Nýtt kvennablað - 01.02.1954, Síða 3
NYTT
KVENNABLAD
15. árgangur.
Frú Steinunn S'grí'Sur Magnúsdóttir er fædd á Gils-
bakka í Borgarfirði 10. nóv. 1894. Foreldrar henn-
ar voru liinn þjóðkunni merkisprestur og alþingis-
maður séra Magnús Andrésson og kona hans Sigríð-
ur Pétursdóttir Sivertsen bónda í Höfn í Melasveit.
Hún var hálfsystir Sigurðar prófessor Sivertsen en
dóttir Sigríðar Þorsteinsdóttur prests í Reykholti
Ilelgasonar hins mikla glæsimennis er Jónas orti eftir
hið fræga kvæði — Hvarmaskúrir harmurinn sári —.
Móðir Péturs í Höfn en langamma biskupsfrúarinn-
ar var Guðrún Guðmundsdóttir systir Helga biskups
Thordersen.
Frú Steinunn giftist frænda sínum séra Ásmundi
Guðmundssyni frá Reykholti 27 júní 1915. Hún var
prest'-kona í Stykkishólmi um nokkurra ára skeið,
síðan tíu ár skólastjórafrú á Eiðum og gat sér hinn
bezta orðstír.
Síðan 1928 hefur maður hennar verið prófessor í
guðfræði við Háskóla íslands, unz hann var kjörinn
biskup. Þau eiga sjö böm öll uppkomin.
Eins og sjá má af ofanrituðu er frú Steinunn Magn-
úsdóttir ættstór kona og hefur af hendi leyst mikið og
veglegt starf, en auk þess er hún falleg kona, ungleg,
og ekki aðeins tiginborin heldur líka tíguleg og ástúð-
I prr
Ljúfmennska herra biskupsins, Ásmundar Guð-
mundssonar er alkunn, og ekki síður en talað er oft
um hjónasvip, mætti líkja saman viðrnóti og gerð bisk-
upshiónanna.
Guðbjörg frá Broddanesi segir í síðustu bók sinni
frá dagstund er hún átti i fylgd með biskupnum, þá
Ásm. Guðmundssyni prófessor við Háskóla íslands.
Leyfum við okkur að taka upp kafla úr frásögn henn-
2. tbl. febr. 1954.
Frú Stoinunn Magnúsdóttir.
ar: „Ég gat ekkert annað sagt en þetta: „Góða (það
er frú Guðrún Erlings), er það ekki of mikið í borið
að biðja einn prófessorinn að sýna mér Háskólann?
En henni fannst það ekki. Nokkru fyrir klukkan tvö
um daginn kemur prófessor Ásmundur til þess að taka
mig með sér í þessa ferð, og frú Guðrún sagði við mig
á eftir, að sér hefði þótt reglulega vænt um þegar hún
sá okkur ganga saman niður götuna. En þó hefur henni
ekki dotlið í hug að þessi ferð mundi hafa eins 'gleði-
ríkar afloiðingar fyrir mig og raun hefur á orðið.
Auðvitað þótti mér gaman að sjá Háskólann, þó að ég
hafi ekki vit á að meta þvílík listaverk og þar getur
að líta. En mér þótti samt miklu skemmtilegra að tala
við þennan göfuga leiðsögumann minn, og jafnvel nú
í myrkri skuggadalsins vitja mín bjartar minningar frá
.þessuin sólríka degi. Auðvitað á ómenntuð sveitakona
enga samleið með lærðum manni í þessa orðs fyllstu
merkingu, en það er hægt að hjálpa grasinu til að
gróa, jafnvel á öræfum, og það gerði þessi veglyndi
maður.“
Það er einmitt veglyndið, sem sérstaklega auðkennir
biskupshjónin, herra Ásmund Guðmundsson og frú
Steinunni, og hefur biskupsfrúin þannig alltaf verið
til fyrirmyndar.
NÝTT KVENNABLAÐ
1