Morgunblaðið - 08.06.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
46
31
1
05
/0
9
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
Ganga
á Hengils-
svæðið
Þriðjudaginn 9. júní verður farin fræðslu- og
gönguferð á Hengilssvæðinu. Hugað verður
að orkunni og beislun hennar, orkujarðfræði,
gróðri og sögu.
Mæting í Hellisheiðarvirkjun
við Kolviðarhól kl.19:30.
Leiðsögumenn eru Einar Gunn-
laugsson jarðfræðingur og
Guðríður Helgadóttir líffræðingur.
Dalai Lama er munkur, sem hafn-ar valdi og ofbeldi. Í rúmlega
hálfa öld hefur sjálfstæði og frelsi
Tíbets verið hans baráttumál. Mál-
flutningur hans
hefur verið ráða-
mönnum vold-
ugustu þjóðar
heims þyrnir í
augum og hvert
sem hann fer
reyna þeir að
hefta för hans og
koma í veg fyrir
að tekið verði á
móti honum. Iðu-
lega tekst þeim ætlunarverk sitt, en
einnig eru til þeir ráðamenn, sem
eru tilbúnir að láta sér þrýsting
Kínverja og hótanir í léttu rúmi
liggja.
Nú hafa kínverskir ráðamenn séðnýja leið til þess að koma höggi
á Dalai Lama. Hann er orðinn gam-
all og heilsan að sögn farin að gefa
sig. Kominn er tími til að velja
næsta Dalai Lama, þann 15. í röð-
inni. Samkvæmt hefðinni eiga nán-
ustu samstarfsmenn Dalai Lama að
leita teikna í vatni á tíbesku háslétt-
unni og bíða skilaboða guðlegrar
fjallaveru.
Dalai Lama sagði nýlega í viðtaliað ekki þyrfti að fylgja hefð-
inni þegar sá næsti yrði valinn.
Kínverski kommúnistaflokk-
urinn segir hins vegar að fylgja
verði hefðinni og telja að yfirráð
sín yfir Tíbet gefi þeim góða stöðu.
Það yrði hámark kaldhæðninnar
ef kínverski kommúnistaflokk-
urinn, sem opinberlega stendur fyr-
ir trúleysi og hefur miskunnarlaust
reynt að þurrka út tíbeska menn-
ingu, færi nú í samkeppni um valið
á Dalai Lama endurholdguðum.
Friðsamleg barátta hefur ekkiskilað Dalai Lama markmiði
sínu, en hún hefur veitt honum
áhrif, sem hann hefði aldrei náð
hefði hann beitt öðrum aðferðum.
Viðbrögð kínverskra ráðamanna
bera vitni þeirri ógn, sem þeim
stendur af hinum friðsama munki.
Dalai Lama
Ógnvaldurinn Dalai Lama
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 9 rigning Lúxemborg 17 léttskýjað Algarve 22 léttskýjað
Bolungarvík 8 skýjað Brussel 17 léttskýjað Madríd 20 léttskýjað
Akureyri 12 léttskýjað Dublin 13 skýjað Barcelona 21 léttskýjað
Egilsstaðir 12 léttskýjað Glasgow 13 léttskýjað Mallorca 23 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað London 15 léttskýjað Róm 24 léttskýjað
Nuuk 4 alskýjað París 13 skýjað Aþena 30 heiðskírt
Þórshöfn 8 léttskýjað Amsterdam 12 skúrir Winnipeg 13 alskýjað
Ósló 14 skýjað Hamborg 12 skýjað Montreal 17 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skúrir Berlín 13 skýjað New York 26 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt Vín 19 skýjað Chicago 19 alskýjað
Helsinki 11 heiðskírt Moskva 16 skúrir Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
8. júní Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.43 0,7 6.43 3,4 12.47 0,7 19.04 3,8 3:06 23:48
ÍSAFJÖRÐUR 2.51 0,5 8.32 1,8 14.41 0,5 20.55 2,1 2:02 25:02
SIGLUFJÖRÐUR 4.53 0,2 11.20 1,1 17.02 0,4 23.08 1,3 1:39 24:51
DJÚPIVOGUR 3.43 1,9 9.52 0,5 16.17 2,2 22.32 0,6 2:24 23:30
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag
Hæglætisveður, skýjað að
mestu og dálítil væta með köfl-
um í flestum landshlutum. Hiti
yfirleitt á bilinu 7 til 14 stig.
Á föstudag og laugardag
Útlit fyrir norðaustlæga átt og
skúrir víða um land. Kólnar lít-
illega.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg suðlæg eða breytileg át-
tog víða skýjað og súld af og til,
einkum um landið vestanvert.
Hiti 6 til 13 stig.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
STARFSFÓLKI innan aðildarfélaga
Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF)
hefur fækkað um fjórðung frá árinu
2007. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs
voru greidd stöðugildi innan SFF alls
um 4.500, voru nærri 5.200 um síðustu
áramót og tæplega 6.000 í lok árs
2007. Hlutfall kvenna innan SFF er
nú 63% og karlar því 37% félags-
manna.
Innan SFF eru bankar, sparisjóðir,
fjárfestingabankar, tryggingafélög,
verðbréfafyrirtæki og önnur fjár-
málafyrirtæki, alls 37 fyrirtæki.
Flestir á fertugsaldri
Tölurnar sem nú hafa verið birtar
sýna að starfsfólki fjármálafyrir-
tækja fækkaði um 13% á síðasta ári
og frá árslokum 2007 til fyrsta árs-
fjórðungs í ár nemur fækkunin nærri
fjórðungi, sem fyrr segir. Meðalaldur
karla hjá fyrirtækjunum er 39 ár og
meðalaldur kvenna 43 ár. Flestir
starfsmenn eru á aldrinum 30-39 ára,
eða 29%, 28% eru 40-49 ára, 15% á
þrítugsaldri, 20% á sextugsaldri og
aðeins 7% eldri en 60 ára.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri SFF, segir aðspurður að erfitt
sé að segja til um atvinnuhorfur innan
fjármálageirans út þetta ár. Hann
bendir á að mikil fækkun starfs-
manna á síðasta ári hafi snúið að sér-
hæfðum störfum í höfuðstöðvum
bankanna. Þar hafi kynjahlutfallið
verið nokkuð jafnt. Hann segir miklu
skipta að halda í gott starfsfólk og
viðhalda verðmætum í þekkingu þess.
Fjórðungsfækkun hjá SFF
!