Nýtt kvennablað - 01.02.1954, Blaðsíða 15
¦«**-^3^**W^'V?'L!*'«»,"J-;«
KARTÖFLUR
Kartöflur eru mikilvægasta matjurtin, segir Helga
Sigurðardóttir og auðugar af C-vitamíni. — Til þess
að fullnægja C-vitamínþörfinni, ætti hver maður að
borða minnst 400—600 gr. af kartöflum á dag. Við
verðum að venja okkur á að sjóða kartöflur tvisvar
á dag og spara enga fyrirhöfn á því sviði. Heitar, soðn-
ar kartöflur með smjöri, eru herramannsmatur. Kar-
kartöflu-salat og kartöflustappa eru kongafæða með
smurðu brauði og kjötáskurði. Eftir annað eins upp-
skeru sumar sem s.l. ár, þegar loksins nóg er til af
kartöflum megum við sízt gleyma ágæti þeirra. Þriggja
til fjögurra mánaða gömul, eiga börnin að byrja aS
borSa kartöflur og ætíS síSan.
Það hefur verið tekið sem dæmi upp á hápunkt van-
þekkingar í eldhússtörfum, að kunna ekki að sjóða
kartöflur. — Stúlkan skolaSi þær undir vatnskrana án
þess aS hirSa um þó sandur og musk væri neðst í pott-
inum og sauð svo allt saman. — Það ætti að vera
vandalaust að hella kartöflunum í vaskinn og mjög
fljótlegt aS bursta þær og renna á þær köldu vatni.
Setja þær síSan í hreinan pott. Sumir vilja borða
hýSiS.
Daglega notum við þessa kartöflurétti:
KARTÖFLUSTAPPA
1 kg. kartöflur, 14 1 mjólk, salt og pipar.
Bezt er að velja stórar kartöflur og afhýða þær hrá-
ar. SjóSa þær, en salta ekki í pottinn. Þegar þær eru
soSnar er vatninu hellt af og þær látnar rjúka. Stapp-
aðar meS sleif. SjóSandi mjólkinni bætt í, fyrst ör-
NÝTT KVENNABLAÐ ¦ Ajgreidsla: Fjblnhveg 7 i Reykja
Tí^llSi
Fallegir
ullartaus-
kjólar.
lítið, en svo meir og meir þar til hún er búin. Fínt salt
og pipar sett eftir smekk. Sykur, þeir sem það vilja.
KARTÖFLUSALAT
1 kg. kartöflur, 100 gr. smjörlíki, 2 laukar,
ly^ dl. vatn, 2—3 skeiðar edik, pipar, salt, sykur.
Kartöflurnar soðnar, afhýddar og skornar í sneiðar.
Smjörlíkið sett á pönnu og laukurinn skorinn í þunnar
sneiðar steiktur í smjörinu. Vatnið þá sett út í
smátt og smátt og kryddið, pipar, sykur og salt eftir
smekk. Kartöflusneiðarnar síðast. Blandast vel saman
með því að hrista pönnuna. Þegar kartöflurnar eru
orðnar heitar, er salatið sett á fat og farið að borSa.
KARTÖFLU-TVÍBÖKUR
300 gr. soðnar kartöflur, 300 gr. hveiti. 6 teskeiðar
lyftiduft, iy2 teskeið salt, \y2 teskeið sykur, 60 gr.
smjörlíki, \y2 dl. mjólk.
Þegar búiS er aS saxa kartöflurnár er öllu blandáð
saman. Smjörlíkið mulið út í og vætt í með mjólkinni
og deigið hnoðað. Búnar til aflangar lengjur, þær
skornar í smá búta, sem velt er milli handanna í kúlur.
Látnar á smurða plötu. Pikkaðar. Bakaðar. Skornar
sundur kaldar, og þurrkaðar eins og tvíbökur.
•
Sagt er, að hafi menn ætlað að grafa í haug Kórmaks
skálds, yrðu menn alltaf frá að hverfa vegna býsna,
sem þá hafi sézt. Annað hvort hafi sjórinn sýnzt ganga
á land eða Melstaðskirkja tekið að loga.
•
Einn maður getur yfirleitt aldrei skilið annan mann
eins og hann er, hversu náin kynni sem hann hefur af
honum. — E. Ó.S.
vík - Sími 2740 ¦ Ritstj. og ábm.: Gudrún Stejánsd. - Borgarprent