Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Qupperneq 3

Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Qupperneq 3
NYTT KVENNABLAD 11. árgangur. 3. tbl., marz 1950. Ætli mnrgir fái skilið, hvernig ásigkomulagi þeirrar mannveru er háttað, sem hefur verið dauð árum saman, en er svo skyndilega vakin til lífs á ný, vakin upp frá dauðum? — Mér finnst, að minnsta kosti, að ég geti skilið það. Var Lazarus ef til vill vakinn upp frá dauðum á þennan hátt, þótt frásögn guðspjallsins sé á annan veg? Hafði hann misst ráð og ræntt, verið ónæmur fyrir áhrifum, lokaður inni i búri, svo að hann naut hvorki þess að sjá morgunroðann á hvelfingu himins, né sólina rísa gullbjarta og glitra á fannhvítum fjalltindum? Hver getur svarað því? — Og hver fær skilið þann, er hefur frá slíkri reynslu að segja? — Mannabörn vitið þið, hve mikið sú jörð, er við byggjum, befur að bjóða af fegurð og yndi? Hafið þið látið hug- ann dvelja við það? Hugsið ykkur, að standa í sporum þess manns, er aldrei á æfinni hefði séð sólina — og sæi nú uppkomu sólar í fyrsta sinni! A veröldin nokkuð til, er jafnast á við þá sjón? — Hve fjölmargir eru þeir, er hafa komið auga á þetta á undan mér? Þeir eru vafalaust ekki töl- Um teljandi. Ég vissi það einnig áður, en nú hef ég skilið það til fullnustu. — Menn tignuðu þig til forna, lífgjafi alls er lifir og anda dregur. Á Öllum öldum hafa þeir dýækað þig í ljóðum sín- um. Sólarljóðin eru óteljandi. „Eldur er beztur með ýta sonum og sólarsýn". stendur í Hávamálum. Hálærðir menn hafa bent á þetta í ræðu og riti. Útvarpserindi er flutt, sólarljóð lesin. „Hann lætur sína sól upp renna, jafnt vfir vonda og góða“, segir bók bókanna, sem svo hef- ur verið nefnd — og „Indælt er ljósið, og ljúft er fyrir. augun að horfa á sólina.“ — Rveðið hef- NÝTT KVENNABLAÐ ur verið um sólina vafalaust á flestum eða öll- um tungumálum og á ýmsa lund. íslenzku skáld- in og íslendingar hafa beygt kné sín fyrir henni alla tíð frá dögum Þorkels Mána og fram á okk- ar daga. Surnir hafa beðið hana að dvelja hjá sér, eða óskað þess, að hún vildi standa kyrr. Listaskáldið góða bað landa sína að gleðjast, ef þeir sæju sólskinsblett. í heiði. Hann nefnir sól- ina „guðs auga“, eins og reyndar margir hafa gert, og blessar hana aftur og aftur. Stjórnmála- maðurinn og skáldið, fyrsti ráðlierra íslands, fær ekki orða bundizt né útmálað tilfinningar sín- ar. Hann svo að segja hrópar upp, er hann hefur dásamað sólina: „Himneskt er að 1 ifa 1 “ Alþýðu- maðurinn sagði: „En gangirðu undir gjörist kalt, þá mætur þ:g líka allt“. Æðsti prestur eða biskup viðreisnar tímans á 19. öld segir: „Hvað- boðar nýjárs blessuð sól, — hún boðar náttúrunn- ar jól." Söngvasvanur 20. aldarinnar álítur, að Jregar sólin felur sig bak við skýin, þá gráti guð og guðs augað yfir }>ví að mennirnir elska myrkr- ið me'ra en ljósið. Þannig mætti halda áfram svo að segja í það óendanlega. Skáldspekingurinn rnikli lýkur einunr kafla leinhvers ódauðlegasta ljóðs síns tneð þessum orð- um: — Voldug og hljóð reis verkmannasól yf- ir múranna eggjum." Eru það ekki líka menn starfsins er helzt sjá sólina rísa? Meninirnir við orfið og plóginn, fjár- hirðar og fiskimenn. Sjómennirnir, sem bera að minnsta kosti nú þyngstu byrðarnar hjá íslenzkri þjóð á sínurn hraustu herðum! Forn-íslendingar gáfu sólinni mörg nöfn og fögur: Sól, eygló, sunna, glóey, fagrahvel. líkn- skin, röðull og ljósfari o. fl. Er undarlegt þó að sá, er nýlega hefur verið reistur upp frá dauðum krjúpi í lötning og ' . 1

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.