörn Torfason,
framkvæmdastjóri Vistvænnar
orku ehf., sem áætlar að tæknin
muni verða á sambærilegu verði og
núverandi raflýsing með háþrýstum
natríumlömpum. Líftíminn verði
hins vegar miklu meiri, eða allt að
100.000 klukkustundir.
Það er gífurleg ending eða um 11
ár miðað við stöðuga notkun.
Ávinningurinn gæti orðið mikill
enda myndi helmingi minni raf-
orkuþörf spara ríkinu um 80 millj-
ónir króna á ári í formi niður-
greiddrar raf-
orku til greinar-
innar.
Spurður um
hina tæknilegu
hlið búnaðarins
segir Ásbjörn
lampana verða
vatnskælda sem
gefur einnig
möguleika á ein-
faldri þjófavörn. Þar sem lamparnir
eru vatnskældir þá verður auðvelt
að skynja þegar lampi er rofinn frá
vatnsleiðslu enda verður sírennsli
um lampana.
Stuldur á gróðurhúsalömpum til
ræktunar á kannabis gæti heyrt
sögunni til, enda skiptir ekki máli
hvort kveikt er á lömpunum eða
ekki.
Orkuþörfin er sem fyrr segir
miklu minni en í háþrýstum natrí-
umlömpum og segir Ásbjörn skýr-
inguna þá að ljósdíóðurnar lýsi á
þröngu sviði á rauða og bláa hluta
litrófsins, sem vel falli að þörfum
plantna. Því fari ekki orka í að
geisla ljósi á græna hluta litrófsins
líkt og natríumlampar geri með
þeirri orkusóun sem því fylgi.
Geta verið nær plöntunum
Þá sendi straumstýribúnaður raf-
orku til ljósdíóðulampanna í „púls-
um“ sem spari bæði orku og lengi
líftíma lampanna. Einnig sé hægt
að staðsetja lampana nær plönt-
unum en natríumlampa sem auki
enn frekar á ljósnýtnina og þar
með raforkusparnaðinn sem notk-
unin felur í sér.
Gæti lækkað orkukostnað um helming
Ljósdíóðutækni gæti dregið verulega úr rekstrarkostnaði
garðyrkjubænda og um leið skapað svigrúm til verðlækkana
Ásbjörn Torfason
HEIMILISIÐNAÐARDAGURINN var haldinn
með pompi og prakt í Árbæjarsafni í gærdag.
Þar sýndu nemendur Heimilisiðnaðarskólans
verk sín frá námskeiðum haust- og vorannar.
Um 30 námskeið eru í boði hverju sinni og
hægt að læra hvaðeina sem tengist þjóðbún-
ingagerð. Einnig sátu félagsmenn í Heimilisiðn-
aðarfélaginu í Lækjargötu 4 og Hábæ og sýndu
vinnu sína eins og hefð er komin á.
Þá var jafnframt opnuð sýning á faldbún-
ingum í Líkn. Að sögn talsmanna Heimilisiðn-
aðarfélagsins gekk dagskráin vel fyrir sig. Veð-
ur var milt og gott og fólk fjölmennti í þjóðbún-
ingum í Árbæjarsafnið til að kynna sér íslenskan
handiðnað. haa@mbl.is
Heimilisiðnaðardagurinn haldinn hátíðlegur
Morgunblaðið/Golli
Þjóðlegt um að litast í Árbæjarsafni
STEINGRÍMUR J. Sigfússon
fjármálaráðherra segir að rík-
isstjórnin stefni að því að spara
20 milljarða króna það sem eft-
ir lifir árs og síðan 150 millj-
arða 2010 til 2013.
Mikil fundahöld voru í fjár-
málaráðuneytinu í gær auk
þess sem fjármálaráðherra átti
fundi með fulltrúum vinnu-
markaðarins og öðrum vinnu-
hópum. Farið var yfir stöðu
mála og grein gerð fyrir tímaáætlunum. Stein-
grímur segir að góður andi og samstarfsvilji hafi
ríkt í viðræðunum. Um viðamikið verkefni sé að
ræða og miklu máli skipti að ná tökum á ríkisfjár-
málunum, en ekki sé hlaupið að því að ná 20 millj-
arða sparnaði á hálfu ári.
Fjármálaráðherra segir að óskað hafi verið eft-
ir fundi með stjórnarandstöðunni árla dags í dag
og síðar með fulltrúum sveitarfélaga. Í vikulok
verði tilkynnt hvernig ná eigi 20 milljarða sparn-
aði á þessu ári og síðar í mánuðinum verði lögð
fram skýrsla um sparnað upp á 170 milljónir árin
2010 til 2013.
„Til að ná þessu þurfa allir að standa saman.
Allir sem hafa einhvern snefil af ábyrgð í sam-
félaginu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, og bætir við að heildarmyndin
sé smám saman að skýrast. steinthor@mbl.is
Stjórnin ætlar að spara 170
milljarða á þremur árum
Fjármálaráðherra segir góðan anda ríkja í viðræðum við vinnumarkaðinn
Í HNOTSKURN
» Viðræðurnar snúast annars vegar umefnahags- og atvinnumálin og hins veg-
ar um ríkisfjármálin.
» Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda-stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að
allir reyni að gera sitt besta og séu að átta
sig á því hvað verkefnið sé risastórt, en rík-
isstjórnin hafi frumkvæðið og forystuna.
Gert er ráð fyrir að sparnaðartillögur til
næstu ára liggi fyrir 20. júní.
Steingrímur J.
Sigfússon
„Margir garð-
yrkjubændur
horfa fram á
framleiðslu-
stöðvun í sum-
ar vegna hækk-
andi raforku-
verðs. Ef þessi
tækni kæmist í
notkun á morg-
un gæti það
haft úrslitaþýðingu fyrir greinina,“
segir Bjarni Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands garð-
yrkjubænda, um þá þýðingu sem
ljósdíóðutæknin gæti haft fyrir at-
vinnugreinina.
„Ég veit um marga bændur sem
eru í startholunum með að stækka
framleiðslueiningar sínar en munu
ekki gera það að óbreyttri 25%
hækkun á raforkuverðinu í febrúar
síðastliðnum,“ segir Bjarni
Spurður um raforkuþáttinn í
rekstri garðyrkjubænda segir
Bjarni þá árlega verja um 500
milljónum króna í raforkukaup, þar
af fáist um 170 milljónir endur-
greiddar í formi niðurgreiðslna frá
íslenska ríkinu. Með því að lækka
jafn stóran útgjaldalið um helming
megi þannig skapa bændum sem í
mörgum tilvikum búi við lítið
hagnaðarhlutfall nýtt rekstrar-
umhverfi sem aftur skapi svigrúm
til verðlækkana.
Inntur eftir stærð greinarinnar
segir Bjarni um 900 manns starfa
í greininni á landinu öllu, að við-
bættum afleiddum störfum.
Lífsspursmál fyrir greinina
Bjarni Jónsson
KARLMAÐUR á sextugsaldri var
fluttur lífshættulega slasaður á
sjúkrahús í Reykjavík eftir að hann
keyrði út af veginum við botn Súg-
andafjarðar á sjötta tímanum í gær-
morgun. Að sögn lögreglu var mað-
urinn einn í bifreiðinni þegar slysið
varð. Hann var fluttur með sjúkra-
flugi frá Ísafirði á slysadeild Land-
spítalans í Reykjavík. Málið er í
rannsókn. haa@mbl.is
Í lífshættu