Morgunblaðið - 08.06.2009, Side 4
FULLORÐINN hnúfubakur er um
13-17 metra langur og vegur um
25-40 tonn. Veiðar á hnúfubak
við Íslandsstrendur voru al-
gengar í upphafi 20. aldar og
þeir voru friðaðir um miðja öld-
ina.
Hnúfubökum hefur fjölgað
mjög á síðustu áratugum og í
dag er Norður-Atlantshafsstofn-
inn talinn vera á bilinu 12.000
til 14.000 dýr.
Stofninn stækkar jafnt og þétt
Hvalur Hnúfubak-
ur er friðaður.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu
sætunum til Costa del Sol 9. og 16. júní í 1
eða 2 vikur. Í boði er stökktu tilboð, með eða
án fæðis, þar sem þú bókar sæti (og fæðisval-
kost) og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita
hvar þú gistir. Gríptu þetta frábæra tækifæri og
njóttu lífsins í sumarfríinu á vinsælasta sumar-
leyfisstað Íslendinga á ótrúlegum kjörum.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi /
stúdíó / íbúð í viku. Stökktu tilboð
9.júní. Brottför 16. júní kr. 5.000 auka-
lega. Aukavika kr. 20.000. Aukalega
fyrir hálft fæði í viku kr. 20.000 fyrir
fullorðna og kr. 10.000 fyrir börn.
Allra síðustu sætin!
Stökktu til
Costa del Sol
9. eða 16. júní
frá kr. 49.990 – með eða án fæðis
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
HNÚFUBAKUR flæktist í einni netatrossunni á Nunna
EA-87 frá Grímsey um helgina. Hvalurinn var dreginn
til lands af öðrum báti. Gröfur voru meðal annars not-
aðar til að koma dýrinu á land.
„Þetta var stærðarinnar skepna. Hann var örugg-
lega nálægt því að vera um átta metra langur og hann
var með rosaleg bægsli,“ segir Garðar Ólason, útgerð-
armaður í Grímsey.
Hann segir jafnframt að hvalurinn hafi verið hinn
spakasti meðan hann var dreginn að landi. „Hann blés
bara aðeins frá sér meðan við drógum hann.“
Í landi var hafist handa við að losa hnúfubakinn en
hann var nokkuð rækilega flæktur í netunum. Þegar
sagt var frá því í útvarpsfréttum að Grímseyingar
væru með hnúfubak við bryggjuna hjá sér hafði sjáv-
arútvegsráðherra samband við lögregluna á Akureyri
og bað hana að kanna málið. Hnúfubakur er enda frið-
að dýr. Grímseyingar brugðust vel við tilmælum lög-
reglu um að sleppa skepnunni. Var hvalurinn því los-
aður úr fjötrum sínum og dreginn aftur á haf út. „Hann
synti svo rólega í burtu frá okkur, það má segja að
hann hafi sloppið með skrekkinn í þetta sinn,“ segir
Garðar og hlær.
Miskunnuðu sig yfir hnúfu-
bak á sjómannadaginn
Um átta metra löng skepna
festist í færi við Grímsey
Staðfesta
óformlegar
viðræður
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„ÉG get staðfest að rektorar þess-
ara skóla hafa óformlega rætt sam-
an sín á milli um þessa hugmynd
og auðvitað hefur umræðan um há-
skólakerfið verið ofarlega á baugi,“
segir Hjálmar Helgi Ragnarsson,
rektor Listaháskólans, um hug-
mynd Ágústs Einarssonar, rektors
á Bifröst, um hugsanlega samein-
ingu Háskólans á Bifröst, Listahá-
skólans og HR.
„Við erum núna í Listaháskól-
anum að skoða skýrslurnar tvær
frá menntamálaráðuneytinu og
munum þá ákveða næstu skref.
Skólinn okkar stendur afar vel en
það er alveg sjálfsagt að skoða
aðra möguleika.“
Svava Grönfeldt, rektor Háskól-
ans í Reykjavík, staðfestir að
óformlegar viðræður milli rekt-
oranna hafi farið fram.
„Það er hægt að skoða ýmsa
möguleika. Þessir tímar eru tæki-
færi til þess að stokka upp í há-
skólakerfinu en jafnframt að
byggja á öllu því góða sem gert
hefur verið í málefnum háskólanna
á síðustu árum.“
„Byggja á því góða
sem gert hefur verið“
KARLMAÐUR á þrítugsaldri situr
nú í gæsluvarðhaldi að kröfu lög-
reglu á höfuðborgarsvæðinu vegna
gruns um að hafa átt aðild að inn-
flutningi á umtalsverðu magni af
fíkniefnum.
Maðurinn var upphaflega hand-
tekinn hinn 22. maí og hnepptur í
gæsluvarðhald til 2. júní. Það var
svo framlengt til 12. júní í þágu
rannsóknarhagsmuna. Maðurinn
kærði báða gæsluvarðhalds-
úrskurðina til Hæstaréttar. Dóm-
urinn staðfesti fyrri úrskurðinn en
hefur enn ekki tekið afstöðu til síð-
ari kæru mannsins. Lögreglan hef-
ur unnið að rannsókn málsins í
samvinnu við lögregluna á Suð-
urnesjum og tollgæsluna.
Grunur um
innflutning
UM 80 björgunarsveitarmenn leit-
uðu á laugardagskvöld að konu sem
hafði villst í þoku á Esjunni. Konan
hafði jafnframt rekist á tvo Kan-
adamenn sem einnig voru villtir.
Símasamband var við hópinn og
var afráðið að hann skyldi halda
kyrru fyrir þar til björgunarsveit-
armenn fyndu hann.
Íslendingur þaulkunnugur fjallinu
gekk fram á hópinn skömmu síðar
og fylgdi hann fólkinu niður til móts
við björgunarsveitarmenn.
haa@mbl.is
Villtust í þoku
á Esjunni
ÞESSIR vösku drengir voru við veiðar í góðu veðri á
bryggjunni á Siglufirði á dögunum. Aflinn var lítill „en
við náðum þó einum“, sögðu þeir við blaðamann Morg-
unblaðsins. Frá vinstri eru þetta Mikael Már Unnars-
son, Jóakim Birgir Andersen Ákason og Gísli Marteinn
Baldvinsson, kannski sjómenn framtíðarinnar.
VASKIR POLLAR Á SIGLUFIRÐI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
JÓN Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra, sagði í ræðu sinni í tilefni sjó-
mannadagsins í Reykjavík í gær að eitthvað
væri að, þegar menntaskólakrakkar segðu að
sjávarútvegurinn skipti gríðarlega miklu máli
fyrir íslenskt samfélag og íslenskt atvinnulíf í
framtíðinni en samt vildi aðeins lítill hluti þess-
ara krakka starfa við hann eða fara í nám sem
honum tengdist. Þessi höfuðatvinnugrein ætti
greinilega við ímyndarvandamál að stríða hjá
ungu fólki.
Sjávarútvegsráðherra lagði út frá könnun
sem Háskólinn á Akureyri lét gera hjá
menntaskólanemum og greint var frá í liðinni
viku. Hann sagði að stjórnendur í atvinnuveg-
inum hlytu að taka þessi skilaboð mjög alvar-
lega. Ein skýring gæti verið sú að þessar hörðu
deilur sem hefðu staðið meðal þjóðarinnar um
stjórn fiskveiða og ráðstöfun aflaheimilda í
meira en tvo áratugi ættu hér einhvern hlut að
máli og yllu því að ungt fólk vildi síður takast á
við verkefni og möguleika sem svo sannarlega
væru í þessari atvinnugrein. Ráðherra rifjaði
upp að hann hefði skipað vinnuhóp til þess að
fara yfir þessi mál og leggja fram valkosti til
úrbóta sem sátt gæti orðið um.
Sjávarútvegsráðherra ítrekaði mikilvægi
sjávarútvegs fyrir byggðir og atvinnulíf í land-
inu. Miklar væntingar væru við hann bundnar í
sambandi við öflun gjaldeyris og hann myndi
leggja sig allan fram við að treysta og bæta
ímynd greinarinnar þannig að höfuðatvinnu-
vegur þjóðarinnar hefði þann sess að ungu
fólki væri ekki aðeins ljóst mikilvægi hans
heldur hefði einnig löngun til þess að starfa og
takast á við þau tækifæri sem hann byði upp á.
Mikil áhætta með fyrningu
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins og stjórnarformaður Faxaflóa-
hafna, sagði í sinni ræðu að eðlilegt væri að
endurskoða kvótakerfið til að um það ríkti sátt
meðal þjóðarinnar. Umhverfi útgerðarfyrir-
tækja skapaði þeim hins vegar engar forsend-
ur til þess að takast á við þá miklu fyrningu
veiðiréttar sem ríkisstjórnin boðaði. „Sú
áhætta sem að er stefnt er gríðarleg og vegur
ekki aðeins að undirstöðum eins atvinnuvegar
heldur að undirstöðum heillar þjóðar,“ sagði
hann. Júlíus Vífill áréttaði að fyrningarleiðin
væri feigðarflan.
Bæta þarf ímynd sjávarútvegsins
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vill stuðla að því að atvinnugreinin verði eftirsótt hjá ungu fólki
Júlíus Vífill Ingvarsson, stjórnarformaður Faxaflóahafna, segir að fyrningarleiðin sé feigðarflan
Morgunblaðið/Golli
Ræða Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra.