Nýtt kvennablað - 01.02.1954, Qupperneq 15

Nýtt kvennablað - 01.02.1954, Qupperneq 15
Tágliami Fallegir ullartaus- kjólar. KARTÖFLUR Kartöflur eru mikilvægasta matjurtin, segir Helga Sigurðardóttir og auðugar af C-vitamíni. — Til þess að fullnægja C-vitamínþörfinni, ætti hver maður að borða minnst 400—600 gr. af kartöflum á dag. Við verðum að venja okkur á að sjóða kartöflur tvisvar á dag og spara enga fyrirhöfn á því sviði. Heitar, soðn- ar kartöflur með smjöri, eru herramannsmatur. Kar- kartöflu-salat og kartöflustappa eru kongafæða með smurðu brauði og kjötáskurði. Eftir annað eins upp- skeru sumar sem s.l. ár, þegar loksins nóg er til af kartöflum megum við sízt gleyma ágæti þeirra. Þriggja til fjögurra mánaða gömul, eiga börnin að byrja að borða kartöflur og ætíð síðan. Það hefur verið tekið sem dæmi upp á hápunkt van- þekkingar í eldhússtörfum, að kunna ekki að sjóða kartöflur. — Stúlkan skolaði þær undir vatnskrana án þess að hirða um þó sandur og musk væri neðst í pott- inum og sauð svo allt saman. — Það ætti að vera vandalaust að hella kartöflunum í vaskinn og mjög fljótlegt að bursta þær og renna á þær köldu vatni. Setja þær síðan í hreinan pott. Sumir vilja borða hýðið. Daiglega notum viS þessa harlöflurétti: KARTÖFLUSTAPPA 1 kg. kartöflur, t/4 1 mjólk, salt og pipar. Bezt er að velja stórar kartöflur og afhýða þær hrá- ar. Sjóða þær, en salta ekki í pottinn. Þegar þær eru soðnar er vatninu hellt af og þær látnar rjúka. Stapp- aðar með sleif. Sjóðandi mjólkinni bætt í, fyrst ör- lítið, en svo meir og meir þar til hún er búin. Fínt salt og pipar sett eftir smekk. Sykur, þeir sem það vilja. KARTÖFLUSALAT 1 kg. kartöflur, 100 gr. smjörlíki, 2 laukar, lí/4 dl. vatn, 2—-3 skeiðar edik, pipar, salt, sykur. Kartöflurnar soðnar, afhýddar og skornar í sneiðar. Smjörlíkið sett á pönnu og Iaukurinn skorinn í þunnar sneiðar steiktur í smjörinu. Vatnið þá sett út í smátt og smátt og kryddið, pipar, sykur og salt eftir smekk. Kartöflusneiðarnar síðast. Blandast vel saman með því að hrista pönnuna. Þegar kartöflurnar eru orðnar heitar, er salatið sett á fat og farið að borða. KARTÖFLU-TVÍBÖKUR 300 gr. soðnar kartöflur, 300 gr. hveiti. 6 teskeiðar lyftiduft, ll/á teskeið salt, iy2 teskeið sykur, 60 gr. smjörlíki, iy2 dl. mjólk. Þegar búið er að saxa kartöflurnár er öllu blandað saman. Smjörlíkið mulið út í og vætt í með mjólkinni og deigið hnoðað. Búnar til aflangar lengjur, þær skornar í smá búta, sem velt er milli handanna í kúlur. Látnar á smurða plötu. Pikkaðar. Bakaðar. Skornaf sundur kaldar, og þurrkaðar eins og tvíbökur. ★ Sagt er, að hafi menn ætlað að grafa í haug Kórmaks skálds, yrðu menn alltaf frá að hverfa vegna hýsna, sem þá hafi sézt. Annað hvort hafi sjórinn sýnzt ganga á land eða Melstaðskirkja tekið að loga. ★ Einn maður getur yfirleitt aldrei skilið annan mann eins og hann er, hversu náin kynni sem hann hefur af honum. — E. Ó.S. NÝTT KVENNABLAÐ ■ Afgreiösla: Fjölnisveg 7 í Beykjavík - Sími 2740 - Iiitstj. og ábm.: Guörún Stcjúnsd. - Borgarprent

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.