Morgunblaðið - 08.06.2009, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2009
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
Terminator:Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 DIGITAl B.i. 12 ára
Terminator:Salvation kl. 5:30 - 8 - 10:30 DIGITAl LÚXUS
Night at the museum 2 kl. 3:30 - 5:40 - 8 LEYFÐ
Angels and Demons kl. 5 - 6 - 8 - 9 B.i. 14 ára
Múmínálfarnir kl. 3:40 LEYFÐ
X-men Origins Wolverine kl. 3:30 - 10:20 B.i. 14 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
- H.S.,
- B.S.,
- E.E.,
- O.H.T, R’AS
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI
Sýnd kl. 3:45 og 8
Ó.H.T., Rás 2
-M.M.J., kvikmyndir.com
-T.V., - kvikmyndir.is
- S.V., MBL
Vinsælasta myndiní heiminum í dag
3 vikur
á
toppnum
Frábær ævintýra gamanmynd
í anda fyrri myndar!
Þegar ljósin slökkna
byrjar fjörið... aftur!
... og nú í stærsta safni
í heimi!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
„ Létt, notarlegt og
fjölskylduvænt
mótvægi við
hasarmyndir
sumarsins“
- S.V., MBL
Sýnd kl. 10
Frábær ævintýra gamanmynd
í anda fyrri myndar!
Sýnd kl. 5:30
ÓTRÚLEGAR NÁTTÚRULÍFSMYNDIR
Í ANDA PLANET EARTH
Sýnd 3D kl. 3:30 ísl. tal
D I G I T A L
Sýnd með
íslensku tali
-bara lúxus
Sími 553 2075
“... fínasta spennu-
mynd með flottum
hasaratriðum...”
- V.J.V., FBL
„Stórbrotinn hasar.“
-SV MBL
POWERSÝNING
KL. 10:15
Á STÆRSTA TJALDI
LANDSINS MEÐ DIGITAL
MYND OG HLJÓÐI
Sýnd kl. 5:45, 8 og 10:15 (POWERSÝNING)
Sýnd kl. 4, 7 og 10
3 vikur
á
toppnum
- S.V., MBL
-T.V., - kvikmyndir.is
-M.M.J., kvikmyndir.com
Ó.H.T., Rás 2
www.veggfodur.is
EITT mesta arkitektúr- og hönnunarverkefni utandyra
í New York-borg um árabil var vígt um helgina. Þetta
er garður, sem hannaður er þar sem svokölluð Hig-
hline lá, en Highline var uppbyggt lestarpor, fyrst reist
árið 1934 til að lyfta umferð lestakerfis borgarinnar
upp yfir götuumferðina.
Í þau þrjátíu ár sem liðin eru frá því að síðasta lestin
rann um þetta langa spor, sem liggur milli tíundu og
elleftu breiðgötu í tíu metra hæð allt frá 34. stræti til
Gansevoortstrætis, hefur villigróður hreiðrað um sig á
brautarteinunum og beggja vegna og svæðið allt verið í
niðurníðslu.
Fyrir áratug stóð til að rífa Highline, en vinasamtök
teinanna tóku sig til og fengu því framgengt að reynt
yrði að nýta svæðið fyrir borgarbúa.
Rómantík niðurníðslunnar fær
að lifa með nýjum gróðri
Arkitektar og hönnuðir hafa nú breytt ásýnd svæð-
isins svo um munar og gert það að sannkallaðri gróð-
urvin í borgarlandslaginu. Það þótti ávinningur að því
að leyfa villigróðrinum víða að halda sér, eins og
veggjakroti á nærliggjandi húsum en almenningur á nú
bæði betra með að komast um og tylla sér í notalegheit-
um með vítt útsýni yfir Hudson-ána.
Stoðir þessarar risavöxnu garðlengju eru steyptar,
en undir garðinum, á götuhæð, verða veitingahús og
kaffistofur.
Garðurinn laðar að sér nýja byggð, og hafa arkitekt-
ar á borð við Jean Nouvel, Annabelle Selldorf og Renzo
Piano verið fengnir til að hanna nýbyggingar á auðum
lóðum við garðinn.
Kostnaðurinn við verkefnið er sagður nema um það
bil andvirði 21 milljarðs íslenskra króna.
Ormur keppir við Miðgarð
Almenningsgarður á
lestarteinum í New York
LEIKRITIÐ Rómeó og Júlía í leik-
stjórn Þorleifs Arnarssonar var
frumsýnt á laugardaginn í Borg-
arleikhúsi St. Gallen í Sviss.
Verkinu var mjög vel tekið og
ætlaði fagnaðarlátunum aldrei að
linna að frumsýningu lokinni segir í
fréttatilkynningu frá Lifandi leik-
húsi. Uppsetningin var frumraun
Þorleifs á stóru sviði en setið var í
hverju einasta sæti í hinum 750
manna sal í St. Gallen. Uppselt er á
allar næstu sýningar. Gagnrýn-
endur frá virtustu leiklist-
artímaritum Þýskalands eins og
Theater der Zeit og Nachtkritik
voru á staðnum. Dómarnir sem
þegar hafa birst eru lofsamlegir og
Þorleifi m.a. hrósað fyrir hug-
myndaauðgi.
Þorleifur nemur leikstjórn í ein-
um virtasta leikstjórnarskóla í
heimi, Ernst Busch í Berlín. Hann
útskrifast í haust og verður út-
skriftarverkefni hans að leikstýra
4:48 Psychosis eftir Söruh Kane.
Vytas Narbutas og Filippía El-
ísdóttir sáu um búninga og sviðs-
mynd í Rómeó og Júlíu og ekki var
síður farið lofsamlegum orðum um
þeirra hlut í sýningunni í þeim
dómum sem hafa birst.
Leikstjórn Þorleifs
í Sviss lofsömuð
Morgunblaðið/G.Rúnar
Hugmyndaríkur Þorleifur lýkur
leikstjórnarnámi í Berlín í haust.
NÚ er haldin á mbl.is ljósmyndasamkeppni mbl.is og Canon.
Mynd vikunnar í ljósmyndasamkeppninni vikuna 31. maí til 6. júní er
„Risar hálendisins“ eftir Aðalstein Atla Guðmundsson.
Ljósmyndasamkeppnin er opin öllum áhugamönnum um ljósmyndun.
Mynd vikunnar
FJÖLSKYLDA bandaríska leik-
arans Davids Carradines segist vera í
miklu uppnámi eftir að ljósmyndir
voru birtar af líki leikarans í taílensku
dagblaði. Lögreglan telur að um
myndir frá tæknideild lögreglunnar
sé að ræða og að þeim hafi verið lekið
í fjölmiðla.
Keith Carradine, hálfbróðir leik-
arans, hefur hótað málsókn verði
brotið gegn friðhelgi einkalífs fjöl-
skyldunnar. Þá hefur hann óskað eft-
ir því að bandaríska alríkislögreglan
(FBI) rannsaki málið.
Lík Davids
Carradines fannst
í hótelherbergi í
Bangkok sl.
fimmtudag. Lög-
reglan segir að
hann hafi verið
nakinn með reipi
bundið um háls-
inn. Myndirnar
sem birtust í taí-
lenska dagblaðinu eru sagðar sýna lík
leikarans í hótelherberginu.
Dánarorsökin liggur enn ekki fyrir.
Ljósmyndum lekið
David Carradine