Morgunblaðið - 08.06.2009, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.06.2009, Qupperneq 17
Umræðan 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009 FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA SÚRT BAKFLÆÐI?... ...Nú færðu Losec mups* án lyfseðils í næsta apóteki! Nýtt! annt um líf og líðan Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töflur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakflæði. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfiðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafla ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfið eftir 14 daga stöðuga notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töflurnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töflurnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva (t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/ uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009. *Omeprazol Skattskrár vegna álagningar 2008 sem og virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins 2007 Skrárnar liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi, hjá umboðsmönnum- skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju skattumdæmi dagana 8. til 19. júní 2009 að báðum dögum meðtöldum. Framlagning skattskrár er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003 og 46. gr. laga nr. 50/1988. 8. júní 2009 Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Rósa Helga Ingólfsdóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Hanna Björnsdóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson. Á ÍSLANDI ríkir neyðarástand. Þetta ástand er ekki sjálfskapað og hverfur því ekki sjálft, við þurfum að vinna bug á því. Við höfum sog- ast inn í stöðu þar sem allt okkar fjármagn fer í að greiða niður lán sem hafa tvöfaldast á skömmum tíma. Við höfum ekkert milli hand- anna til að lifa á, neysla hefur dregist saman og við stöndum ráð- þrota frammi fyrir hrúgu ógreiddra reikninga. Daglega missa fjölskyldur eignir sínar, atvinnu og stolt og hafa margir flúið land í þeirri von að grasið sé grænna hinum megin. Með þessu áframhaldi munu þeir Íslendingar sem ekki láta bugast sjá fram á endalausa baráttu við arfa og illgresi. Þreytt og lúin ríf- um við upp illgresið, en í lok hvers dags sjáum við að í hvert sinn sem við rifum upp arfa með rótum, höfðu þegar tveir aðrir skotið rót- um annars staðar í garðinum. Ráð- þrota lítum við á stjórnvöld og spyrjum „Hvað er til ráða?“ Við fengjum svar ef yfirvöldin í land- inu væru ekki upptekin við að ríf- ast um hvað væri þeirra ferli fyrir bestu. Alþingi hefur gleymt heilli þjóð. Hvað er til ráða? Við sitjum í kviksyndi skulda, hægt og rólega sökkvum við í kaf. Björgunaraðgerðir skila litlum ár- angri, þeir sem rétt hafa hjálp- arhönd sitja með okkur í svaðinu eða hafa ekki bolmagn til að rífa okkur upp. Þegar IMF rétti okkur „hjálparhönd“ var í raun um bjarn- argreiða að ræða. IMF rétti poka fullan af peningum sem orsakar það að við sökkvum hraðar. Þegar stýrivextir verða ekki lækkaðir án samþykkis IMF hlýtur eitthvað að vera að. Það eina sem kom til greina var að afþakka þetta lán, en nú er réttast að skila því. Það er þó engin galdralausn að skila láni IMF, meira þarf til. Al- þingi þarf að stíga inn og með neyðarlögum festa gengi evrunnar í 90 krónum, og endurskoða á sex mánaða fresti. Reynslan sýnir að það er nær ógerlegt að stöðva mikla verðbólgu án þess að festa gengið að minnsta kosti svo lengi sem það tekur verðbólguna að hjaðna. Fast gengi gæti örvað er- lend viðskipti og fjárfestingu þar sem dregið væri úr viðskiptakostn- aði og gengisáhættu, og með því að glæða hagvöxt hömlum við verð- bólgu. Fleira þarf til  Fylgja þarf fastagengi Seðla- bankans eftir af hörku og festa það í lögum að brot gegn því fylgdu harðar refsingar. Setja á laggirnar deild innan efnahags- brotadeildar Ríkislögreglustjóra sem hefði eftirlit með að geng- islögum yrði framfylgt.  Umbreyta öllum erlendum fast- eignalánum yfir í íslenskar krón- ur með lögum. Með þessu myndu lánin lækka og fjöl- skyldur hefðu meira neyslufé milli handanna. Með aukinni neyslu aukum við hagvöxt!  Lækka vísitölu neysluverðs og festa hana með lögum í sex mán- uði í senn, auk þess að fella nið- ur verðtryggingu og ná þannig verð- bólgu niður og auka hagvöxt enn frekar.  Festa vexti af lán- um. Með því að festa vexti af lán- um í 5-7% og end- urskoða þá á 6 mánaða fresti, komum við til móts við alla þar sem greiðslubyrði af lánum lækkar. Færeyingar hafa lánað okkur 50 milljónir bandaríkjadala en meira þarf til. Við þurfum að setja til hliðar íslenska þjóðarrembinginn og falast eftir aðstoð frænda okk- ar. Ef frændþjóðir okkar eru láns- fúsar getum við tekið upp banda- ríkjadollar með lánsfé. Dollarinn er mun öflugri en evran og sést það best á krepputímum þegar doll- arinn styrkist gegn evrunni. Það er auðveldara að taka upp dollara, þar sem ekki þarf að ganga í ESB, auk þess sem við gætum tekið aft- ur upp krónuna þegar öldurnar lægir. Ekkert er því til fyrirstöðu að ganga í ESB með dollara sem gjaldmiðil. Hvað á að gera við gömlu bankana? Við sitjum uppi með skuldir gömlu bankanna. Þrátt fyrir það getum við komist hjá einhverjum á siðlegan og löglegan hátt. Fyrst þurfum við að greiða út innistæður þeirra sem áttu fé í gömlu bönk- unum. Samkvæmt tilskipun EES er lágmarkstrygging innistæðna 20.887 evrur sem Tryggingasjóður þarf að greiða út en við höfum ekkert upp úr því að greiða út innistæður að fullu. Við þurfum að skilja eins mikið af skuldum og lánum eftir í gömlu bönkunum og við getum og keyra þá í þrot. Gjaldþrot er eðlilegasta og hreinlegasta leiðin til að hreinsa skuldir. Við megum ekki færa ónýtar skuldir í nýju bankana. Þeir eru ný fyrirtæki, lítil en sterk. Með brunaútsölu á eignum gömlu bankanna getum við örvað við- skiptalíf þar sem nýir fjárfestar koma inn. Til að greiða innistæður gömlu bankanna þarf gríðarlegt fjármagn sem gæti fengist að láni frá þjóð- inni. Við getum lokað öllum lífeyr- issjóðum og nýtt fjármuni þeirra til að greiða út innistæður. Kenni- tölureikningar í Seðlabankanum yrðu stofnaðir þar sem fjármagn- inu yrði skilað, í millitíðinni greið- um við lífeyri á reikning í Seðla- bankanum. Með ofangreindum aðferðum náum við fram verðstöðnun og með samstöðu verkalýðsfélaga getum við samið um litlar launahækkanir á meðan skútan réttir sig við. Það verða ekki allir sáttir við þær aðferðir sem taldar hafa verið upp hér en þegar 99% þjóðar þurfa að borga skuldir 1% þjóðarinnar gerum við það ekki þegjandi. Skuldir þeirra eru margfalt hærri en við gætum stofnað til sjálf. Ísland, nú er að duga eða drep- ast. Ekki gefa upp öndina án þess að streitast á móti! Snúum skipinu við Eftir Sverri Garðarsson og Brynjar Valdimarsson » Þegar IMF rétti okkur „hjálp- arhönd“ var í raun um bjarnargreiða að ræða. IMF rétti poka fullan af peningum sem orsakar það að við sökkvum hraðar. Sverrir Garðarsson Sverrir er framkvæmdastjóri. Brynj- ar er eigandi Snóker og Poolstof- unnar. Brynjar Valdimarsson Sími 551 3010

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.