Morgunblaðið - 16.07.2009, Blaðsíða 28
28 MenningLISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
Svo höfum við allir
verið að hlusta og
pæla í gegnum árin og kunn-
um miklu meira … 31
»
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
NÝTT íslenskt leikverk, Let’s talk Local –
Reykjavík, var frumsýnt á Restaurant
Reykjavík í gærkvöldi. Verkið, sem er eftir
Snæbjörn Ragnarsson, verður sýnt daglega í
sumar, og jafnvel lengur. Eins og nafnið bend-
ir til fjallar verkið um Reykjavík, og er saga
hennar rakin frá landnámi til dagsins í dag.
Leikstjóri verksins er Anna Bergljót Thor-
arensen, en leikhópurinn Kraðak setur upp.
Aðspurð segir Andrea Ösp Karlsdóttir, einn
meðlima leikhópsins, að þótt verkið sé á ensku
sé það einnig fyrir Íslendinga. „Verkið er á
ensku til þess að útlendingar geti líka notið
þess. Við höfum verið að æfa þetta með áhorf-
endum og buðum m.a. fullt af útlendingum.
Þeir skemmtu sér rosalega vel og hlógu mikið,
enda er þetta líka gamansýning og það er
hægt að fá sér bjór á meðan og svona. En Ís-
lendingar sem hafa komið skemmta sér líka
konunglega, og læra mjög mikið um Ísland og
Reykjavík af sýningunni,“ útskýrir Andrea.
„Það eru tveir leikarar í verkinu í einu en
leikhópurinn samanstendur af fimm manns.
Þannig að við róterum svolítið, enda er sýn-
ingin sýnd á hverjum degi. Fólk verður nú að
komast í brúðkaup og svona,“ segir Andrea en
auk hennar fara þau Anna Brynja Bald-
ursdóttir, Jóel Sæmundsson, Ólafur S.K. Þor-
valdz og Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir með
hlutverk í sýningunni.
Þetta er önnur Let’s talk-sýningin, sú fyrsta
í röðinni hét Let’s talk Christmas, en þar fór
Grýla á kostum við að segja gestum frá ís-
lensku jólahaldi. Til stendur að gera fleiri sýn-
ingar, meðal annars um Húsavík.
Verkið er sýnt á hverjum degi kl. 18 í koní-
aksstofunni á Restaurant Reykjavík (gamla
Kaffi Reykjavík) og er miðaverð 2.200 krónur,
en 1.100 fyrir börn 12 ára og yngri. Verkið er
u.þ.b. klukkutími að lengd. „Við hvetjum alla
til að koma, enda er þetta rosalega skemmtileg
sýning,“ segir Andrea að lokum. Nánari upp-
lýsingar má finna á www.kradak.is.
Rætt um Reykjavík
Nýtt leikverk frumsýnt á Restaurant Reykjavík
Tölum saman Jóel, Andrea og Ólöf í hlut-
verkum sínum í sýningunni.
BRESKA port-
rettmyndasafnið,
The National
Portrait Gallery
(NPG), hefur hót-
að bandarískum
manni, Derrick
Coetzee, lögsókn
fyrir brot á höf-
undarrétti.
Coetzee halaði
niður um 3.300
ljósmyndum í mikilli upplausn af vef
safnsins og setti á vefinn Wikipedia
með þeim merkingum að öllum væri
frjálst að nota þær, án leyfis frá safn-
inu. Með því er talið að maðurinn hafi
brotið bresk lög um höfundarrétt en
þó ekki bandarísk, en Wikipedia-
alfræðivefurinn er bandarískur.
Um einni milljón punda hefur verið
varið í að skrásetja safneign NPG
með ljósmyndum og setja á vef safns-
ins. Um 60 þúsund ljósmyndir af
portrettmálverkum hafa þegar verið
settar á vefinn almenningi til fróð-
leiks og eru þær greinilega merktar
með höfundarrétti, þ.e. að hann sé
safnsins. Skv. fréttavef BBC hefur
safnið farið fram á það við Wikipedia
að ljósmyndirnar verði fjarlægðar en
ekki fengið nein svör við þeirri beiðni.
Með því væri hægt að forðast mála-
ferli.
Portrett á
vef án leyfis
NPG bíður svars
frá Wikipedia
Portrett af Shake-
speare í NPG
GARÐURINN,
skáldsaga Gerðar
Kristnýjar sem
kom út í fyrra,
verður gefin út í
Noregi af forlag-
inu Bokvennen.
Þá hefur útgáfu-
réttur að bókinni
einnig verið seld-
ur þýska forlag-
inu Berlin Ver-
lag. Norska forlagið Bokvennen
gefur einnig út verk Snorra Sturlu-
sonar og Steins Steinarr.
Gerður Kristný er nýkomin heim
frá finnsku borginni Lathi þar sem
hún sótti rithöfundaþing, las þar úr
verkum sínum og brá sér einnig í
hlutverk kynnis eitt kvöld og stýrði
pallborði þingsins á lokakvöldinu.
Finnskir fjölmiðlar sögðu frá
frammistöðu Gerðar, m.a. að hún
hefði gantast með ástand efnahags-
mála á Íslandi og sagst vera frá landi
elds, íss og fjármálaóreiðu.
Þá mun Gerður hafa hvatt fólk til
að gauka að sér smáaurum en ekki
fylgir sögunni hvort hún græddi
eitthvað á því.
Garðurinn
á norsku
Gerður Kristný
rithöfundur
Í DAG verður opnuð ljós-
myndasýning í sýningarsal
Byggðasafns Hafnarfjarðar í
Gúttó, Suðurgötu 7. Sýningin
hefur yfirskriftina Krísa og er
ljósmyndaverkefni um eina af
sýnilegustu afleiðingum
bankahrunsins á Íslandi 2008.
Þetta gerði Íris Stefáns-
dóttir að lokaverkefni sínu í
fréttaljósmyndun fyrir ljós-
myndaskólann Istituto Euro-
peo di Design, í Mílanó á Ítalíu, en þaðan útskrif-
aðist hún með hæstu einkunn á dögunum. Krísa
er fyrsta einkasýning Írisar en hún hefur áður
tekið þátt í sýningum á Ítalíu.
Myndirnar voru teknar á Íslandi í ár.
Ljósmyndir
Krísa í Hafnar-
firðinum
Víða standa
ókláruð hús.
ÞEIR KK og Maggi Eiríks
munu skemmta ferðafólki
sunnan heiða um helgina. Þeir
verða í Duushúsum í Keflavík í
kvöld en bregða sér síðan aust-
ur fyrir fjall, spila á Borg í
Grímsnesi föstudagskvöldið og
í Úthlíð Biskupstungum á laug-
ardagskvöld.
KK og Maggi hafa sent frá
sér þrjár plötur með „ferðalög-
unum“ svokölluðu og hafa þær
notið fádæma vinsælda, selst í meira en 30.000
eintökum. Nú er búið að setja diskana þrjá í einn
pakka og jafnframt gefa út söngvabók með öllum
textum ásamt gítargripum, verður hvort tveggja
fáanlegt á tónleikunum.
Tónlist
Félagar á ferð
um landið
KK og Maggi
Eiríks
STELLA Sigurgeirsdóttir
opnar sýningu á verkum sínum
á morgun, föstudag, á Mokka
café og stendur hún til 6. ágúst.
Verkin eru ljósmyndir af
gluggum og gættum sem
skapa draumkenndan stemn-
ingsheim í gluggalitlu rými
Mokka, opna víddir og veita
innsýn í töfra dagstofunnar.
Myndirnar voru allar teknar á
einum rigningarvordegi í Berl-
ín á sama stað á sama tíma.
Stella hefur tekið þátt í mörgum einka- og sam-
sýningum hérlendis og erlendis. Hún starfar á
vinnustofu sinni við Hverfisgötu hér í bæ og vinn-
ur í hina ýmsu miðla.
Myndlist
Stella sýnir á
Mokka
Stella
Sigurgeirsdóttir
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞÆR eru ófáar tónleikaraðirnar á Íslandi í sumar og
Norræna húsið lætur ekki sitt eftir liggja. Á laugardaginn
kl. 15 verða haldnir fyrstu tónleikarnir af fernum í húsinu
og stígur þar á svið norskur harmonikkumeistari, Sig-
mund Dehli, og leikur vinsæla norska alþýðutónlist.
„Þetta eru erlendir tónlistarmenn að hluta til en líka ís-
lenskir. Við byrjum með harmonikkutónleika, sem er
náttúrlega mjög sumarlegt. Sigmund Dehli er norrænn
meistari í harmonikkuspili og hefur verið tilnefndur til
margra harmonikkuverðlauna í Noregi og hlotið mörg
verðlaun fyrir plöturnar sínar,“ segir Ilmur Dögg Gísla-
dóttir, verkefnastjóri hjá Norræna húsinu. Tónleikarnir
með Dehli eru þeir einu sem kostar inn á en á aðra sum-
artónleika er ókeypis.
Sýnir Íslendingum stuðning
Bandaríski píanóleikarinn Mark Damisch heldur tón-
leika 20. júlí kl. 20 og eru þeir styrktir af bandaríska
sendiráðinu og Dómkirkjunni í Reykjavík. Ilmur segir
Damisch vilja sýna Íslendingum samúð og stuðning vegna
efnahagshrunsins og benda á að þjóðir heims geti lært af
mistökum hver annarrar. Damisch mun leika verk eftir
Debussy, Chopin, Gershwin og Beethoven og munu dæt-
ur hans, 14 og 19 ára, einnig koma fram á tónleikunum.
Ilmur segist halda að þær ætli að syngja.
Þá sé Damisch einnig að fagna því með tónleikum í
Frakklandi að 65 ár séu liðin frá innrásinni í Normandí
sem tryggði herjum bandamanna fótfestu í Frakklandi.
„Hann spilaði í fyrsta skipti á Íslandi 1975, hélt þá tón-
leika fyrir bandaríska hermenn í Keflavík,“ segir Ilmur.
22. júlí kl. 17 er svo komið að Íslendingi, Steinunni Hall-
dórsdóttur píanóleikara. Hún leikur íslensk sönglög eftir
þekkta höfunda auk þess að taka verk eftir Mozart, Bach
og Sibelius.
Kostulegar gæsir
Á lokatónleikunum 25. júlí kl. 17 syngur svo Guðrún
Gunnarsdóttir vísnalög eftir sænska söngvaskáldið Corn-
elis Vreeswijk, við undirleik þekktra sænskra tónlistar-
manna, þeirra Tomasar Lindberg, Magnusar Storis
Holmström og Dans Berglund auk Íslendinganna Val-
geirs Skagfjörð og Péturs Grétarssonar.
„Norræna húsið er rekið með styrkjum og því þurfum
við ekki að hafa aðgangseyri. Þannig að við getum boðið
fólki upp á glæsilega menningardagskrá, því að kostn-
aðarlausu,“ segir Ilmur.
Þannig að fólk hefur enga afsökun fyrir að mæta ekki?
„Fólk hefur enga afsökun,“ segir Ilmur og hlær og bæt-
ir því við að fólk eigi að njóta hússins og umhverfisins,
kostulegra gæsa með unga sína. Frekari upplýsingar um
Norræna húsið má finna á nordice.is.
Sígilt og þjóðlegt í bland
Norsk alþýðulög, klassísk píanóverk, íslensk sönglög og sænsk vísnalög munu
óma í Vatnsmýrinni Fjölbreyttir sumartónleikar Norræna hússins
Mark Damisch Píanóleikarinn veitir Íslendingum stuðning og fagnar með Frökkum.
Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son, rithöfundur og tónlist-
armaður, hefur þýtt texta við
mörg af þekktustu lögum
sænska söngvaskáldsins
Corneliusar Vreeswijk og gef-
ið út á plötu með söngkon-
unni Guðrúnu Gunnarsdóttur.
„Það má kannski segja að
hann sé eitt af stærri nöfn-
unum í norrænni vísna-
tónlist,“ segir Aðalsteinn. Bit-
urt háð og samfélagsádeila
hefi einkennt verk hans. Guð-
rún og félagar leggja brátt í
tónleikaferð vegna plötunnar
og má finna frekari upplýs-
ingar um hana á dimma.is.
Eitt af stærri nöfnunum í norrænni vísnatónlist