Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 14
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SÍLD er unnin til manneldis í fiskiðjuveri Síld- arvinnslunnar á Norðfirði og er það eina fyrirtækið sem frystir síld í landi um þessar mundir. Fryst er um borð í nokkrum skipum en öðru er landað í fiski- mjölsverksmiðjur. Starfsfólk Síldarvinnslunnar frestaði sumarleyfum þegar í ljós kom að norsk- íslenska síldin var hæf til manneldisvinnslu sem er afar óvenjulegt á þessum tíma. Frysting á norsk-íslensku síldinni hófst undir lok maí og Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síld- arvinnslunnar, vonast til að hún veiðist áfram og hægt verði að frysta fram á haust. Á þessum árs- tíma hefur síldin ekki verið hæf til frystingar og fiskiðjuverin lokuð. Síldarvinnslan stoppar í staðinn í ágúst og Gunnþór vonar að síldin verði þá aftur orðin hæf til vinnslu. „Síldin veiðist nær landi en venjulega á þessum tíma og tæknin við að kæla hana og flytja í land er sífellt að batna,“ segir Gunnþór. Geta gert meiri verðmæti úr makrílnum Makríll kemur sem meðafli á síldveiðunum og hann er frystur eins og mögulegt er. Nú hafa veiðar sunnan við 64 breiddargráðu verið bannaðar og makríll má ekki vera meira en 12% af aflanum. „Við eigum eftir að sjá hvað makríllinn verður hátt hlut- fall. Þessar reglur geta skapað okkur vandræði ef við lendum í makrílskotum,“ segir Gunnþór. Undir það tekur Hákon Þröstur Guðmundsson, skipstjóri á Margréti EA. „Það er makríll alls staðar en menn reyna að vinna þetta samkvæmt reglugerðinni. Von- andi verða stjórnvöld lipur þegar á þetta reynir,“ segir Hákon. Hlé var gert á síldarfrystingunni þegar skip Síld- arvinnslunnar tóku þátt í makrílkapphlaupinu. Út- gerðirnar reyndu að ná sem mestu af heildarkvót- anum á sem stystum tíma til að skapa sér veiðireynslu upp á framtíðina. Í ólympískum veiðum af þessu tagi er ekki tími eða svigrúm til að koma aflanum í vinnsluhæfu ástandi í land og aflinn fór því í mjöl og lýsi. Þótt sjómenn og útgerðarmenn tækju þátt í veiðunum af ákefð eru þeir ekki sáttir við fyr- irkomulagið. „Þetta hefði horft allt öðruvísi við ef hægt hefði verið að finna leið til að úthluta kvóta á makríl. Þá hefði hver og einn reynt að gera sem mest úr sínum kvóta. Við hefðum þá haldið áfram að frysta síld og reynt að veiða makrílinn seinna þegar fituprósentan væri hærri og hann gæfi meiri verð- mæti,“ segir Gunnþór. Manneldisvinnsla á makríl er að þróast og Gunnþór er sannfærður um að hægt verði að auka verðmæti hans umtalsvert. „Makríllinn er kominn inn í okkar fiskveiði- lögsögu, allt í kringum landið. Hann er að éta undan öðrum nýtjastofnum og jafnvel loðnu og síld. Við verðum að nýta hann eins og aðrar tegundir,“ segir Gunnþór. Hann segist ekki skilja hvað stjórnvöld leggi mikla áherslu á að halda heildaraflanum í þeim 112 þúsund tonnum sem veiddust í fyrra. Sá afli hefði aldrei náðst nema með því að vinna hluta aflans í mjöl og lýsi. Enn meira sé af makríl í ár og það hljóti að leggja grunn að aukinni hlutdeild í veið- unum. „Það er mikilvægt að þjóðirnar nái samn- ingum um nýtingu stofnsins en á meðan það gerist ekki verðum við að halda fram okkar réttmætu kröf- um og tryggja hlutdeild okkar í stofninum. Það ger- um við með auknum veiðum og markvissum rann- sóknum. Brýnt er að Íslendingar komist sem fyrst að veiðistjórnuninni með hinum strandríkjunum til að tryggja megi sjálfbæra nýtingu á stofninum. Það er óábyrgt af Norðmönnum og ESB að útiloka Ís- lendinga frá þátttöku í stjórnum veiðanna,“ segir Gunnþór. Síldarfrysting Þótt langt sé síðan Helga Jónsdóttir bæjarstýra vann við síldarsöltun þekkir hún haus og sporð á síldinni. Hún skoðaði fiskiðjuverið í fylgd Gunnþórs Ingvasonar framkvæmdastjóra. Síldin til manneldis  Frestuðu lokun fiskiðjuversins til að frysta norsk-íslenska síld  Síldarvinnslan á Norðfirði er eina fyrirtækið sem frystir síldina í landi um þessar mundir 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 veiðideild Húsgagnahöl l inni , s ími 585 7239. L indir , Skógar l ind 2, s ími 585 7262 efni í lundaháfa Opið 7 dagavikunnar SKIPULAGSSTOFNUN hefur gef- ið álit sitt á mati á umhverfisáhrif- um af völdum stækkunar Reykja- nesvirkjunar í Grindavík og í Reykjanesbæ. Helstu niðurstöður stofnunarinnar eru þær að yfir- borðsvirkni og breytingar á hvera- svæðinu geti haft neikvæð áhrif á fugla, aðallega kríu og hugsanlega einhverjar hveraörverur. Með tilliti til áhrifa á ferðaþjón- ustu og útivist er það mat Skipu- lagsstofnunar að jarðvarmavirkjun falli illa að svo sérstæðu svæði sem Reykjanes er náttúrufarslega, en á náttúrfari þess byggjast vinsældir svæðisins fyrir útivistarfólk og ferðamenn. Þá eru samlegðaráhrif núverandi og fyrirhugaðra fram- kvæmda verulega neikvæð með til- liti til landslags og verndargildis. Skipulagstofnun telur að setja þurfi þau skilyrði fyrir leyfisveitingunni að HS orka standi fyrir vöktun á áhrifum virkjunarinnar á dýralíf, gróður, lífríki sjávar og fjöru og hitakærar örverur, í samráði við sérfræðiaðila. Álitið liggur frammi hjá Skipu- lagsstofnun og á www.skipulag.is. Neikvæð áhrif á fuglalíf Vöktun skilyrði fyrir leyfisveitingunni Ríkisstjórnin hefur samþykkt að unnið verði að verkáætlun um hvernig best verði lagður grunnur að nýrri sókn í ís- lensku atvinnu- lífi og samfélagi. Áætlunin hef- ur fengið nafnið „20/20 – Sóknaráætlun fyrir Ís- land“. Hún á að vera liður í efna- hagslegri endurreisn þjóðarinnar með það að markmiði að „Ísland skipi sér á ný í fremstu röð í verð- mætasköpun, menntun, velferð og sönnum lífsgæðum“, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Dagur B. Eggertsson er formað- ur stýrihóps verkefnisins. Gert er ráð fyrir því að verkefninu ljúki haustið 2010 þegar fyrir liggi sóknaráætlun sem nái til ársins 2020. Vinna á áætlunina í víðtæku samráði og lögð verður áhersla á að ná breiðri samstöðu um sam- eiginlega framtíðarsýn og lykil- ákvarðanir í endurreisnarstarfinu. Markmiðið er að forgangsraða fjármunum, nýta auðlindir og virkja mannauð þjóðarinnar til að vinna gegn fólksflótta og leggja grunn að almennri velsæld. Boðar tíu ára áætlun um nýja sókn Dagur B. Eggertsson „Síldin er ótrúlega fallegur fiskur en aðstæð- urnar eru ansi mikið breyttar,“ segir Helga Jóns- dóttir, bæjarstýra í Fjarðabyggð. Það rifjuðust upp gamlar minningar þegar hún skoðaði fisk- iðjuver Síldarvinnslunnar á Norðfirði þegar unn- ið var að frystingu á norsk-íslenskri síld. Helga var fjögurra ára þegar hún byrjaði að salta síld á plani afa síns, Skafta Stefánssonar útgerðarmanns á Siglufirði. „Ég stóð uppi á palli og saltaði í kút og kallaði stolt: Taka tunnu, taka tunnu,“ segir Helga. Þetta voru sérstakir tímar. Fólkið vakti sólar- hringum saman til að bjarga verðmætum. Helga var ekki mörg ár í síldinni því hún var enn á barnsaldri þegar þessi dyntótti fiskur hvarf. Sjávarútvegurinn hefur verið burðarásinn í at- vinnulífi staðanna sem mynda Fjarðabyggð og er enn þótt fjölbreytni hafi aukist, ekki síst með ál- veri og tengdri þjónustu. Helga segir að mikil- vægt hafi verið að fá álverið því nú eigi fólk fleiri kosta völ í atvinnu. Þá hafi skapast svigrúm til hagræðingar hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum. „Það vinna fleiri í sjávarútvegi en álverinu og hann er sálin,“ segir Helga. Bæjarstýran rifjar upp gamla takta úr síldarsöltuninni „Við finnum loðnulykt þegar við tökum nótina. Það er loðna á svæðinu og makríll- inn liggur í henni. Því vaknar sú spurning hvort síldin sé að láta undan makríl – hann sé svo frekur á svæðið,“ segir Hákon Þröst- ur Guðmundsson, skipstjóri á skipi Sam- herja, Margréti EA-710, sem var að landa norsk-íslenskri síld til vinnslu á Norðfirði. Sjómenn hafa orðið varir við loðnu í mak- ríl. Þannig hafa skipverjar á Lundey fundið mörg dæmi um hálfmeltar loðnur í makríl- mögum, eins og sagt er frá á bloggsíðu þeirra. Sjómenn hafa orðið varir við makríl allt í kringum landið. Sumir setja það í sam- hengi við lélega viðkomu sandsílis og sjó- fugla. „Makríllinn er arðræningi og raskar því jafnvægi sem verið hefur,“ segir Sveinbjörn Stefánsson, vinnslustjóri hjá HB Granda á Vopnafirði. Hann segir að öllum tegundum ægi saman, síld, loðnu, makríl og hval. „Hvalurinn étur allt og markíllinn étur loðnu og jafnvel síld.“ Hann telur rétt að veiða meira af makríl í íslensku lögsögunni. Makríll raskar jafnvæginu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason STARFRÆKTUR verður alþjóðlegur sumarháskóli á Hrafnseyri 27.-31. júlí undir nafninu ,,Þjóðir og þjóðernisstefna á hnattvæðingartímum“. Í ár verður í stað ráðstefnuhalds haldið fimm daga námskeið þar sem nemendur verða kynntir fyrir hugtökum, kenningum og viðhorfum sem varða þjóð, þjóðerni og þjóðernisstefnu, auk þess sem fjallað verður um ferlið að baki hugmyndinni um að tilheyra ákveðinni þjóð, etnískum hópi eða samfélagi þjóða (t.d. Evrópubandalaginu). Einnig verður fjallað um nokkra fylgifiska hnattvæðingarinnar, eins og fjölmenningu og hugmyndir um heimsborgarann (cosmopolitanism). Kennslan fer fram á ensku. Kennarar á námskeiðinu eru Richard Jenkins, prófessor í félags- og mannfræði við Sheffield-háskóla á Englandi, og Valdimar J. Hall- dórsson, staðarhaldari á Hrafnseyri, sem er mannfræðingur að mennt frá háskólanum í Árósum í Danmörku (sjá www.hrafnseyri.is og www.hsvest.is). Sumarskóli á Hrafnseyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.