Nýtt kvennablað - 01.02.1954, Qupperneq 3

Nýtt kvennablað - 01.02.1954, Qupperneq 3
NYTT KVENNABLAD 15. árgangur. Frú Steinunn S'grí'Sur Magnúsdóttir er fædd á Gils- bakka í Borgarfirði 10. nóv. 1894. Foreldrar henn- ar voru liinn þjóðkunni merkisprestur og alþingis- maður séra Magnús Andrésson og kona hans Sigríð- ur Pétursdóttir Sivertsen bónda í Höfn í Melasveit. Hún var hálfsystir Sigurðar prófessor Sivertsen en dóttir Sigríðar Þorsteinsdóttur prests í Reykholti Ilelgasonar hins mikla glæsimennis er Jónas orti eftir hið fræga kvæði — Hvarmaskúrir harmurinn sári —. Móðir Péturs í Höfn en langamma biskupsfrúarinn- ar var Guðrún Guðmundsdóttir systir Helga biskups Thordersen. Frú Steinunn giftist frænda sínum séra Ásmundi Guðmundssyni frá Reykholti 27 júní 1915. Hún var prest'-kona í Stykkishólmi um nokkurra ára skeið, síðan tíu ár skólastjórafrú á Eiðum og gat sér hinn bezta orðstír. Síðan 1928 hefur maður hennar verið prófessor í guðfræði við Háskóla íslands, unz hann var kjörinn biskup. Þau eiga sjö böm öll uppkomin. Eins og sjá má af ofanrituðu er frú Steinunn Magn- úsdóttir ættstór kona og hefur af hendi leyst mikið og veglegt starf, en auk þess er hún falleg kona, ungleg, og ekki aðeins tiginborin heldur líka tíguleg og ástúð- I prr Ljúfmennska herra biskupsins, Ásmundar Guð- mundssonar er alkunn, og ekki síður en talað er oft um hjónasvip, mætti líkja saman viðrnóti og gerð bisk- upshiónanna. Guðbjörg frá Broddanesi segir í síðustu bók sinni frá dagstund er hún átti i fylgd með biskupnum, þá Ásm. Guðmundssyni prófessor við Háskóla íslands. Leyfum við okkur að taka upp kafla úr frásögn henn- 2. tbl. febr. 1954. Frú Stoinunn Magnúsdóttir. ar: „Ég gat ekkert annað sagt en þetta: „Góða (það er frú Guðrún Erlings), er það ekki of mikið í borið að biðja einn prófessorinn að sýna mér Háskólann? En henni fannst það ekki. Nokkru fyrir klukkan tvö um daginn kemur prófessor Ásmundur til þess að taka mig með sér í þessa ferð, og frú Guðrún sagði við mig á eftir, að sér hefði þótt reglulega vænt um þegar hún sá okkur ganga saman niður götuna. En þó hefur henni ekki dotlið í hug að þessi ferð mundi hafa eins 'gleði- ríkar afloiðingar fyrir mig og raun hefur á orðið. Auðvitað þótti mér gaman að sjá Háskólann, þó að ég hafi ekki vit á að meta þvílík listaverk og þar getur að líta. En mér þótti samt miklu skemmtilegra að tala við þennan göfuga leiðsögumann minn, og jafnvel nú í myrkri skuggadalsins vitja mín bjartar minningar frá .þessuin sólríka degi. Auðvitað á ómenntuð sveitakona enga samleið með lærðum manni í þessa orðs fyllstu merkingu, en það er hægt að hjálpa grasinu til að gróa, jafnvel á öræfum, og það gerði þessi veglyndi maður.“ Það er einmitt veglyndið, sem sérstaklega auðkennir biskupshjónin, herra Ásmund Guðmundsson og frú Steinunni, og hefur biskupsfrúin þannig alltaf verið til fyrirmyndar. NÝTT KVENNABLAÐ 1

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.