Morgunblaðið - 16.07.2009, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SORP er stöðugt meira vandamál í
neyslusamfélagi nútímans, umbúðir
eru notaðar utan um æ fleiri hefð-
bundnar vörur og fæstar þeirra end-
urnýttar. Sorp tekur pláss og sumt
af því er eitrað. Þess vegna hafa sum
vestræn fyrirtæki og ríki tekið upp á
því að greiða fátækum Afríku-
þjóðum fyrir að fá að farga úrgangi í
löndum þeirra.
Margir eru duglegir að flokka
heimilissorp og reyna að sjá til þess
að reynt sé að endurnýta það og
tryggja að varasöm efni lendi ekki á
stöðum þar sem þau spilla umhverf-
inu. En sorp hverfur ekki endilega
þótt það sé sett í rétta tunnu. Nú
ætla liðsmenn MIT-háskólans í
Boston undir forystu Assafs Bi-
dermans að gera tilraun sem gerir
mönnum kleift að fylgjast með því
hvað verður um sorpið þeirra.
Senda stöðugt merki
MIT hefur að sögn BBC hannað
örlitla nema sem hægt er að festa við
einstaka hluta sorpsins og til að
verja nemana hnjaski eru þeir vand-
lega varðir. Sjálfboðaliðar í New
York, Seattle og London munu
leggja til alls 3000 sorpeiningar.
„Þetta er eins og örlítill farsími
með takmarkaða getu,“ segir Carlo
Matti, sem tekur þátt í átakinu, um
nemann. Búnaðurinn sendir stöðugt
frá sér merki í miðlæga stöð sem
tekur við merkjum frá öllum eining-
unum. Verður því jafnóðum hægt að
kortleggja feril allra sorpeining-
anna.
Biderman segir að líkja megi til-
rauninni við að örlitlir njósnarar eða
sporefni séu sett í blóðrásina til að
kanna hvernig blóð flæði um líkam-
ann. Farsímatækni sé ekki bara
ódýr heldur hafi hún breiðst út um
allan heim og því hægt að fylgjast
með ferli úrgangs um allan hnöttinn.
Hvar endar heim-
ilissorpið okkar?
Nemar sem senda frá sér rafræn merki gera okkur kleift
að sjá hvað verður um það sem við fleygjum í tunnuna
Fyrirhugað er að nota örlitla
nema til að fylgjast með því hvað
verður um heimilissorp. Íbúar í
New York, Seattle og London
munu leggja til alls 3.000 sorp-
einingar í tilraunina.
Reuters
Eftirlit Rusl er ekki bara rusl.
Verða nemarnir enn þróaðri?
Fullyrt er að með tímanum verði
hægt að gera þá svo litla og
hræódýra að hægt verði að festa
þá á nánast alla hluti.
Hvaða gagn yrði að eftirlitinu?
Hægt yrði að draga mjög úr
óþarfa sorpmyndun. Fullyrt er að
ef fólk vissi nákvæmlega hvar
sorpið endaði myndu margir
leggja sig fram við að endurnýta.
S&S
Allir dánir Leitað í braki Túpolev-
vélarinnar í grennd við Qazvin.
ENGINN komst af þegar rúss-
nesk-smíðuð farþegaþota Caspian
Airlines með alls 168 manns innan-
borðs hrapaði stuttu eftir flugtak
um kl. sjö í gærmorgun frá Imam
Khomeini-flugvelli í Teheran. Talið
er að eldur hafi komið upp í vélinni.
Flugvélin sundraðist og brakið
dreifðist víða.
153 farþegar voru um borð, Ír-
anar, Armenar og Georgíumenn.
15 manns voru í áhöfn.
Meðal hinna látnu voru átta liðs-
menn íranska unglingalandsliðsins
í júdó sem hugðust stunda æfingar
Í HNOTSKURN
»Vegna viðskiptabannsins,sem kemur að mestu í veg
fyrir að keyptir séu varahlutir
í vestrænar vélar Írana, notast
þeir nú mjög við rússnesk-
smíðaðar vélar.
»Rússnesku vélarnar eruoft sagðar vera í lélegu
ástandi en umrædd vél var
smíðuð 1987.
Óljóst hvað olli slysinu í Íran
Allir 168 um borð í Túpolev-154-farþegavél Caspian Airlines fórust
með armenskum félögum sínum.
Ekki er vitað um orsök slyssins
en fulltrúar Alþjóðasamtaka flug-
félaga, IATA, könnuðu öryggisvið-
búnað félagsins fyrir tveim árum
og lögðu blessun sína yfir hann.
Flugvélin var á leið til armensku
höfuðborgarinnar Yerevan og
hrapaði í grennd við borgina Qazv-
in, liðlega 100 km norðvestur af
Teheran.
„Vélin féll skyndilega til jarðar
og sprakk í tætlur við höggið. Þar
er nú stór gígur,“ sagði sjónarvott-
ur. kjon@mbl.is
Reuters
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 2009
TILRÆÐUM hefur fjölgað nokkuð í Írak allra síðustu
vikurnar en ástandið í landinu er samt mun betra en
fyrir fáeinum árum og lífið að mörgu leyti að komast í
samt lag. Skemmtanalífið blómstar í Bagdad, 17 næt-
urklúbbar eru nú í borginni. Þar er spiluð seiðandi tón-
list, eggjandi dansarar sýna listir sínar. Ekki skortir
áfengið þótt lög íslams leggi bann við því og mæli einn-
ig fyrir um stranga siðsemi í samskiptum kynjanna.
Reuters
SPENNA Á DANSGÓLFINU
STÚDENTAR í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, mótmæla meðferð á Uig-
hurum við sendiráð Kína í gær. Indónesar eru flestir múslímar eins og Uig-
hurar sem eru skyldir Tyrkjum. Stjórnvöld í Kína segja nú að liðlega 190
manns hafi fallið í átökum Uighura og Kínverja í Xinjiang. Tyrkneskir
ráðamenn hvetja til þess að kínverskar vörur verði sniðgengnar.
Styðja málstað Uighura
Reuters
MANUEL Zelaya, forseti Hond-
úras, sem herinn og stjórnarand-
staðan í landinu ráku úr landi 28.
júní, segir þjóðina nú hafa rétt á því
að gera uppreisn. Honum hefur ver-
ið meinað að snúa aftur heim en
reynt er að leysa deiluna með milli-
göngumönnum.
Zelaya hafði reynt að efna til þjóð-
aratkvæðis um breytingar á stjórn-
arskránni. „Enginn þarf að sýna
hollustu valdaránsstjórn sem tók
völdin með hervaldi og þjóðin hefur
rétt á að gera uppreisn og setja sig á
móti þessum aðferðum,“ sagði Zel-
aya á fréttamannafundi í grannrík-
inu Gvatemala í gær.
Í frétt BBC segir að tilraunir Osc-
ars Arias, forseta Kostaríka og frið-
arverðlaunahafa Nóbels, til að sætta
deiluaðila hafi enn ekki borið árang-
ur. Hann hefur boðað fulltrúa þeirra
á nýjan sáttafund
á laugardag.
„Reynslan hefur
kennt mér að
menn verða að
vera dálítið þol-
inmóðir,“ sagði
Arias á þriðju-
dag.
Þúsundir
manna hafa efnt
til mótmæla í höfuðborg Hondúras,
Tegucigalpa, vegna valdaránsins en
ríkisstjórnir annarra ríkja við-
urkenna enn Zelaya sem réttkjörinn
forseta landsins. Á þriðjudag var
haldinn fundur við sendiráð Banda-
ríkjanna. Voru stjórnvöld í Wash-
ington hvött til að beita sér af meira
afli til að þvinga bráðabirgðastjórn,
sem Roberto Micheletti stýrir, til að
fara frá. kjon@mbl.is
Þjóðin hafi rétt
á að gera uppreisn
Manuel Zelaya
KREPPAN hefur leikið Japana illa
og stjórnvöld þurft að grípa til
margvíslegra neyðarráðstafana. En
einn atvinnuvegur blómstrar ekki
síður en fyrr á árum: Ástarhótelin.
Alls eru rekin um 25.000 hótel af
þessu tagi í landinu, þar geta pör átt
ástarfundi í eina klukkustund, ef til
vill nokkrar stundir og gætt er
fyllstu leyndar. Samskipti við starfs-
fólk eru í lágmarki og komi gestir á
bíl er sums staðar hægt að leigja
spjöld til að hylja númerin.
Talið er að heimsóknir á hótelin
séu alls um 500 milljónir á ári en í
Japan búa um 125 milljónir manna.
kjon@mbl.is
Ástarhótelin
blómstra í krepp-
unni í Japan