Nýtt kvennablað - 01.01.1955, Blaðsíða 3

Nýtt kvennablað - 01.01.1955, Blaðsíða 3
NYTT KVENNABLAD 16. árgangur. 1. tbl. jan. 1955. Anna frá Moldnúpi: Pílagrímsferð til grafar Nightingale og Stoney-Cross Framh. Ég gekk snemma til sængur minnar í Lyndhurst, því að þar virtist mér ekki neitt vera til fyrir mig aS stytta stundirnar við, eftir að dimma tók. Rúmið fannst mér heldur kalt fyrir mitt íslenzka blóð og getur það hljóm- að dálítið kynlega í eyrum. Kuldinn, ásamt því að ég háttaði fyrr en vant var, varð til þess, að ég sofnaði ekki fyrr en seint og síðar meir. Það munaði líka minnstu, aö ég væri hálf sneypuleg loksins, þegar ég allra manna seinust af þeim, sem í húsinu gistu, drattaðist ofan til morgunverðar. Utan við herbergisdyr mínar stóð stór kanna með vatni, sem eitt sinn hafði verið heitt og mér hafði verið ætlað til þess að lauga minn synduga kropp úr, um leið og ég klædd- ist. Auðvitað hafði þá um leið verið drepið ofur hægt á dyr mínar, að enskum sið, en ég hafði þá verið svo langt inni á löndum svenfs og drauma, að ég hafði enga hug- mynd um, að neitt þvílíkt hefði átt sér stað. Ég hafði það þó af að vera setzt að borðinu, áður en allir aðrir hurfu á brott. En sat svo ein eftir og raðaði í mig ágæt- lega kjarngóðum morgunverði. Það mundi líka koma sér fyrir mig, sem ætlaði að rölta fótgangandi allan daginn. Áður en ég fór, varð ég að rita nafn mitt í gestabók- ina, og það sem meira var, umsögn um það, hvernig mér hefði líkað vistin. Þar sem ég sá að allir, sem á undan mér vóru burt gengnir, luku upp einum munni um ákjósanlega aðbúð, kunni ég ekki við að bendla umkvörtun um kulda við mitt íslenzka þjóðerni, svo að ég át bara klausuna upp eftir hinum gestunum, að allt hefði verið upp á það ákjósanlegasta. Þegar ég kom út, sá ég, að ég hafði sofið fram á þann fegursta og unaðslegasta dag, sem Guð getur gefið í septembermánuði. Það blakti ekki hár á höfði, og hvergi sást eitt skýskaf á lofti. Mér fannst ég vera mesta hamingjubarn þessarar dauðlegu jarðar, sem svo títt og oft skipti skini og skrúum meðal barna sinna. Lundhurst er aðeins smá bær með eitthvað um 2000 Arma og írú King. Myndin er úr búkinni. A6t og demantar. íbúa. Eiginlega er hún eins konar hrossaræktunarstöð brezka ríkisins. Mikill fjöldi smáhrossa, sem Englend- ingar kalla „ponny“ ganga sjálfala í New-Forest (nýja skógi) umhverfis Lyndhurst. Ekki er mér grunlaust um að New-Forest ponnarnir, sem orðlagðir eru um allt

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.