Morgunblaðið - 08.06.2009, Síða 13

Morgunblaðið - 08.06.2009, Síða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009 Sjómannadagurinn Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land í gær. Að vanda tóku lands- menn almennt virkan þátt í gleðinni með hetjum hafsins, sem nutu þess að vera í faðmi fjölskyldunnar. Veðrið var misjafnt eins og gengur en á mörgum stöðum lífgaði góða veðrið enn frekar upp á góðan dag og gerði þennan 71. sjómannadag hátíðlegri og skemmtilegri. Víða var boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir unga sem aldna og var ánægjan í fyr- irrúmi. Morgunblaðið/Golli Reykjavík Rigning og þoka settu svip sinn á umhverfi hátíðarhaldanna í höfuðborginni. Fjör á hátíðisdegi sjómanna Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Stykkishólmur Kristinn Ólafur Jónsson, fyrrverandi skipstjóri, og Konráð Ragnarsson, fyrrverandi hafnarvörður, á sýningunni í Norska húsinu. Morgunblaðið/Golli Hafnarfjörður Gestum og gangandi var boðið upp á fiskisúpu við höfnina og fékk Lúðvík Geirsson bæjarstjóri, ann- ar frá hægri, súpu hjá Ingvari Viktorssyni, fyrrverandi bæjarstjóra, sem er fremst til vinstri. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Eskifjörður Fiskverkakonan Hulda Rósmundsdóttir var heiðruð og var eig- inmaðurinn, Sigtryggur Hreggviðsson, ánægður með það. Morgunblaðið/Alfons Ólafsvík Trillukarlar lýstu upp trukkadráttinn við mikinn fögnuð áhorf- enda, en þess má geta að á þriðja tug barna tók þátt í flekahlaupi. Morgunblaðið/Golli Reykjavík Hátíð hafsins er haldin í tengslum við sjó- mannadaginn og þar er gjarnan margt að sjá. Ljósmynd/Júlíus G. Ingason Vestmannaeyjar Íbúar í Eyjum fjölmenntu á hátíð- arhöldin og sumir tóku besta vininn með. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Akureyri Belgjaslagur getur reynst hin besta skemmtun en að mörgu þarf að hyggja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.