Nýtt kvennablað - 01.01.1943, Blaðsíða 14

Nýtt kvennablað - 01.01.1943, Blaðsíða 14
10 NÝTT KVENNABLAÐ undir þeirri ábyrgð, seni á þeim hefir livílt, sem hrautryðjendum. Þær liafa gert það þann- ig, að þráfaldlega haffa komið fram tillögur um að liafa Menntaskólann eingöngu fyrir pilta og stofna sérstakan kvennaskóla. Þetta sýnir átakanlega, hve kvenfólkið hefir haft litinn skilning á ])eim byltingum, sem eru að eiga sér stað, og á þeirri baráttu, sem ])að beyir fyrir frelsi sinu. Þið megið ekki láta erfðasyndir ykkar eyði- legja ykkur eins og þær stúlkur, sem á undan ykkar eru komnar. Þið munið cf til vill, að Tómas Guðmundsson sagði í kvæðinu, sem birtist i síðasta Skólablaði: Og enginn fær til æðri tignar Iiafizt né öðlast dýrri rétt en þann að gela væn/^t af sjálfum sér og krafizt að saga landsins blessi hann. Þessi orð getið þið eins vel tekið ykkur í munn og við skólabræður ykkar, ef þið skiljið köllun ykkar og horfið með bjartsýni og bar- áttuhug til framtíðarinnar. Slik stefnubreyt- ing mundi ekki aðeins landi og þjóð til bless- unar, heldur sjálfum ykkur til manndómsauka og félagslífi skólans til þrifa.“ Jóhannes Nordal. Eftirvænting. Um haustsvalar nætur ég hlusta hvort hamingjan eigi ekki leið um götuna — og guði á gluggann minn svo gisti hún hjá mér um skeið. Á vorin ég horfi til hafsins og heiðanna blánandi slóð. — Kemur gæfan með golunni að austan eða í gærdagsins purpuraglóð? M e 1 k o r k a. Þú ert ekki það sem þú hugsar að þú sért, en það, sem þú hugsar, ert þú. n. n. Guðbjörg Jónsdóttir, Broddanesi: Herltorg á Heiíi (Brot) Vonbrigði Bærinn IIoll stendur í fjallshlíðinni, neðan til i dalnum. Hann dregur nafn af holti, sem er skannnt fyrir sunnan túnið, holtið skyggit' á veginn, sem liggur framan úr dalnum og ofan i sveitina. Fyrir sunnan lioltið skiptas! vegirnir, liggur þá önnur gatan heim að Holti, en hin ofan á þjóðveginn. Það er hráslagalegur haustdagur. Norðan- stormurinn strýkur hrjúft um vanga vinnu- mannanna í Holti; þeir eru að smala heim kindunum til þess að taka frá sláturfé, og líka til þess að mjólka ærnar sem búið etr að færa frá. Baðslofan í Holli er þokkaleg, nýbyggð, öll undir skarsúð. Gluggar á þekju, nema einn i suðurenda, þar er stafngluggi og ber hann góða birtu um herbergið, sem er snoturt og vel um gengið. Ilúsið er opið svo að sést fram í bað- stofuna. Inn í þessu liúsi sitja þær Guðríður húsfreyja og Álfheiður dóttir Iiennar. Hús- freyjan prjónar sokk en dóttirin saumar. Báð ar virðast hafa liugann við störfin, en hver veit, Iivort svo er. Hugur og hönd vinna ekki ætíð að því sama og æskan og ellin eiga ekki ætíð samleið. Unga stúlkan stendur við og við upp og lítur út um gluggann, hún sér bleik- fölva haustsins í hlíðarbrekkunum og hrörn- unarmerki á öllu. En það er ekki það sem hún festir Iiugann við, nú, á ævinnar vori. Hún er að hugsa um unga manninn, sem hún hefir gefið hjarta sitt og á svo margar sælustundii með. En þó er ekki sólfar um öll þau vona- lönd; undarlegt að lífið skuli eklci vera ský- Jaus heiðríkja meðan maður er ungur. Hún veit, að móður hennar geðjast ekki að þessum ráðahag. En livað finnur hún að .Tónasi? Að hann er hara vinnumaður, hugsar liún. En ])á að láta hann verða óðalshónda! Þau pabbi og mamma eiga sjálf jörðina sem þau búa á. Ekki vantar Jónas dugnaðinn og ráðdeild- ina, það viðurkennir mamma. En það er ættin hans, sem mömmu líkar ekki. — Ég ætla nu ekki að giftast allri ættinni! Hún hló að þess- ari fáránlegu liugsun.

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.