Morgunblaðið - 25.07.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009
Mikil var nú gleði Össurar Skarp-héðinssonar utanrík-
isráðherra í fyrradag þegar hann
afhenti Carl Bildt, utanrík-
isráðherra Svía, umsókn Íslands um
aðild að ESB með formlegum hætti
í Stokkhólmi. Ugglaust var gleði
ráðherrans með öllu fölskvalaus.
En fór ráð-herrann ekki
aðeins fram úr
sjálfum sér þegar
hann lýsti því yfir
að þarna væri um
sögulegan atburð
að ræða?
Hvað var svonasögulegt? Var eitthvað sögu-
legt við það að afhenda umsókn um
aðild að ESB öðru sinni?
Var það ekki sendiherra Íslands íSvíþjóð, Guðmundur Árni Stef-
ánsson sem var fenginn til þess að
skokka með umsóknina í sænska ut-
anríkisráðuneytið daginn eftir að
Alþingi hafði samþykkt aðild-
arumsóknina?
Sennilega finnst utanrík-isráðherra Íslands, Össuri
Skarphéðinssyni, að Ísland hafi
ekki sótt um aðild að Evrópusam-
bandinu fyrr en hann hefur gert
það sjálfur.
Carl Bildt, utanríkisráðherra Sví-þjóðar, sagði á blaðamanna-
fundi í fyrradag að af og frá væri að
tengja umsóknina við Icesave-
málið, þvert á það sem utanrík-
isráðherra Hollands hafði gefið í
skyn. Það á eftir að koma á daginn
hvor ráðherrann fer með rétt mál.
Þótt umsókn Íslands sé á dagskráfundar utanríkisráðherra Evr-
ópusambandsins á mánudag, liggur
ekkert fyrir um það hvort eða
hvernig hún verður afgreidd.
Er ekki viturlegra að bíða örlítið
með fagnaðarlætin?
Össur
Skarphéðinsson
Hégómi utanríkisráðherrans
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 léttskýjað Lúxemborg 21 léttskýjað Algarve 27 heiðskírt
Bolungarvík 4 rigning Brussel 18 skúrir Madríd 29 heiðskírt
Akureyri 10 skýjað Dublin 17 skúrir Barcelona 28 heiðskírt
Egilsstaðir 10 skýjað Glasgow 18 skýjað Mallorca 31 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað London 16 léttskýjað Róm 35 heiðskírt
Nuuk 4 þoka París 19 skýjað Aþena 38 heiðskírt
Þórshöfn 12 léttskýjað Amsterdam 20 léttskýjað Winnipeg 13 heiðskírt
Ósló 21 heiðskírt Hamborg 21 léttskýjað Montreal 23 heiðskírt
Kaupmannahöfn 18 skúrir Berlín 22 léttskýjað New York 21 alskýjað
Stokkhólmur 21 heiðskírt Vín 25 skýjað Chicago 26 léttskýjað
Helsinki 21 skýjað Moskva 24 skýjað Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
25. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.31 0,0 8.39 4,0 14.44 0,1 20.57 4,2 4:14 22:56
ÍSAFJÖRÐUR 4.40 0,1 10.36 2,2 16.49 0,2 22.49 2,5 3:52 23:28
SIGLUFJÖRÐUR 0.44 1,5 7.01 -0,0 13.22 1,4 19.04 0,1 3:33 23:12
DJÚPIVOGUR 5.39 2,3 11.52 0,1 18.08 2,4 3:37 22:32
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag
Austan 8-13 m/s og rigning á
S-verðu landinu, en hægara og
þurrt að mestu fyrir norðan.
Hiti 8 til 15 stig, hlýjast N- og V-
lands.
Á mánudag
Norðaustan 8-13 m/s og skýjað
með köflum, en dálítil væta á
N- og A-landi. Hiti 8 til 18 stig,
hlýjast SV-til.
Á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag
Norðaustlægar áttir og fremur
vætusamt, en milt veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hægviðri og víða skúrir og hiti
7 til 14 stig, hlýjast á Austur-
landi. Sums staðar næturfrost í
innsveitum.
Siglufjörður | Bátar sem róa frá
Siglufirði hafa fiskað ágætlega á línu
undanfarnar vikur. Algengt er að
þeir hafi fengið 4-6 tonn í róðri en
fyrir skömmu var landað 12 tonnum
úr einni veiðiferð. Aflinn hefur að
langmestu leyti verið góður þorskur
en nú er farið að koma nokkuð af ýsu
með.
Fimmtán aðkomubátar hafa lagt
upp hjá Fiskmarkaði Siglufjarðar
undanfarið og auk þess eru um tíu
heimabátar. Aðkomubátarnir koma
flestir úr Grindavík og Sandgerði og
hafa sumir verið í Siglufirði und-
anfarin sumur. Búist er við að þeir
verði fyrir norðan fram á haust og
sumir jafnvel fram undir jól.
Steingrímur Óli Hákonarson,
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Siglufjarðar, segir að oftast séu um
22-25 landanir á dag. Hann segir að
aðkomubátarnir hafi byrjað að koma
norður í apríl og hafi síðan verið að
smáfjölga. Bátarnir eru flestir með
beitningavélar um borð, en engu að
síður hleypi þetta talsverðri drift í
bæinn því að sjálfsögðu kaupi út-
gerðirnar ýmsa þjónustu í Siglufirði,
ekki síst varðandi viðgerðir á bát-
unum, en í Siglufirði er einmitt fyr-
irtæki sem hefur sérhæft sig í smíði
og viðgerðum á plastbátum und-
anfarin ár. Steingrímur segir að nú
starfi tíu manns hjá Fiskmark-
aðnum, sem sé það mesta síðan hann
var stofnaður fyrir nokkrum árum.
Fimmtán aðkomubátar og góður afli
Algengt að bátar sem róa frá Siglu-
firði fái 4-6 tonn í hverjum róðri
Glaðbeittir Skipverjar á Óla á Stað
GK 99 taka beitu um borð.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Milljónaútdráttur
Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að
hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
7. flokkur, 24. júlí 2009
Kr. 1.000.000,-
717 B
1742 F
4769 E
22352 H
23618 E
30925 F
31143 H
38974 B
45556 E
45888 H
Til hamingju
vinningshafar