Nýtt kvennablað - 01.01.1955, Blaðsíða 5

Nýtt kvennablað - 01.01.1955, Blaðsíða 5
Tandamálið mikla Það var snemma morguns. Við fengum okkur göngu um Arnarhólstúnið, vinur minn og ég. Það var vor i lofti og ilmur í morgunblænum. Öldurnar dottuðu út á sundunum, og tíbráin titraði yfir eyjunum. Við vorum í bezta skapi, okkur fannst tilveran brosa við okkur. Það var líkast því, að náttúran tjaldaði sínu fegursta og bezta þennan morgun. „í raun og veru er lífið dásamlegt,“ sagði vinur minn. Ég var rétt að því komin að samþykkja það, en í stað þess þagði ég og starði stjörfum augum fram hjá honum. „Líttu á þetta þarna,“ sagði ég loks, þeg- ar ég gat eitthvað sagt. „Hvað er það, sem ég á að sjá?“ spurði hann. „Þetta þarna,“ endurtók ég, „þessa vesalinga, sem þarna liggja. Þarna hafa þeir verið í nótt.“ „Þetta eru „rón- arnir“ úr Hafnarstræti,“ sagði liann. „Þetta eru menn,“ sagði ég. Ég fann ekki lengur vor í loftinu, eða ilm í blænum, ég heyrði heldur enga töfratóna frá hörpu vorsins, aðeins hroturnar í meðbræðrum mínum, sem lágu þarna undir garðinum. Þarna var þeirra nætur- staður. Þeir voru þrír, tveir af þeim voru skólausir, og sá þriðji berfættur. Óhrein föt og úfið hár, uppmáluð eymd og volæði. Þetta var það, sem ég sá. Hvað get- og fögur, gömul steinkirkja, þetta var Emery-Down- kirkja. Kyrrlát var hún og heilög með sínum ævagömlu, marglitu, fremur litlu keramik gluggum. Er hún því nær éina gamla kirkjan, sem fengið hefur að halda sín- um gömlu listrænu gluggum alveg ómenguðum. Nafna- bók var í kirkjunni og um leið og ég reit nafn mitt þar, duttu mér í hug orð Steingríms, þar sem hann segir: „En helzt til víða held ég, að mitt heiti væri skráð.“ Þetta var nú þriðja kirkjan, sem ég skráði lieiti mitt í, á þessari pílagrímsgöngu. Þarna lá nú þorpið fyrir neðan í djúpri friðsælli hvos, umlukt á alla vegu af stórum laufríkum trjám. Sýndust allar viðartegundir dafna þarna mjög vel í skjólinu, sem hæðirnar veiltu á 3 vegu, aðeins var skarð móti vestur átt, og um það lá aðal vegurinn til Sloney- Cross. Það eina, sem mig vantaði í alsæluna þennan morg- un var það, að ég hafði ekki fengið neitt kaffi til þess að hreyfa blóðið á göngunni. Mér fannst alveg upp- lagt að bæta úr því hér í þessari paradís friðarins. Framh. um við gert fyrir þá, sem svona illa erú komnir? spurði ég. Já! hvað getum við gert? Það er spurningin, svaraði vinur minn. (Já) Hvað getum við gert? spyrja svo margir og allir vita að eitthvað þarf að gera. 1 því sambandi dettur mér þá fyrst í hug, hversu margir verða úti í lífinu, vegna kulda, kærleiksleysis og eigingirni ann- arra? Ungur piltur, sem byrjaður var að drekka, trú- lofaðist góðri stúlku og hét því að verða reglusamur á ný. Um þetta leyti veiktist móðir hans og varð að fara á sjúkrahús, en áður hafði hún útvegað syninum skipsrúm á togara, og sagt skipstjóranum jafnframt, að hún væri í þann veginn að fara frá heimilinu vegna sjúkleika. Hún vissi ekki annað en að syninum væri borgið, með því að atvinnan væri framundan, en hvað skeSur? Eftir eina veiðiferð er pilturinn settur í land vegna þess eins, að hann hafði lítið sár á hendi, þeg- ar hann var ráðinn á skipið og hafði það ýfst upp við sjóvolkið og gat hann því tæplega notið sín við störf- in, og þar sem eldri maður og vanari vildi fá skips- rúm var drengnum sagt upp starfi. Þá var ekkert fram- undan annað en atvinnuleysi, heimilið sama sem lok- að, því ekki gat faðirinn bæði sinnt sínum störfum og séð um matarlagningu, þvott og ræstingu. Nú var voðinn vís. Pilturinn lenti á ný út í óreglu, og þær fréttir er móðir hans fékk af honum,\urðu henni síður en svo til heilsubótar. Þess má geta að þetta atvik gerðist ekki i Reykjavík. Nú vil ég spyrja. Fór skipstjórinn rétt að þarna? Ég segi nei! Að vísu er ekki nema eðlilegt að þeir verði að keppast eftir sem duglegustum mönnum til starfa á skipin, og þessi umgetni piltur var viðurkenndur duglegur burtséð frá sárJnu á hendi hans. Það rétta hefði verið að láta hann vera í landi á meðan skipið færi út í næstu ferð, og taka hann svo aftur, er sárið væri gróið, úr því að ekkert var annað til fyrirstöðu. Þctta er aðeins eitt dæmi um kærleiksleysi og síngirni mannanna, hversu þeir eldri og þroskaðri verða oft til þess að hrinda hin- um yngri og óreyndari út af sporinu, í stað þess að rétta honum bróðurhönd í kristilegum kærleika. Við vitum, að atvinnu- og aðgerðarleysi er eyðilegging fyrir hvern starfhæfan fullþroska mann. Hvað þá fyrir unglingana. Það er til nokkuð, sem heitir samábyrgd, og hvar er hennar frekar þörf en á uppeldis- og sál- gæzlusviðinu. Það er ekki óalgengt að heyra talað um NÝTT KVENNABLAÐ 3

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.