Morgunblaðið - 08.06.2009, Side 14

Morgunblaðið - 08.06.2009, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Nú er aðkomastmynd á það hvað þurfi að gera til að komast út úr þeim vanda, sem hrun bankakerfisins í haust hafði í för með sér. Eins og kemur fram í máli Steingríms J. Sigfússonar í frétt í Morgunblaðinu í dag er stefnt að því að ná sparnaði upp á 20 milljarða króna á þessu ári og síðan 150 millj- arða til viðbótar á árunum 2010 til 2113. Í gær hélt fjár- málaráðherra fundi með að- ilum vinnumarkaðarins og öðrum vinnuhópum. Í dag á að funda með stjórnarandstöð- unni og sveitarstjórnum. Um tíma leit út fyrir að við- ræður aðila vinnumarkaðarins um stöðugleika væru að fara út um þúfur, en það er nýr tónn hjá Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, í Morg- unblaðinu í dag þegar hann segir: „Til þess að ná þessu þurfa allir að standa saman. Allir sem hafa einhvern snefil af ábyrgð í samfélaginu.“ Gert er ráð fyrir að sjálfar sparnaðartillögurnar liggi fyrir 20. júní og á næstu dög- um og vikum mun væntanlega skýrast hvaða útreikningar liggja að baki þeim sparnaði, sem ætlunin er að ná fram. Slíkur samdráttur hefur orðið í íslensku samfélagi eftir hrunið að ljóst er að tekjustofnar ríkis og sveitarfélaga munu dragast saman. Nú er búið að koma því þannig fyrir að ekki þarf að byrja að borga af skuldum vegna Icesave-reikninganna fyrr en eftir sjö ár, en ýmsar aðrar skuldbindingar lenda á ríkinu vegna hrunsins og þær bíða ekki. Hins vegar er nú mikilvæg- ast að sameinast um að ná settum markmiðum. Það þýð- ir ekki að hefja eigi stjórnvöld yfir gagnrýni. Það á að hefja verkefnið yfir flokkadrætti. Sátt næst aðeins með opnum umræðum og uppbyggilegri gagnrýni allra, sem hlut eiga að máli. Sömuleiðis þarf að leggja spilin á borðið fyrir þjóðina því að hún mun þegar upp er staðið bera hitann og þungann af uppbyggingunni. Auðveldara verður að vinna að settum markmiðum og sætta sig við niðurskurð ef heildarmyndin er skýr – hvernig sem hún lítur út – og nú virðist hún loksins vera að skýrast. Mikilvægt að sam- einast um sett markmið } Myndin skýrist Getur einhversvarað því hver afstaða Jóns Bjarnasonar, sjáv- arútvegsráðherra, er til fiskveiði- stjórnunarkerfis Íslendinga? Ráðherrann getur augljóslega ekki svarað því sjálfur, eins og kom berlega á daginn í viðtali Orra Páls Ormarssonar við hann hér í Morgunblaðinu á laugardag. Svör ráðherrans við ágæt- um spurningum blaðamanns- ins voru efnislega svo rýr að lesandinn er engu nær eftir lestur viðtalsins, um það hvaða skoðun hann hefur á nú- verandi fiskveiðistjórnunar- kerfi, eða fyrir hvaða breyt- ingum ráðherrann vill beita sér á kerfinu. Skoðanaleysi ráðherrans er bæði hróplegt og pínlegt. „Sjávarútvegsráðherra vill gera breytingar á fiskveiði- stjórnunarkerfinu. Hann segir að annað væri í hrópandi ósamræmi við öll skilaboð sem berast frá þjóðinni,“ segir í upphafi viðtalsins við ráð- herrann, en ráðherrann hefur engar skoðanir á því hvaða breytingar eigi að gera. Ráðherrann hefur ákveðið að skipa starfshóp sem mun hafa það verkefni að skilgreina álita- mál sem uppi eru varðandi stjórn fiskveiða og nýt- ingu auðlindar- innar, sem eigi að ljúka störf- um 1. nóvember nk. sam- kvæmt frétt Morgunblaðsins. Aðild að hópnum eiga fulltrú- ar allra flokka á Alþingi og hagsmunaaðilar í sjávarút- vegi. „Ég er ekki að biðja um margar álitsgerðir heldur eina heildarniðurstöðu,“ segir ráð- herrann. Hann útlistar hins vegar ekki hvernig hann gerir sér í hugarlund að slíkur starfshópur skili einni „heild- arniðurstöðu“. Ráðherrann vísar því sömu- leiðis til starfshópsins að kom- ast að niðurstöðu hvað varðar fyrningarleiðina sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála. Hann hefur enga afstöðu í þeim efn- um fremur en öðrum: „Það er verkefni hópsins að fara yfir þessi mál í heild,“ er hið efn- isrýra svar ráðherrans við spurningu um innköllun á aflaheimildum í áföngum. Eru þetta svörin sem ráðherra sjávarútvegsmála ætlar að bjóða þjóðinni upp á næstu fjögur árin? Skoðanaleysi ráð- herrans er bæði hróplegt og pínlegt} Lýst eftir afstöðu ráðherra G rafin andabringa, kjúklingalifr- arkæfa, hvalatartar, sviða- pressa og foie gras, hrein- dýrapaté frá Húsavík, kryddjurtasalat og dillolía, birki- og hindberjasósa. Og þetta var bara forrétturinn. Skötuselur og þorskur í aðalrétt. Krafturinn úr Jöklinum. Í eldhúsinu á Hótel Búðum er heimamað- urinn Pétur Þórðarson, sonur Siggu í Fjöru- húsinu, sem er rómað fyrir fiskisúpu. Bragð af hafinu, landinu og nytjum þess. Íslendingar eru sér meðvitandi um arf- leifðina í bókmenntunum. En arfleifðin felst ekki síður í lærdómi kynslóðanna, sem sótt hafa sjóinn og nytjað landið mann fram af manni, í þúsund ár. Nú er svo komið að aðrar þjóðir öfunda Íslendinga af sjávarútvegnum. Ekki að ástæðulausu, því hér á landi greiðir sjávar- útvegurinn með sér, en innan Evrópusambandsins er sjávarútvegur niðurgreiddur, fiskurinn víða ofveiddur og umgengni við auðlindina stórlega ábótavant – til dæmis er brottkast lögbundið. Víst er greitt með íslenskum landbúnaði, en það er ekkert frábrugðið því sem gengur og gerist annars staðar í Evrópu, til dæmis í Frakklandi, þar sem skilyrði eru þó mun betri til ræktunar en hér á landi. Og Frakk- ar leggja mikið upp úr þeirri arfleifð sem skapast hefur í nytjum landsins. Þeir hreykja sér af vínum, ostum, pylsum, jafn- vel fiskinum. Allt samgróið franskri þjóð- arvitund. Hvergi á íslensk þjóðarvitund dýpri ræt- ur en á Snæfellsnesi. Þar sameinast útgerð og landbúnaður og ferðamennska í náttúru eins og hún verður fegurst. Ég botna eiginlega ekkert í því, að í stað þess að byggja undir rótgróið atvinnulífið standi til að grafa undan því með fyrning- arleið – eins og hrunið á fjármálamörkuðum, hrap á fiskverði og möguleg aðild að Evrópusamband- inu sé ekki næg áskorun. Þeir útgerðarmenn eru eftir í greininni sem ekki seldu, margir þeirra hafa lagt allt að veði til þess að kaupa aflaheimildir; það streymir saltur sjór um æðarnar, og þeir sækja björg í úfinn mar. Sem gestir Péturs á Hótel Búðum og Siggu í Fjöru- húsinu njóta góðs af. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Bragðið af Íslandi Pistill Grundvallarspurning um mann og náttúru FRÉTTASKÝRING Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is H elstu hluthafar í ORF Líftækni, sem sótt hefur um leyfi til til- raunaútiræktunar á erfðabreyttu byggi, eru Valiant Fjárfestingar með 25%, Landbúnaðarháskóli Íslands með hátt í 12%, Björn Lárus Örvar og Einar Mäntylä með 5% hvor og svo á fjórða tug minni hluthafa. Búið er að leggja á annan milljarð króna í fyrirtækið og því um miklar upp- hæðir að tefla. Á sama tíma eru m.a. rannsóknir LbhÍ notaðar til rök- stuðnings með umsókninni. Því er spurt, er mark takandi á vís- indaráðgjöf hluthafa í sjálfu fyr- irtækinu? Þessa gagnrýni segir Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF, ósanngjarna og nánast árás á starfs- heiður vísindamanna sem komu að rannsóknum LbhÍ. „Þeir hafa engra hagsmuna að gæta og eiga ekkert í fyrirtækinu. Það sem skiptir þá mestu máli er að ekki falli blettur á þeirra fagþekkingu.“ Eignarhlut- urinn sé þannig tilkominn að við upphaf verkefnisins, árið 2001, hafi það verið framkvæmt á rannsókn- arstofu skólans. Sú þjónusta og kostnaður sem hann innti af hendi hafi verið metinn til eignar í fyr- irtækinu. Síðan þá hafi skólinn ekki lagt til meira fé og hlutur hans stöð- ugt minnkað. „Jú, við hefðum kosið annað eignarhald og að skólinn kæmi kannski með öðrum hætti að málinu,“ segir Björn. Hins vegar sé erfitt að byggja upp nýtt þekking- arfyrirtæki án nokkurrar aðkomu háskóla á Íslandi. Þetta sé því afleið- ing þeirra aðstæðna sem fyrirtæk- inu voru búnar í upphafi. Einnig er gagnrýnt að íslensk lög- gjöf um erfðabreyttar lífverur sé úr- elt. Tilskipun ESB um erfðabreyttar lífverur frá 2001 hefur enn ekki ver- ið lögfest hér, en frumvarp þess efn- is er nú til meðferðar á Alþingi. Björn segir ORF starfa eftir gild- andi reglum hverju sinni, en hin nýja tilskipun muni ekki breyta miklu gagnvart fyrirtækinu. Þar sé fyrst og fremst hert á reglum um markaðsleyfi og sett inn stíft áhættumat fyrir veitingu þeirra. Með markaðsleyfum á hann við leyfi til að nota erfðabreyttar plöntur í fóður og matvæli. Það er ekki til- gangurinn hjá ORF, heldur fram- leiðsla próteina fyrir lyfjagerð og iðnaðarnot. Þess ber þó að geta að hið nýja frumvarp bætir sérstökum kafla við lög um erfðabreyttar lífverur, sem gerir auknar kröfur til Umhverf- isstofnunar um að upplýsa almenn- ing um leyfisveitingar. Hvað má eiginlega í ESB? Hér er komið að öðru álitamáli. Sagt er að ESB hafi aldrei leyft úti- ræktun erfðabreyttra lyfja- eða iðn- aðarplantna til framleiðslu fyrir markað. Aðeins ein gerð maísplöntu sé leyfð til slíks, en sjö Evrópulönd hafi nú þegar bannað hana. Þarna segir Björn að blandað sé saman ólíkum hlutum. Markaðsleyfi séu allt annað en það sem ORF sæk- ist eftir. Á markaðsleyfi sé útsæði plöntunar falt hverjum þeim sem vilji rækta hana til matvælafram- leiðslu. Slíkt sé vissulega bannað víða og aðeins leyft með maís í ESB. Hins vegar hafi 104 tilraunaleyfi eins og það sem ORF sækist eftir verið veitt í ESB, þar sem hin nýja tilskipun er í gildi, á þessu ári. Vefur framkvæmdastjórnar ESB staðfestir þetta. Þar sést að fjöldi leyfa hefur verið veittur á árinu, flest vegna maís en einnig vegna byggs, kartaflna, sykurrófna, bóm- ullar og fleiri tegunda. Morgunblaðið/Jim Smart Þörf umræða Opinn kynningarfundur verður haldinn á Grand hótel á morgun, þriðjudag, klukkan eitt. Þar verða sjónarmið í málinu kynnt. Erfðabreyttum lífverum má ekki sleppa út í umhverfið nema með fyllstu varúð. Hér er tæpt á álita- efnum um ræktun ORF Líftækni á erfðabreyttu byggi, sem snúa að öðru en sjálfri erfðatækninni. SVOKÖLLUÐ varúðarregla, í Ríó- yfirlýsingunni um umhverfismál, segir að þegar vísindaleg óvissa sé til staðar um afleiðingar fram- kvæmda fyrir umhverfið skuli náttúran njóta vafans. Nú er á Al- þingi verið að bæta þessu inn í lög um erfðabreyttar lífverur. Þetta þýðir í raun, samkvæmt Vísindavef Háskóla Íslands, að ekki sé talið nauðsynlegt að sanna með óyggjandi hætti að náttúran beri skaða af, heldur liggi sönn- unarbyrðin frekar hjá fram- kvæmdaraðila, í þessu tilfelli ORF Líftækni, sem eigi að sýna fram á að framkvæmdin valdi ekki skaða. Þetta er mikilvægt atriði, sem styður kröfur um upplýsta al- menna umræðu um mál eins og þetta, áður en ákvörðun er tekin. Þetta þýðir ekki að hafna beri um- sókninni. En gild rök má færa fyr- ir því að þessi umræða hafi enn ekki farið fram á Íslandi, þótt málefni erfðabreyttra lífvera séu vel þekkt í afmörkuðum hópum. Sú umræða væri þáttur í að ná sátt um svona mál til framtíðar. AÐGÁT SKAL HÖFÐ ››

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.