Morgunblaðið - 29.06.2009, Page 9

Morgunblaðið - 29.06.2009, Page 9
Vaxtalaus þjónustulán 0% vextir! í allt að 12 mánuði Þegar nauðsynlegt er að ráðast í viðhald eða viðgerðir á bíl frá HEKLU borgar sig að leita ekki langt yfir skammt. HEKLA býður nú upp á vaxtalaus lán til að standa undir kostnaði á viðgerðum*. Þannig getur þú tryggt endingu og öryggi bílsins án þess að það setji stórt strik í heimilisbókhaldið. Pantaðu tíma hjá þjónustudeildum HEKLU strax í dag í síma 590 5030. Hér tökum við á móti þínum bíl *h ám ar ks up ph æ ð á va xt al au su m gr ei ðs lu ko rt as am ni ng ie r5 00 .0 00 kr .o g lá gm ar ks up ph æ ð er kr .6 0. 00 0. Lá nt ök ug ja ld er 3% . Atvinnubílar LAUGAVEGUR 168 170-172 174 N Ó AT Ú N BRAUTARHOLT SKODA MITSUBISHI AUDI VOLKSWAGEN Laugavegi 168-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.isÞjónustuver og þjónustumóttökur eru opnar frá 8-18 alla virka daga · Pantanasími 590 5030 · thjonusta@thjonusta.is Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ORKUNÝTNI venjulegrar sól- arsellu er yfirleitt á bilinu 7-20%. Heimsmetið er um 40% en þá eru á ferð mjög flóknar sellur með 10 þunnflögum eða svo. Ég er að reyna nýjar aðferðir til að auka nýtingu sólarljóss,“ segir Róbert Magn- ússon, heiðursprófessor við Univers- ity of Texas, um eitt af rannsókn- arsviðum sínum. Viðfangsefni hans eru á sviði ljós- eindatækni á nanóskala – örstærðir upp á einn milljarðasta úr metra – við þróun örsmárra leysa, örþynna, ljóssía, efnanema, sólarsellna, auk annars, með fræðilegri nálgun og til- raunum. 300 milljónir króna í rannsóknarstofu Staðan sem Róbert var skipaður í hlaut 300 milljóna króna styrk úr tæplega 40 milljarða króna nýsköp- unarsjóði í Texas. Staðan, Texas Instruments Distinguished Univers- ity Chair in Nanoelectronics, er nefnd eftir stórfyrirtækinu Texas Instruments sem leggur til um 130 milljónir króna, eða jafn mikið og University of Texas, helsta mennta- stofnun fylkisins. Af þessu fé nýtast 300 milljónirnar strax til uppbyggingar á rannsókn- arstofu sem Róbert fer fyrir, en 260 milljónirnar sem koma frá háskól- anum og Texas Instruments nýtast hins vegar á þann veg að honum er heimilt að ráðstafa 5% þess fjár á ári, eða um 13 milljónum króna. Við þetta bætast um 78 milljónir króna í þróun rannsóknarstofunnar, auk annarra smærri styrkja til rann- sóknarstarfa. Skipað er í stöðuna til 5 ára og á Róbert kost á að sækja um að gegna henni áfram. Hann er sem fyrr segir að rannsaka leiðir til að auka orkunýtni sólarsellna með svo- kölluðum þunnflögum. „Venjulegar sólarsellur eru mjög þykkar, eða 300 míkrómetrar (0,3 millimetrar) á þykkt. Það felst margvíslegur ávinn- ingur í því að fara í 1-2 míkrómetra þykkt. Ég er að rannsaka hvernig hægt er að hanna slíkar þunnsellur og hvernig auka megi ísog eða upp- töku sólarorkunnar í þunnfilmu. Ég legg áherslu á að við erum á þessu stigi aðeins að fást við útreikninga en ný niðurstaða bendir til 60% aukningar í ísogi. Þetta gæti ef til vill skilað sér í 30% meiri raforkufram- leiðslu en í sólarsellum af eldri gerð. Tilraunir eru að fara í gang.“ Yrði bylting í lyfjaiðnaðinum Róbert og félagar hans vinna einnig að þróun nýrrar tækni fyrir lyfjaiðnaðinn. Í því skyni stofnaði Róbert fyr- irtækið Resonant Sensors Incor- porated með fyrrverandi nemanda sínum til að þróa efnanemana. „Við erum að þróa kerfi sem eru notuð í lyfjaframleiðslu. Takmark okkar er að sjá hvaða sameindir „tala saman“, ef svo má að orði kom- ast. Efnanemarnir mæla breyt- inguna sem verður þegar efni bregst við öðru efni á sértilgerðri plötu. Það fer venjulega ótrúlega mikil handa- vinna í að prófa hvaða efni virka. Þetta skýrir að hluta hvers vegna það er gífurlega dýrt að koma með eitt gott lyf á markað. Margir hafa sýnt þessu áhuga. Tæknin nýtist á öðrum sviðum og nú fyrir helgi gengum við frá styrk frá Bandarísku heilbrigðisstofnuninni (NIH) vegna krabbameinsrannsókna.“ Miklu betri og ódýrari tækni Róbert segir þróunina geta skilað miklu. „Ávinningurinn er sá að við erum með miklu betri og ódýrari tækni en það sem notast er við í dag. Við stimplum út plöturnar þar sem efna- prófunin fer fram með nanótækni, sem fæst við stærðir upp á einn milljarðasta úr metra. Þetta er nanó- prentun í stórum plötum, en hver plata er margir fersentimetrar. Kerfin eru nú á markaði með 96 og 384 eininga plötur,“ segir Róbert Magnússon rafmagnsverkfræð- ingur, sem telur University of Texas hafa sýnt sér mikinn heiður með pró- fessorsstöðunni. Prófessorsstaðan mikill heiður Ljósmynd/University of Texas, Arlington Nýsköpun Róbert rannsakar leiðir til að stórbæta orkunýtni sólarsellna. Róbert Magnússon skipaður í nýja prófessorsstöðu í nanórafmagnsfræði við University of Texas Rannsakar leiðir til að stórbæta orkunýtni sólarsellna og til að umbylta framleiðsluferlum í lyfjaiðnaði RÓBERT Magnússon lauk dokt- orsprófi í rafmagnsverkfræði frá Georgia Institute of Technology ár- ið 1976 og sneri til Íslands árið 1979 og starfaði við áætlanagerðir í sam- bandi við orkudreifingu. Hugurinn stóð hins vegar frekar til rannsókna á ljósleysitækni og rafeindatækni á örflögum og fór svo að hann leitaði aftur vestur. Hann fékk í kjölfarið tilboð frá tveimur háskólum, Virginia Tech og University of Texas, og valdi þann síðari. Þar fékk hann fasta stöðu og gegndi stöðu prófessors fram til 2001. Hjá University of Texas fékkst hann m.a. við rannsóknir á sviði ljósfræði og fann upp nýja tækni efnanema. Árið 2001 söðlaði hann um og gerðist deild- arforseti rafmagnsverkfræðideildar University of Connecticut. Árið 2007 var honum boðið að sækja um sérstaka prófessorsstöðu í Texas sem hann gegnir nú. Margir komu að umsóknarferlinu sem tók 18 mánuði. Hringnum lokað Efnanemi sem Róbert hefur þróað. Ljósmynd/University of Texas, Arlington

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.