Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Blaðsíða 11

Nýtt kvennablað - 01.03.1950, Blaðsíða 11
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN dans- ar fólkið, ungir og gamlir. Hjá frændþjóðunum dansar það inn í skóginn og út úr skóginum aftur, út á bersvæði, stórar flatneskjur, þar slær það upp hring með því að taka allt höndum saman, og það er annar sá stærsti hringur sem við höfum séð. Sjóndeildar- hringurinn lítið eitt stærri. Þarna rifjar það árlega upp þjóðdans- ana. íslendingar mættu læra af frændþjóðunum að skemmta sér sinn jjjóðhátíðardag. 1 Reykja- vík byrjar fólkið ekki að dansa fyrr en kl. 10 að kvöldi. Sýnist okkur að dansinn ælti að hefjast, ekki seinna en kl. 3—4. Og helzt ættum við að fá íþróttavöllinn til afnota. Við horfum á íþróttir vikulega, og oftar, mikinn hluta ársins. íþróttamenn lileinkuðu eér vissulega daginn, um tíma, einir. En allt er breytingunum háð. Vissulega væri yndislegt að þeir kæmu í heimsókn í sínum fallegu húningum og sýndu eitt- livert eitt afrek á hverju vori. En á þjóðhátíðardaginn eiga allir að skemmta, taka þátt í skemmtun- inni, ekki hara að horfa á. Það gerum við hina dagana. I Veggteppið má sauma í einum lit, en annars trén og gras grænt og fólkið í litklæðum, rauðum, bláum, gulum. — Stærð: 256X 108 spor. • GENGISFELLING. Minni krónu mjög til hróss, menn ei fella hana, af því ég hef innanbrjósts alla peningana. • ÞEGAR SÉRA PÉTUR PRÉDIKAÐI. Inn ég hefði ekki sótt auðlegð sálu minni, en gaman hefði á gluggann þótt að ga'gjast einu sinni. Kona. NÝTT KVENNABLAÐ 9

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.