Morgunblaðið - 16.07.2009, Blaðsíða 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
3
7 2 4
1 6
4 8 5 6
9 6 1 5
6 7
5 1 7 2
4
9 4 8 3 1 5
2 6
6
8 4 2
3 8 2
5
7 4 9
3 5 1
1 9
6 8 2 7
3
8 6
1 9 2 4 7
4 7 1
2 4 7 6
5 3 2
4 8
5 7 1
2 1
2 1 6 9 3 8 5 7 4
3 8 5 2 4 7 9 1 6
9 4 7 5 6 1 8 2 3
5 7 8 6 1 3 4 9 2
1 2 3 8 9 4 7 6 5
4 6 9 7 5 2 3 8 1
7 9 4 1 2 5 6 3 8
8 3 2 4 7 6 1 5 9
6 5 1 3 8 9 2 4 7
1 9 8 7 3 2 6 4 5
6 4 7 5 1 9 3 2 8
5 2 3 8 6 4 7 1 9
9 1 6 2 7 5 4 8 3
8 7 2 4 9 3 5 6 1
3 5 4 1 8 6 9 7 2
2 6 9 3 4 1 8 5 7
4 8 1 9 5 7 2 3 6
7 3 5 6 2 8 1 9 4
4 7 8 1 3 2 9 5 6
6 1 3 5 7 9 4 8 2
9 2 5 8 4 6 1 3 7
2 4 7 6 9 8 5 1 3
1 8 6 3 5 7 2 4 9
5 3 9 4 2 1 7 6 8
7 5 4 2 8 3 6 9 1
8 9 1 7 6 4 3 2 5
3 6 2 9 1 5 8 7 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 16. júlí,
197. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Sjá, hann kemur í skýj-
unum og hvert auga mun sjá hann,
jafnvel þeir sem stungu hann, og allar
kynkvíslir jarðarinnar munu kveina yf-
ir honum. Vissulega, amen. (Opb. 1, 7.)
Víkverji er svo lánsamur að búa ílíflegu hverfi, hvar er skrautleg
flóra manna og kvenna, hunda og
katta. Og merkilegt nokk, allar lifa
skepnurnar í sátt og samlyndi, bæði
menn og dýr. Stundum kann Vík-
verji jafnvel ívið betur við ferfæt-
lingana, einkum kettina, sem halda
honum oft félagsskap en eru aldrei
ósammála honum, svara aldrei til
baka, gera engum neitt nema gott
eitt.
x x x
En Víkverji er ekki svo viss um aðallir séu sammála honum um
ágæti nábýlis við ferfætlingana. Það
á að minnsta kosti ekki við um konu
eina sem Víkverji mun hér eftir kalla
dráparann með steinhjartað.
x x x
Víkverji var á leið heim úr vinnueitt síðdegið og ók fram á
krakkahóp sem var að stumra yfir
einhverju á götunni. Þegar betur var
að gáð lá þar einn hverfisvinurinn
óvígur eftir miskunnarlausa drápar-
ann. Alblóðugur og illa farinn lá
svarti vinurinn í götunni, hjálpar-
vana. Augun biðjandi.
Krakkarnir tjáðu Víkverja að
kona nokkur hefði keyrt yfir svarta
vininn og ekki nóg með það. Hún lét
sig hverfa án þess að gæta að, skildi
köttinn eftir í andarslitrunum. Hafði
ekki fyrir því að kalla eftir hjálp svo
binda mætti endi á þjáningar dýrs-
ins.
x x x
Víkverji hefur þá trú að þeir semeru vondir við dýrin, líkt og
dráparinn með hjartað úr steini, séu
mannleysur. Beri takmarkaða um-
hyggju fyrir öðrum.
x x x
Nóg er af börnum í hverfi Vík-verja og konan kaldlynda ein
fjölmargra sem ekur eins og vitleys-
ingur innan um ungviðið. Í þetta
sinn var það svarti vinur Víkverja
sem konan kom fyrir kattarnef. En
verður hún svo heppin næst þegar
hún brunar um íbúðahverfin?
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kunnátta til
handanna, 8 regnýr-
ingur, 9 hermenn, 10
mánaðar, 11 taka aftur,
13 skelfur, 15 sverðs, 18
táta, 21 verkfæri, 22
andlát, 23 skyldmennið,
24 svangar.
Lóðrétt | 2 andróður, 3
kjarklausa, 4 logi, 5
veiðarfærið, 6 guðir, 7 á
litinn, 12 hreinn, 14
greinir, 15 hár, 16 stirð-
lyndu, 17 sársauka, 18
hrúga upp, 19 bera sök-
um, 20 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hnusa, 4 höfug, 7 ylgja, 8 kúgar, 9 let, 11 körg,
13 grói, 14 ernir, 15 loft, 17 ósar, 20 óða, 22 fátæk, 23
pakki, 24 ræðum, 25 rósin.
Lóðrétt: 1 hnykk, 2 uggur, 3 aðal, 4 hökt, 5 fagur, 6
gargi, 10 efnuð, 12 get, 13 gró, 15 lofar, 16 fátíð, 18
sekks, 19 reisn, 20 ókum, 21 apar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 Rf6 2. c4 c5 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. d4 cxd4 6. Dxd4 Rxc3 7.
Dxc3 Bf5 8. g3 Rd7 9. Bd2 Hc8 10.
Dd4 Db6 11. Bg2 e5 12. Dxb6 axb6
13. O-O Be7 14. Bc3 Be6 15. Rxe5
Hxc3 16. Rxd7 Hc2 17. Rxb6 Hxb2
18. Rd5 Bd6 19. e3 O-O 20. Hfb1
Hxb1+ 21. Hxb1 Ha8 22. Hb6 Ha6
23. Hb2 g5 24. Rf6+ Kh8 25. Re4
Be5 26. Hb5 f6
Staðan kom upp á 2. minning-
armóti Svens Johannessen sem lauk
fyrir skömmu í Osló í Noregi. Sig-
urvegari mótsins, norski stórmeist-
arinn Jon Ludvig Hammer (2566),
hafði hvítt gegn landa sínum Andr-
eas G. Moen (2353). 27. Rxg5! Bxa2
28. Bxb7 Bc4 29. Bxa6! Bxb5 30.
Rf7+ Kg7 31. Rxe5 og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Í réttum takti.
Norður
♠K73
♥D96
♦ÁK7
♣9654
Vestur Austur
♠D1064 ♠G98
♥73 ♥542
♦943 ♦DG85
♣ÁKG10 ♣D82
Suður
♠Á52
♥ÁKG108
♦1062
♣73
Suður spilar 4♥.
Með níu slagi, klippt og skorið,
hefði verið góður sigur í sögnum að ná
þremur gröndum. En því er ekki að
heilsa. Samningurinn er 4♥ og ein-
hvern veginn þarf að galdra fram tí-
unda slaginn. Vestur tekur ♣Á-K og
spilar ♣G í þriðja slag á drottningu
austurs.
Nú er rétti tíminn til að taka pásu
og teikna. Hvað þarf að koma til? Jú,
ef vestur á hæsta lauf og austur litlu
hjónin í tígli eru komin skilyrði fyrir
tvöfalda þvingun. Hvorugur getur þá
valdað spaðann. Eitt mikilvægt skil-
yrði vantar þó enn svo að þvingunin
virki – hinn rétta takt. Vörnin þarf að
fá einn slag í viðbót, það þarf að „leið-
rétta talninguna,“ eins og og sagt er á
bridsmáli. Tækifærið til þess er hér
og nú: að henda spaða í laufdrottn-
ingu. Framhaldið rekur sig.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Farðu varlega í viðræðum um sam-
eiginlegar skyldur og verkaskiptingu.
Leiðin á að liggja fram á við og þokast þótt
hægt fari.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú þarft að þora að skera þig úr og
vera djarfur/djörf til ákvarðanatöku og
mátt ekki missa sjónar á takmarkinu.
Mundu bara að þiggja aðstoðina með já-
kvæðum huga.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú gætir fengið óvænta peninga
eða gjöf, annaðhvort beint eða í gegnum
einhvern nákominn. Reyndu svo að finna
hvað veldur þessari þörf.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú færð fjölmörg tækifæri til ferða-
laga og framhaldsmenntunar á þessu ári.
Aukin menntun borgar sig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er að mörgu að hyggja bæði inn-
an heimilis og utan. Andaðu djúpt. Farðu
heldur varlega og það mun skila þér meira
til lengri tíma litið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Aðeins örlítil stefnubreyting hefur
afgerandi áhrif á það hvar meyjan endar.
Vertu viðbúinn að svara spurningum ann-
arra um fyrirætlanir þínar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ekki er ólíklegt að fyrrverandi elsk-
hugar/ástkonur verði á vegi þínum á næst-
unni. Notaðu daginn til þess að gera sjálf-
um/sjálfri þér eitthvað til góða.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Oftast fyllistu ekki valkvíða, en
valkostirnir eru nú svo girnilegir að þú
verður að hugsa þig vel um. Gættu þess
bara að ganga ekki of hart fram í því að
telja aðra á þitt band.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú er upplagt tækifæri til þess
að hefjast handa við verk, sem þú hefur
lengi látið þig dreyma um. Sköpunargleðin
er ríkjandi hjá þér þessa dagana og þú ert í
aðgerðarham.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ætlar þér að ná langt og hefur
það hugrekki sem til þarf. Ekkert getur
haldið aftur af þér þegar þú hefur ákveðið
eitthvað.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hugsaðu ekki of mikið um hvað
öðrum finnst um gjörðir þínar og haltu
bara áfram á sömu braut. Mélið er á sínum
stað og kominn tími til þess að taka á rás.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Rödd úr fortíðinni kveður sér hljóðs
og þú þarft að bregðast við þeim tíðindum.
Hættu að forðast hið óumflýjanlega.
Stjörnuspá
16. júlí 1955
Dwight D. Eisenhower, for-
seti Bandaríkjanna, kom í
stutta heimsókn til Íslands, á
leið frá Bandaríkjunum til
Evrópu.
16. júlí 1992
Forseti Sambandslýðveldisins
Þýskalands, Richard von
Weizsacker, kom í tveggja
daga opinbera heimsókn til Ís-
lands. Hann varð fyrstur er-
lendra þjóðhöfðingja til að
sækja móttöku í ráðhúsi
Reykjavíkur.
16. júlí 1999
Hæstiréttur sýknaði Kio Alex-
ander Ayobambele Briggs af
ákæru um að hafa smyglað
tvö þúsund e-töflum til lands-
ins, en hann hafði þá setið í
gæsluvarðhaldi í 263 daga.
16. júlí 2000
Rúta valt við brú á Hóls-
selskíl, norðan Grímsstaða á
Fjöllum. Einn farþegi lést og
á þriðja tug slösuðust, þar af
voru sautján lagðir inn á
sjúkrahús.
16. júlí 2007
Þyrlan TF-SIF eyðilagðist
þegar hún varð að nauðlenda
á sjónum við Straumsvík, þar
sem hún var við björgunar-
æfingar. Engan sakaði. Á 22
árum hafði þyrlan verið notuð
við björgun um 250 manna.
Hún er nú á Flugsafni Íslands
á Akureyri.
16. júlí 2008
Benedikt Hjartarson, 51 árs
bakari, synti yfir Ermarsund,
fyrstur Íslendinga. Sundið tók
sextán klukkustundir, leiðin
var talin 61 kílómetri og sund-
tökin 48 þúsund.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
„ÉG mun stinga mér til sunds klukkan sjö í Ár-
bæjarlaug. Það geri ég á hverjum degi, alla daga
ársins og syndi 100-250 metra. Svo mun ég
hugsanlega vera með létta afmælisveislu með
sundfélögunum“ segir Úlfar Antonsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðamiðlunar, sem er sextugur í
dag. Úlfar er einn af tíu meðlimum Rennibraut-
arfélags Árbæjarlaugar sem gerir það að gamni
sínu að renna sér í vatnsrennibrautinni á laugar-
dögum og sunnudögum. „Ef ég er í stuði renni ég
eina ferð í tilefni dagsins,“ segir Úlfar en þess má
geta að hann er yngsti meðlimur félagsins, sá
elsti ku vera 82 ára gamall.
Inntur eftir eftirminnilegum afmælisdögum segist Úlfar eiga ljúfar
æskuminningar úr Árnanesi í Hornafirði. „Þar sem afmælisdagurinn
er um mitt sumar var aldrei neinn í bænum þegar halda átti upp á
það. En þegar ég fór í sveit í Árnanes hélt Sigga ráðskona alltaf upp á
afmælið mitt með sjö sortum, súkkulaði og pönnukökum með rjóma.
Þá var mikil gleði“ segir Úlfar sem ætlar að eyða kvöldinu með eig-
inkonu sinni Siv Oscarsson og tveimur sonum þeirra hjóna.
gudrunhulda@mbl.is
Úlfar Antonsson er sextugur í dag
Salíbuna í tilefni dagsins
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is