Nýtt kvennablað - 01.01.1955, Blaðsíða 14

Nýtt kvennablað - 01.01.1955, Blaðsíða 14
var orSin fokreið áður en Jónas lauk máli sínu. „Allt af ert þú eins með ógerðarháttinn ,eins og það sé ekki alvanalegt að bláfátæktir foreldrar verði fegin að koma börnum sínum í sveit, þar sem þau hafa meira og betra að borða.“ „Það var nóg handa henni að borða heima,“ sagði hann. „Þú þarft bara alltaf að vera eitthvað að sletta þér fram í hvað gerist á okkar heimili, sem aldrei verður til annars en ills eins. Ég vildi óska að þú hættir því algerlega." — Framh. ★ KONUR, SEM GÁFU UT Á SÍÐASTLIÐNU ÁRI: Elínborg Lárusdóttir: Merkar konur. Guðrún frá Lundi: Tengdadóttirin. Þórunn Elfa Magnúsdóttir: Sambýlisfólk. Anna frá Moldnúpi: Ást og demantar. Rannveig Tómasdóttir: Fjarlæg lönd og framandi þjóðir. Margrét Jónsdóttir: Todda kveður Island. Ragnheiður Jónsdóttir: Eg á gull að gjalda og bama- og unglingabók: Dóra í dag. Svana Dun: Töfrastaf- urinn. Oddný Guðmundsdóttir: Á því herrans ári. 11 i^i NÝTT KVENNABLAÐ jlytur útsölukonum sínum hvarvetna á landinu margfaldar þakkir og biður þeim og kaupendunum, einum og sér- hverjum blessunar á nýja árinu, ___________________________________ Bakstur. KÚRENUKÖKUR 100 gr. smjör eSa smjörlíki. 100 gr. sykur. 1 egg. 135 gr. hveiti. 3 eggjahvítur. 100 gr. kúrenur. ó Úr bréfum. Við höfum enn lifað jólahátíð, sameiginlega fæð- ingarhátíð, þegar ekki er ský á lofti. Móðurinni er bjargað og augasteinninn okkar í heiminn1 borinn. Jól- in eru því í sjálfu sér óviðjafnanlegur fögnuður. Ein- hver kvartaði um, að það vantaði hjartnæmari blæ á undirbúning og komu jólanna, gerði þá athugasemd að þetta líkist „tombó'lu41 Já, því ekki það, hlutaveltu, þar sem ekkert núll er, heldur allir ánægðir með sinn drátt. Viðkvæmni erum við gripin, er sungið er erindið: „Sofðu unga ástin mín.“ Við njótum söngsins. Hugs- unin um að barninu var kastað í fossinn á næsta augnabliki, má ekki grípa inn í. Við þolum ekki sífellt stríð, þess vegna gaf guð okkur jól. Og Nýársdagurinn er runninn upp. Þessi hreini dag- ur, og hann er liðinn. Nú tökum við aftur til starfa af innri þörf fyrir virkan dag. FRÁ KARLMANNI: Ég hef unnið samtíða stúlku (22 ára, ógiftri), er hafði 4,500.00 kr. á mánuði, lét hún karla, er höfðu minni laun, allt niður í 1.800.00 kr. borga fyrir sig á skemmtunum, veitingar, o.fl. Ég held að kvenrétt- indi ættu erindi til þessarar stúlku. Hún er heldur ekkert eins dæmi. SVARIÐ ÞESSU UNGU STÚLKUR. Smjör og sykur hrært saman og eggið í, þá sigtað hveitið. 3 eggjahíturnar stífþeyttar síðast hrærðar í i’ igið. Deiginu strokið þunnt yfir smurða plötu og kú- renunum stráð yfir. Bakað Ijósbrúnt. Skorið í ferkanta meðan það er heitt. Þetta er hæfilegt í ca. 60 kökur. Matur. SÍLDARRÉTTUR: Síldin afvötnuð unz hún er mátu- lega sölt. Hryggdregin og skorin í bita. Þá sett sín sneiðin af hverju á fat. Sneið af soðinni kartöflu, röðbeðusneið, síldarstykki, sneið af hráum lauk, sneið af sultaðri agurku (skorin langsum). Smáttsaraðri steinselju stráð yfir. Litlu áður en það er borið fram (5 mín.), svo sett yfir fatið samanblandað: teskeið af þurrkuðu enzku sinnepi, örlítið fínt salt (framan á hnífsoddi), eins örlítill pipar, 1 matsk. púðursykur, 4 matsk. olía, 2 matsk. edik. FYLLT KÁLHÖFUÐ með steikarafgangi, þykk, brún sósa. — Takið y?tu blöðin sem heilegust af. Skerið eins og lok af kálhausnum og holið hann innan. Sjóða hann síðan til hálfs. Taka hann þá og setja ketið í smáskorið blandað þykku sósunni, lokið sett á og blöð- in, sem tekin voru af í fyrstu. Utan um þetta allt hnýtt hreinu klæði og soðið áfrarn unz kálið er soð- ið. Borið fram í heilu lagi og sundur skornar gulræt- ur settar í kring til prýðis. Þunn, brún sósa með. NÝTT KVENNABLAÐ - AfgreiHsla: Fjölnisveg 7 í Reykjavík - Sími 2740 - Ritstj. og ábm.: Guörún Stefánsd. - Borgarprent

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.