Morgunblaðið - 25.07.2009, Side 8

Morgunblaðið - 25.07.2009, Side 8
Reuters Á flótta Hækkandi yfirborð sjávar er vandmál í Bangladess. HEIMILI í sundlaug verður sett upp á Austurvelli í dag til að vekja athygli á stöðu flóttamanna undan hlýnun jarðar. Eru það Breytendur, hreyfing ungs fólks sem berst fyrir sanngjarnari heimi, sem standa fyrir gjörningnum, en með þessu vilja þau m.a. benda á að í Bangla- dess hafa 400.000 manns þegar þurft að flyja heimili sín vegna hækkunar sjávarmáls. Gjörningurinn er hluti af undir- skriftasöfnun Breytenda þess efnis að stjórnvöld skilgreini stöðu flóttamanna undan hlýnun jarðar. Þá vilja þau sjá Íslendinga taka sér stöðu meðal leiðandi þjóða á ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál sem haldin verður í Kaupmannahöfn í desember. Vekja athygli á stöðu flóttamanna 8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 Sími 587 9500 Landsins mesta úrval af íslenskum flugum á netinu Hörður Hafsteinsson með 91 cm lax sem tók svarta Kröflutúpu í Húseyjarkvísl Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „ÉG heyrði rifbeinin brotna, þetta gerðist það hægt að ég var eins og í pressu. Hef aldrei nokkurn tímann fundið annan eins sársauka og hef þó lent í ýmsu gegnum ævina,“ segir Sigurður Baldursson, 54 ára ferða- þjónustubóndi með meiru, er hann lýsir því þegar hann klemmdist á milli sex tonna fjallatrukks og farang- urskerru á Gæsavatnaleið sl. sunnu- dag. Var hann þar ásamt leiðsögu- manni á ferð með hóp franskra ferðamanna. Fór Sigurður aftur fyrir trukkinn til að gera við kerruna þeg- ar trukkurinn rann af stað aftur á bak og klemmdi eiganda sinn fastan. Sigurður braut í sér ein átta rif- bein, marðist mjög illa á öxl, síðu og hendi, lungað lagðist saman öðrum megin og hann má í raun teljast heppinn að hafa ekki slasast meira miðað við aðstæður. Var hann fluttur suður með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar og lá í tvo daga á gjörgæslu- deild. „Karl faðir minn hefur sagt að það hafi góðar vættir haldið hlífiskildi yfir mér,“ sagði Sigurður við Morg- unblaðið í gær. „Ákvað að búa mér til vinnu“ Sigurður var sem fyrr segir á ferð með franska ferðamenn á fjallatrukk af gerðinni Mercedez Benz Unimog, sem hann gerði upp og breytti síðasta vetur þannig að nú getur hann tekið 18 farþega í sæti. „Ég ákvað í vetur að búa mér til vinnu, keypti tvo Uni- mog-trukka og smíðaði einn úr þeim ásamt tveimur félögum mínum. Ákvað að fara í ferðaþjónustuna þar sem ég var nú alinn upp við hana og þekki vel,“ segir hann en Sigurður er sonur Baldurs Sigurðssonar á Akur- eyri sem um árabil var með fjallaferð- ir upp á Vatnajökul og víðar. Þegar óhappið varð á sunnudag hafði Sigurður farið með Frakkana vítt og breitt um hálendið; um Hvera- velli, Kerlingarfjöll, Mývatnssveit, Öskju og upp að Vatnajökli. Með í för var þaulreyndur franskur leiðsögu- maður, að nafni Caroline. „Við vorum að koma til baka frá Vatnajökli á Gæsavatnaleið þegar ég tók eftir því í hliðarspeglinum að kerran var utar í vegkantinum en hún átti að sér að vera. Ég keyrði mjög hægt, enda vegurinn erfiður þarna, en þegar ég sló af þá drapst á bílnum. Ég svissaði bara af, stökk út og hljóp aftur fyrir bílinn til að sjá hvað var að, þá sá ég að beislið á kerrunni hafði brotnað öðrum megin,“ segir Sig- urður, sem ákvað að gera við beislið til bráðabirgða, þar til komið yrði nið- ur í Gæsavatnaskála, sem var skammt framundan. Ferðamennirnir voru þá allir komnir út úr trukknum til að aðstoða Sigurð. „Þegar ég er búinn að brasa við þetta í svona hálftíma finn ég að bíll- inn, sem var í örlitlum halla, fer af stað og þrýstir mér að kerrunni og klemmir mig fastan. Þetta var hrika- legur sársauki. Ég náði að öskra að einhver yrði að færa bílinn en síðan leið yfir mig,“ segir Sigurður sem rankaði við sér á mölinni eftir skamma stund. Hann vissi strax upp á sig sökina, að hafa gleymt að setja trukkinn í handbremsu, og var „brjál- aður“ út í sjálfan sig fyrir þá yfirsjón, hann sem alltaf segist hafa reynt að sýna mikla fyrirhyggju í öllu. „Ég fann að ég gat ekki staðið upp, átti erfitt með að anda og tala og sárs- aukinn var rosalegur. Leiðsögukonan kallaði eftir hjálp og hópurinn hlúði að mér sem best hann gat. Þau stóðu sig öll frábærlega.“ Fljótlega komu á vettvang björg- unarsveitarmenn, sem höfðu verið á ferð við Öskju, og eftir að þyrlan var farin með Sigurð suður aðstoðuðu þeir ferðamennina niður í Gæsa- vatnaskála. Daginn eftir var búið að útvega bílstjóra á trukkinn og Frakk- arnir héldu för sinni áfram. „Ég fór bara að láta hugann reika, hugsaði til fjölskyldunnar og barnanna minna tveggja sem eru í Noregi. Mér þótti biðin löng en var aldrei hræddur um að þetta væri bú- ið. Læknarnir sögðu við mig seinna að ég hefði verið lífshættulega slas- aður, litlu hefði mátt muna að hrygg- urinn skaddaðist, en það hvarflaði aldrei að mér að gefast upp. Ég hef í mínum fjallgöngum og fallhlíf- arstökki lent í ýmsu,“ segir Sigurður, sem á að baki langan feril í fallhlíf- arstökki, með ein 2.500 stökk víða um heim. Þyrluflugið gekk vel fyrir sig og að sögn Sigurðar þurfti læknirinn að spyrja oftar en einu sinni um aldur sjúklingsins, svo vel fannst honum Sigurður á sig kominn líkamlega. Það bjargaði því miklu hve sterkbyggður hann er og hraustur. Sigurður er líka með létta lund en mölbrotinn og þjak- aður sagði hann þyrlusveitinni sögur úr fallhlífarstökkinu á leiðinni! Innilega þakklátur Sigurður vill að endingu koma á framfæri innilegu þakklæti til allra sem tóku þátt í björgun hans; ferða- hópnum, Caroline leiðsögukonu, björgunarsveitarmönnum, þyrlu- sveitinni og starfsfólki á Landspít- alanum. „Í öllum þeim erfiðleikum sem við göngum í gegnun núna meg- um við vera stolt af því frábæra fólki sem vinnur sín björgunar- og hjúkr- unarstörf af mikilli fagmennsku. – Maturinn á spítalanum hérna mætti reyndar vera betri,“ segir Sigurður að lokum, með sársaukasvip og reyn- ir að halda niðri í sér hlátrinum. Heyrði beinin brotna  Klemmdist fastur á milli sex tonna trukks og kerru á Gæsavatnaleið  Illa marinn og átta rifbein brotin  „Góðar vættir hafa haldið hlífiskildi yfir mér“ Morgunblaðið/Eggert Á batavegi Sigurður Baldursson er á góðum batavegi á Landspítalanum og vonast til að fara þaðan eftir helgi heim til Akureyrar. Hvort hann leggst þá fyrst inn á FSA á eftir að koma í ljós en hann hlakkar til að hitta fjölskylduna. ÁLYKTUN hefur verið send frá Q, Samtökum hinsegin stúdenta við Háskóla Íslands, þar sem skorað er á Össur Skarp- héðinsson utan- ríkisráðherra að vekja athygli á afstöðu Íslands í málefnum sam- kynhneigðra þegar utanrík- isráðherra Lithá- ens, Vygaudas Usackas, kemur í heimsókn til landsins í dag. Jafn- framt vilja samtökin að Össur for- dæmi löggjöf sem nýlega var sam- þykkt á litháenska þinginu en í ályktun Q segir m.a. að löggjöfin staðsetji „alla jákvæða umræðu um hinsegin málefni á sama stall og umfjöllun er getur valdið ótta, þyk- ir óhugnanleg eða hvatt til sjálfs- víga hjá ungu fólki“. Eiga lögin að taka gildi í mars á næsta ári og hin- segin stúdentar telja þau brjóta gegn samþykkt ESB um verndun mannréttinda., sem tryggð er í 6. grein Evrópusáttmálans. Vilja sam- tökin að Össur fordæmi þá mis- munun sem lögin muni hafa í för með sér í Litháen og eigi ekki að viðgangast innan ESB. Össur fær hinsegin áskorun Össur Skarphéðinsson Í einni af fyrstu ferðum Sigurðar á nýja trukknum með ferðamenn fyrr í sumar varð hann fyrir óhappi í Hvalfjarðargöngum. Þá var ekið aftan á sérsmíðaða kerru sem hann var með í afturdragi og gjör- eyðilagðist hún. Engan sakaði í óhappinu en umferð tafðist um göngin í eina þrjá klukkutíma. Sigurður er hvergi banginn þrátt fyrir þessi óhöpp og ætlar að halda áfram akstri á trukknum með ferðamenn, þegar heilsan leyfir. Fram að því hefur hann útvegað sér bílstjóra og er þegar farinn að skipuleggja ferðir yfir Sprengisand næsta vetur. Á vefnum extreme.is má nálgast upplýsingar um fyrir- tækið en hann er líka í góðu sam- starfi við Ferðakompaníið í ár. Lenti nýverið í óhappi í göngunum Sérsmíði Trukkur Sigurðar með kerruna sem skemmdist í sumar. NÝFALLINN snjór náði langt niður í hlíðar Víðidals- fjalls í Húnavatnssýslu í gær og óvenjukuldalegt um að litast í ljósi þess að nú er hásumar að heita má. Eftir mikla sumarblíðu er nú skyndilegt kuldakast skollið á landinu og fór hitinn víða niður fyrir frost- mark í fyrrinótt, m.a. á láglendi Suðurlands og mældist 1,6 stiga frost á Hellu. Þetta varð til þess að kartöflugrös féllu í Þykkvabæ, sem búast má við að hafi heldur neikvæð áhrif á upp- skeruna. Afar óvenjulegt er að þetta gerist í júlí þótt komið hafi fyrir að grös falli vegna kulda í síðari hluta ágúst enda er þetta í fyrsta skipti í tæpri 60 ára sögu veðurmælinga á Hellu sem þar mælist frost í júlí. Víða snjóaði til fjalla og gekk t.d. á með hryðjum á Hveravöllum. Tjaldferðalangar víða um land áttu því heldur kuldalega nótt og voru misvel búnir að takast á við slík veðrabrigði. Rykkjótt veður framan af næstu viku Ekki var veðrið þó alls staðar jafnslæmt og búist hafði verið við. Húsvíkingar glöddust t.d. því að til- tölulega hlýtt var þar í veðri og stillt þrátt fyrir að um- merki snjókomu mætti greina í hlíðunum við Botns- vatn. Samkvæmt veðurspánni í gærkvöldi var enn búist við næturfrosti í innsveitum víða um land í nótt. Í dag má búast við hægri norðvestanátt og víða skúr- um, en hiti verður 7 til 14 stig, hlýjast á Austurlandi. Veðrið framan af næstu viku verður á svipuðum nótum, búast má við að hitinn fari mest upp í 18 stig og skúra- samt víða um land. Ekki er þó ástæða til að örvænta þótt veðrið láti svo undarlega í júlí. Enn er ágústmán- uður eftir og ekkert því til fyrirstöðu að hitinn nái sér aftur á strik og sólin skíni í heiði til sumarloka. Óvenjulegt júlíveður með nætur- frosti og víða snjókomu til fjalla Ljósmynd/Sölvi Logason Júlísnjór Hvítar hlíðar Víðidalsfjalls um hádegi í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.