Nýtt kvennablað - 01.01.1943, Blaðsíða 6

Nýtt kvennablað - 01.01.1943, Blaðsíða 6
2 NÝTT IÍVENNABLAÐ Katrín Viðar: Menntun kvenna. (Útvarpserindi, flutt 19. júní 1942.) Þegar örlagaríkasta stund finnsku þjóðarinn- ar rann upp, eflir að liún liafði lieimt aftur sjálfstæði sitt, flutti forseti finnsku kvenfélag- anna ávarp til þjóðar sinnar og komst þá svo að orði: „Finnskar konur hafa fengið svo góða niennt un og gott uppeldi, að þær geta tekið að sér íiverskonar störf á alvörutímum.“ Hvernig er menntun islenzkra kvenna? Ég spyr ykkur, íslenzku konur: Eruð þið á- nægðar með þá menntun, sem þið liafið fengið? Ég lief talað við íslenzkar konur af ölluiri stéttum og ólíkum þjóðmálaskoðunum, sem liafa saknað þess sárt, að þær liöfðu ekki i upp- vexti sínum orðið þeirrar menntunar aðnjót- andi, sem gerði þeim ldeift að annast sjálf- stæða vinnu, ef þær þyrftu á að lialda. Þegar rætt liefur verið um menntun kvenna, hefur því oft verið horið við, að konumar giftusl og þyrftu þvi ekki á annari fræðslu eða starfs- hæfi að halda en þeirri, sem lyti að stjórn lieim- ilisins, hinni svo kölluðu húsmæðrafræðslu. Ég ætla ekki að ræða um húsmæðrafræðsluna i kvöld, því að til allra heilla er nú kominn góður skriður á það mál, hæði víðsvegar um land og hér í Reykjavik. Húsmæðraskólar eru nú víða starfandi, en á öðrum stöðum í undirhúningi. Enginn má heldur skilja orð mín þannig, að ég meti störf konunnar á heimilinu lítils. Kon- an er einmitt oft svo ofhlaðin störfum, að hún verður jafnvel að ganga sjúk til vinnu, ef svo her undir. Á litlu nýstofnuðu heimili eru störfin venju- lega ekki ofvaxin konunni. En eins og iðnfyrir- tæki eða verzlun þarf að fjölga starfsfólki sínu eftir því sem fyrirtækið vex, eins þarf að auka starfsfólk heimilisins eftir því sem fjölskyldan stækkar og heimilið verður umfangsmeira. Þeir erfiðleikar, sem nú eru á að fá næga lijálp til heimilisstarfa, híða úrlausnar, og verð- ur að vinna að því máli eins og hverju öðru þjóðfélagsvandamáli, þvi að konur geta ekki, fremur en karlmenn, unnið svo að segja livíldar- laust nótl og dag, án þess að híða tjón, andlegl (>g likamlegt. Hver kona hlýtur að unna heimili sínu, og ósk hennar verður ávallt sú, að vinna heimili sínu af öllum mætti. Ég hef oft lieyrt talað um það i alvöru, að konur séu lakari húsmæður á heimilum sín- um, ef þær hafi stundað nám i hærri skólum, eða unnið önnur störf utan lieimilisins, áðui en þær giftust, En við þurfum ekki annað en líta inn á mörg heimili á íslandi, til að sannfær- ast um hvilík fásinna þetta er. Því að fjöldi kvenna, sem liafa lokið námi í hærri skólum, unnið skrifstofustörf, eða einliver önnur störf utan heimilisins, þar til þær giftust, veita for- stöðu mörgum stærstu og fullkomnustu lieim- ilum þessa lands, með mestu rausn og prýði, og hef ég aldrei heyrl nokkurn mann kvarta um vankunnáttu þeirra eða vanrækslu á heimilum þeirra. Tilgangur minn með þessum orðum mínuni er sá, að livetja íslenzlcar meyjar og konur til meira náms, hæði hóklegs og verklegs. Fornt máltæki segir: „Bókvitið verður ekki i askana látið“, og sýnir það glöggt við liver ytri kjör andlegur þroski liefir ált að húa hér á landi, og er það harla merkilegt um þjóð, sem á jafn dýrmætar gullaldarbókmenntir og is- lenzka þjóðin. En tímarnir breytast og mennirnir með, og ég vil lialda því fram, að þetta sé breytt orðið, þvi að nú er menntun aflgjafi framlaks og dáða. Því segi ég: Konur, lærið eilthvað nytsamt, meðan þið eruð ungar, svo að þið getið orðið sjálfhjarga seinna, ef lífið krefst þess af ykkur. Það er algert ábyrgðarleysi, að láta ekki stúlk- ur jafnt og drengi læra einliver störf sér til lífs- viðurværis. Kona er oft dæmd til hinna grimm- ustu örlaga, vegna ríkjandi tómlætis um at- vinnumál liennar, þótt hún hafi jafnan rétt við karlmenn. Kona er oft neydd til að sjá sér og hörnum sínum farljorða meiri hluta ævi sinnar, og eí liún kann ekki neilt slarf, er það oft það sama og hún og börnin séu borin ósjálfbjarga út á gaddinn. Það þarf þó ekki að vera vegna þess, að liana vanti hæfileika, gáfur eða þrek til vinnu,

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.