Morgunblaðið - 29.06.2009, Page 28

Morgunblaðið - 29.06.2009, Page 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2009 SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND M EÐ ÍSLENS KU OG ENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI FLOTTASTA HASARMYND SUMARSINS Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox „STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ... EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA, ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“ T.V. - KVIKMYNDIR.IS SÝND Í KRINGLUNNI / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D POWERSÝNING KL. 7 10 DIGITAL THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 43D L 3D DIGTAL TRANSFORMERS 2 kl. 5D - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 12 TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 10:20 10 THE HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 4 - 6 L MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 10 HANNAH MONTANA kl. 3:40 L GLASTONBURY-tónleikahátíðinni lauk í gær en það voru tónleikar „yfirmannsins“ Bruce Springsteen á laugardagskvöldið sem vöktu hvað mesta lukku. Þetta er í fyrsta skipti sem bandaríski rokk- arinn kemur fram á tónleikahátíð í Bretlandi. Springsteen lék á als oddi og hoppaði m.a. niður í gryfj- una til þess að vera nær aðdáend- um sínum. Fyrr um kvöldið hafði Springsteen óvænt birst á sviði með sveitinni The Gaslight Ant- hem er lék á minnsta sviði hátíð- arinnar. Mikill spenna var fyrir síðustu tónleika hátíðarinnar en í gær komu fram Blur, Glasvegas, Nick Cave og Yeah Yeah Yeahs. Nokkr- ir tónleikar þóttu standa upp úr í ár en þar má nefna uppákomur LadyGaga, Neil Young og Flo- rence and the Machine. Rúmlega 175 þúsund manns sóttu Glastonbury í ár sem var óvenju þurr miðað við sögu hátíð- arinnar. Ekkert rigndi á laug- ardaginn og var því hvergi jafn mikið um leðju og oft hefur verið þrátt fyrir skúri á fimmtudag- og föstudag. Margir listamenn vottuðu Mich- ael Jackson virðingu sína en rapp- arinn Dizzee Rascal stýrði aðdá- endum sínum í fjöldasöng á laginu Thriller af Pyramid-sviðinu sem er það stærsta á svæðinu. Aðrir listamenn sem minntust Jackson voru Pharrell Williams, The Streets, Lily Allen og Gabriella Cilmi. Reuters Glastonbury lauk í gærkvöldi Bruce Springsteen Tók slagarana með E-Street sveit sinni, en ekki Born in the USA þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir áhorfenda. Jackson minnst En kannski ekki á fallegan hátt en popparinn var oft kallaður Wacko Jacko í bresku pressunni. Brak hljómplötur halda áframgróskumikilli útgáfu meðplötunni Rokk og róleg lögmeð DJ flugvél og geim- skip, sem er þó ekki plötusnúður held- ur listamannsnafn Steinunnar Harð- ardóttur. Á þessari sautján laga plötu hristir hún fram úr erminni músík sem væri best lýst sem öfgafullri krútt- tónlist sem fór út af sporinu og hætti skyndilega að vera krúttleg og varð ógnvekjandi og ágeng. Textarnir sækja í æskuna og fjalla um póníhesta (læsta inni í búrum), komu sumarsins og vonbrigði með lokaða ísbúð, en einnig alls kyns barnalegar en myrk- ar fantasíur um dularfulla morðingja með pípuhatta, yfirvofandi innrás geimvera eða drungalega frumskóga. (Ó)Líkindin ná lengra: Þótt rödd Steinunnar sé vissulega barnaleg þá er það á annan hátt en rödd Kristínar úr múm eða Kiru Kiru, og hún hikar ekki við að öskra þegar þess þarf; hún er eiginlega miðja vegu milli þeirra krúttstallna og Peaches. Umslagið er í sama dúr, það er handteiknað og sýnir glaðlynda stúlku við orgel ásamt herskara brosmildra dýra auk vísunar í hinn fræga breska útvarpsplötusnúð John Peel sem hælir plötunni í hví- vetna. Hér er nægur húmor. Lögin rokkuðu og rólegu væri kannski réttast að kalla skissur; fæst lögin ná tveggja mínútna markinu, hljómurinn er eins hrár og orðið get- ur, frumstæðir orgelskemmtarar (eins og er heima hjá ömmu þinni) sjá um undirleikinn í ansi mörgum lögum, og textarnir eru sérstaklega hroð- virknislegir – hér hefur það fyrsta sem komið upp í hugann verið hripað niður eða sungið beint inn. En það breytir engu; Rokk og róleg lög er fyrst og síðast uppfull af skemmti- legum hugmyndum. Oftast þegar tón- listarmenn gleyma sér við dútl og gefa það út verður útkoman herfileg, og til þess að þetta yrði verulega eigu- leg eða „góð“ plata í hefðbundnum skilningi hefði þurft ritstjórn og yf- irlegu. Hér er það aukaatriði – vissu- lega hefði um helmingur laganna mátt missa sig og það hefði verið gaman að heyra frekari úrvinnslu á sterkasta efninu – yfirleitt hrífst hlustandinn einfaldlega af sköpunargleðinni. Krútt hittir Peaches Geisladiskur DJ flugvél og geimskip – Rokk og róleg lög bbbnn ATLI BOLLASON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.