Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
Sveitarsjóðir í athugun
Í raun þörf á að hafa afskipti af flestum sveitarfélögum landsins, segir formaður
Sambands sveitarfélaga Hækkun útsvars og skatta meðal úrræða skv. lögum
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
EKKI fæst uppgefið hvaða 10-15 sveitarfélög það
eru sem eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
hyggst taka til sérstakrar skoðunar á næstunni.
Rekstrarniðurstaða sveitarsjóða á landinu var nei-
kvæð um 19,3 milljarða króna á síðasta ári, en þar
af nam tap sjö þeirra yfir milljarði króna.
Fram kom í svari samgönguráðherra á Alþingi í
vikunni að eftirlitsnefndin hefur metið þörfina fyrir
frekari aðgerðir. „Samkvæmt frumathugun á fjár-
hagsáætlunum og ársreikningum verða 10-15
sveitarfélög tekin til frekari skoðunar,“ segir í svari
ráðherra. Að sögn Jóhannesar Tómassonar, upp-
lýsingafulltrúa samgönguráðuneytisins, er nú beð-
ið eftir frekari upplýsingum áður en ákvörðun
verður tekin um hver þessara
10-15 sveitarfélaga verði undir
eftirliti. Ekki sé víst að ráðist
verði í aðgerðir nema hjá fáum
þeirra.
Halldór Halldórsson, for-
maður Sambands íslenskra
sveitarfélaga, segir fyrirhugað
eftirlit ekki koma á óvart. „Ég
hef oft sagt að eftirlitsnefndin
mun í rauninni þurfa að hafa af-
skipti af flestum sveitarfélögum
landsins. Í lögunum er skilgreiningin sú að ef sveit-
arfélag er með taprekstur beri eftirlitsnefndinni að
grafast fyrir um ástæðurnar fyrir því.“
Ákveði nefndin að grípa til eftirlits felur það í sér
að gerður er aðgerðarsamningur við sveitarfélagið.
Halldór segir þó ekki fjárráð tekin af viðkomandi
sveitarstjórn, en aðeins séu tvö dæmi um að slíkt
hafi verið gert hér á landi. Áður en til þess komi
séu ýmis úrræði. „T.d. ákvæði í sveitarstjórnarlög-
unum um að veita megi sveitarfélagi heimild til að
leggja aukaálag ofan á útsvar og skatta. Eins er
heimilt að veita sveitarfélagi styrk eða lán úr jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga til að koma fjárhag þess á
réttan kjöl.“
Sé hins vegar útlit fyrir að ekki rætist úr fjár-
málum sveitarfélagsins til langs tíma er skv. lögum
heimilt að svipta sveitarstjórn fjárforræði og skipa
því fjárhaldsstjórn. „Við erum þó alls ekki á því
stigi. Núna erum við bara að fást við afleiðingar
bankahruns og kreppu og ég veit ekki um neina
sveitarstjórn sem ekki er tilbúin að vinna sig út úr
vandanum,“ segir Halldór.
Halldór
Halldórsson
EKKI er amalegt að geta brugðið sér í lautar-
ferð í miðri höfuðborginni eins og Elliðaárdal-
urinn býður upp á. Þessar stúlkur nýttu sér góða
veðrið til hins ýtrasta á þeim slóðunum nýlega
og létu fáklæddar fara vel um sig á grasinu.
Ekki var feimninni fyrir að fara þó að ljósmynd-
ari Morgunblaðsins væri á ferðinni og smellti af
þeim mynd, heldur veifuðu stúlkurnar og brostu
sínu blíðasta til hans.
Elliðaárdalurinn er útivistarsvæði sem bragð
er að og fleira hægt að gera en sitja í grasi og
sulla í ánni, hvort sem er við laxveiði eða til að
skola heita fætur. Göngu- og hjólreiðastígar
bjóða upp á góða göngu- eða hjólreiðatúra, enda
er þar ætíð margt um manninn.
Ljúft að vera í lautarferð í höfuðborginni
Létu fara vel um sig í Elliðaárdalnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„KÆRU félagar,
það er mikilvægt
að við látum þetta
mál, sem ég veit
að afar skiptar
skoðanir eru um
innan hreyfingar-
innar, ekki sundra
okkur.“ Þetta seg-
ir meðal annars í
ávarpi Steingríms
J. Sigfússonar,
formanns Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, á vef flokksins. Er
það í tilefni af samþykkt Alþingis um
að hefja aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið. Steingrímur vísar þar til
ályktunar landsfundar VG, en þar
segir að landsfundur VG leggi áherslu
á að aðild Íslands að ESB eigi að leiða
til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Enn hafi engin ákvörðun verið tekin
og þannig sé niðurstaðan „vel sam-
rýmanleg landsfundarályktun í mars
síðastliðnum sem lögð var fram í kjöl-
far mikils starfs innan flokksins sem
allir flokksmenn gátu tekið þátt í“.
Að sögn Drífu Snædal, fram-
kvæmdastýru VG, hafa þrjátíu manns
sagt sig úr flokknum í kjölfar þess að
átta þingmenn flokksins samþykktu
að hefja aðildarviðræður. Hún segir
að margir flokksmenn hafi haft sam-
band, bæði til að lýsa ánægju sinni og
óánægju með afstöðu þingmanna.
Jónmundur Guðmarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
segir engar merkjanlegar sveiflur í
félagaskrá flokksins. Fjöldi úrsagna
og skráninga í flokkinn sé sambæri-
legur við meðalmánuð.
halldorath@mbl.is
Sameinuð
þrátt fyrir
ESB
Steingrímur J.
Sigfússon
Sundri ekki VG
FRÁVÍSUNARKRÖFU meints höfuðpaurs í hinu svo-
nefnda Papeyjarmáli var hafnað í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gærmorgun. Verjandi mannsins fór fram á frávís-
un málsins þar sem dómstóllinn hefði ekki refsilögsögu
yfir skjólstæðingi hans sem er hollenskur. Verjandinn
fær ekki að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar og fer aðal-
meðferð fram á mánudag, eins og áður hafði verið ákveð-
ið.
Eins og fram hefur komið lagði lögreglan hald á rúm-
lega 100 kíló af fíkniefnum á Austurlandi í apríl. Talið er
að fíkniefnin hafi verið flutt hingað með seglskútunni Sir-
taki. För skútunnar var stöðvuð djúpt út af SA-landi eftir
mikla eftirför.
Í niðurstöðu dómsins segir að í 7. gr. almennra hegn-
ingarlaga segi að sé refsing að einhverju leyti bundin að
lögum við afleiðingar verknaðar skuli líta svo á að verkið
sé einnig unnið þar sem þessar afleiðingar gerast eða er
ætlað að koma fram.
Þar sem flytja átti efnin til landsins í söluskyni beinist
háttsemin gegn íslenskum hagsmunum og afleiðingar
brotsins koma fram hér á landi. andri@mbl.is
Frávísunarkröfu hafnað
Afleiðingar brotsins beindust
gegn íslenskum hagsmunum
Hefði Héraðsdómur Reykjavíkur
samþykkt kröfu verjanda Hol-
lendingsins í Papeyjarmálinu er
auðséð að ákæruvaldið hefði
kært úrskurðinn til Hæstaréttar,
sem myndi þá eiga lokaorðið.
Þar sem kröfunni var hafnað
fer aðalmeðferð fram og málið
verður lagt í dóm. Verjandinn hef-
ur samkvæmt lögum um meðferð
sakamála ekki heimild til að kæra
úrskurðinn. Ef Hollendingurinn
verður hins vegar sakfelldur og áfrýjar máli sínu til
Hæstaréttar mun hann að öllum líkindum gera frá-
vísun að aðalkröfu og varakrafan verður þá sýkna.
Þetta fyrirkomulag, sem hefur verið við lýði í
fjölda ára, hefur vissulega í för með sér kostnað og
óþægindi fyrir sakborninginn, enda þarf hann að
sæta gæsluvarðhaldi á meðan mál hans er tekið fyr-
ir. Hugsanlega á forsendum sem standast ekki lög.
Fær ekki að kæra úrskurðinn
Skútan sem notuð
var til verksins.
STJÓRN Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, hef-
ur mótmælt nokkrum tillögum í
drögum að frumvarpi til nýrra um-
ferðarlaga, m.a. tillögu um að
banna ökumönnum undir 20 ára
aldri að aka með fleiri en einn far-
þega á ákveðnum tímum sólar-
hringsins um helgar.
Stjórn félagsins telur ólíklegt að
tillagan stuðli að fækkun slysa og
segir að framfylgd laganna verði
flókin. „Telur stjórn Heimdallar að
tíma lögreglunnar og fjármunum
skattgreiðenda sé betur eytt í önn-
ur verkefni en að telja farþega í bíl-
um og kanna aldur ökumanna,“
segir í ályktun stjórnar félagsins.
Hún telur tillöguna bera vott um
virðingarleysi gagnvart ungu fólki.
Andvíg frumvarpi til
nýrra umferðarlaga