Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 26

Morgunblaðið - 25.07.2009, Síða 26
26 Daglegt lífVIÐTAL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is I ndriði H. Þorláksson, fyrr- verandi ríkisskattstjóri, er aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar fjár- málaráðherra. Indriði sat í Icesave-samninganefndinni en samn- ingurinn er harðlega gagnrýndur og tvísýnt er að hann verði samþykktur á þingi í óbreyttri mynd. Eftir að hafa verið embætt- ismaður ert þú orðinn aðstoð- armaður ráðherra, orðinn vel full- orðinn, verður sjötugur á næsta ári. Hvernig er að vera kominn í nálægð við pólitíkina? „Ég hef lengst af verið í nánd við pólitíkina en er kominn yfir þann ald- ur að fara í hana þótt ég hafi tekið að mér að vera fjármálaráðherra innan handar í einhverjum málum. Þetta eru einstakir tímar að flestu leyti en ekki ánægjulegir. Mikil og erfið verkefni hafa verið og eru í vinnslu í fjármálaráðuneytinu. Það þarf ekki annað en að nefna Icesave- samningana, endurreisn bankanna, það að ná jöfnuði í ríkisfjármálum og samningana við Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn. Þetta hefur krafist mikillar vinnu en sem betur fer hefur fjöldi hæfra manna komið að verkum.“ Mótandi ár Þú lærðir hagfræði í Þýskalandi á árunum 1963-1969. Í gegnum árin hafa sumir viljað stimpla þig sem harðan vinstrimann, jafnvel komm- únista. Er eitthvað til í því? „Ég hef aldrei verið harður vinstri- maður eða harður á neinni pólitískri línu. Ætli ég sé ekki þverpólitískur. Eina skiptið sem ég hef verið bund- inn flokksböndum, ef svo má kalla, var þegar ég var um tíma í Félagi ungra sjálfstæðismanna norður á Akureyri á menntaskólaárunum enda af rótgróinni íhaldsætt. Mér leiddist það heldur og það urðu einu formlegu tengsl mín við pólitíska flokka. Úr því að verið er að kenna mig við kommúnisma get ég sagt að í kosningum gegnum árin hef ég ein- hvern tíma kosið alla alvöruflokka á Íslandi nema Kommúnistaflokkinn og arftaka hans. Þótt það sé nokkuð langsótt að kenna mig við komm- únisma er það mér að meinalausu.“ Hvernig var námstíminn í Vestur- Berlín? „Það voru góð, eftirminnileg og mótandi ár. Dvölin í Þýskalandi hafði mikil áhrif á mig. Þetta voru um- brotatímar í mörgum skilningi. Það voru ekki nema um 20 ár liðin frá lok- um síðari heimsstyrjaldarinnar. Bandamenn höfðu leitt til valda í V- Þýskalandi pólitíska forystu fyrri tíma sem var sæmilega hrein af nas- ismanum en hún og þjóðin var í af- neitun, hafði ekki horfst í augu við eða gert upp fortíðina. Kalda stríðið, átök og andstæður austurs og vest- urs veittu skjól í þessum efnum. Á þessum tíma fóru ný viðhorf að koma í ljós. Spurt var hvort heimurinn væri virkilega bara svartur og hvítur. Hugmyndin um að mismunandi sam- félagsform gætu lifað hlið við hlið í friðsamlegri sambúð leiddi síðar til þess hruns einveldis í Austur-Evrópu sem vopnaskak gat ekki áorkað. Hægriflokkarnir sem ráðið höfðu lögum og lofum í V-Þýskaland voru staðnaðir en þjóðin var að rumska eftir langt tímabil efnahagslegrar uppbyggingar og kröfur fóru að heyrast frá menntamönnum, lista- mönnum og unga fólkinu um breyt- ingar og uppgjör við fortíðina. Þýskir sósíaldemókratar voru líka í fjötrum fortíðar en stóðu á tímamótum. Þeir fjötrar voru brotnir þegar Willy Brandt og yngri kynslóðin í kringum hann náði fram verulegri stefnu- breytingu sem kemur glöggt fram í samþykktum flokksþingsins í Bad Godesberg 1968 þar sem grafnar voru hugmyndir um þjóðnýtingu og ríkisrekstur og stefnan sett á fé- lagslegan markaðsbúskap sem segja má að eigi sér fyrirmynd í norrænu velferðarríkjunum. Hluti af þessu umróti í Þýskalandi var breyting á viðhorfum til valdsins og stofnana samfélagsins. Hlýðni við boð að ofan var rótgróin í þýsku sam- félagi, ekki síst stjórnkerfinu, og skýrir ef til vill að hluta bæði varn- arleysi þjóðarinnar við yfirgangi inn- an frá sem og þýska efnahagsundur eftirstríðsáranna. Rithöfundurinn Gunter Grass, sem var harður stuðn- ingsmaður Willy Brandt, og fleiri andans menn gerðu harða hríð að þessum hugsunarhætti og boðuðu fjölhyggju þar sem mismunandi skoðanir fengju að þróast og takast á. Þetta höfðaði mjög til mín og hefur ef til vill gert það að verkum að ég hef forðast að binda trúss mitt við eina hugsjón, stefnu eða flokk. Eftir að ég kom heim frá Þýska- landi og kynntist pólitísku lífi og stjórnunarháttum hefur oft hvarflað að mér hvort þetta gamla viðhorf til valdsins sé ekki enn alltof ríkjandi í íslenskri pólitík og stjórnsýslu þar sem svokölluðu ráðherravaldi er hampað og til þess er ætlast að eftir höfðinu dansi limirnir allt niður á neðstu hæð. Mér hugnast betur stjórnsýsla sem byggist á vissu sjálf- stæði hverrar einingar og jafnframt á ábyrgð hennar. Embættismenn eigi ekki að þjóna húsbændum sínum með því að gera vilja þeirra í blindni heldur að leggja þeim til ráð eins og þeir best kunna, hvort sem þau eru vel séð eða ekki. Ég reyndi að ástunda þetta í mínum embætt- isstörfum þótt því hafi verið misvel tekið.“ Mér er sagt að þú hafir hlustað á John F. Kennedy flytja fræga ræðu í Berlín þar sem hann sagði hin fleygu orð: Ich bin ein Berliner. „Ég var á ferð á milli staða í Berlín á björtum og fallegum vordegi og var í nánd við Rathaus Schöneberg þar sem mikill mannfjöldi streymdi að ráðhúsinu og ég slóst með í hópinn. Eftir stundarkorn komu út á svalir ráðhússins Adenauer kanslari og Willy Brandt sem þá var borgarstjóri í Berlín í fylgd með John F. Kenn- edy, forseta Bandaríkjanna. Ég hlustaði á hann flytja hina sögufræga ræðu sína. Það var gífurleg stemning og ógleymanlegt andartak að heyra undirtektir fjöldans þegar Kennedy sagði hin fleygu orð: Ich bin ein Berl- iner. Þessi yfirlýsing um samstöðu hafði mikil áhrif á almenning og bætti andrúmsloftið í borginni sem mótast hafði æ meir af vonleysi ein- angrunar eftir byggingu múrsins tveimur árum áður.“ Allt uppi á borðinu Það er engin sérstök hrifning- arstemning meðal landsmanna núna, þar á meðal út af Icesave. En hversu slæm er staðan að þínu mati? „Staða þjóðarbúsins er mjög alvar- leg í þeim skilningi að þrengingar verða á næstu árum. En við ættum að hafa í huga að við höfum haft það mjög gott þannig að jafnvel þó að eitthvað gefi á bátinn er staða okkar meðal þjóða eftir sem áður bærileg. Við höfum verið með hærri þjóð- artekjur á mann en flest önnur lönd og atvinnuleysi hefur verið lítið. Í þessu tilliti erum við að færast niður en þó langt frá því niður á botn. Tekjur á mann verða áfram háar í evrópskum samanburði, þótt at- vinnuleysi, vonandi tímabundið, verði svipað og hefur verið viðvarandi sums staðar í Evrópu árum saman.“ Þú varst í Icesave-samninga- nefndinni sem starfaði undir forystu Svavars Gestssonar. Þessi nefnd var skipuð embættismönnum úr stjórn- kerfinu. Hefði verið heppilegra að skipa hana hörðum viðsemjendum úr einkageiranum, til dæmis lög- mönnum á lögmannsstofum? „Ég tel að nefndin hafi verið full- fær um að sinna þessu verkefni og auk þess studdist hún við ráðgjöf fjölda manna með sérþekkingu á því sem skipti máli. Það er misskilningur að halda að svona samningar snúist um lagaklæki og klækjabrögð við samningsborð. Samningar snúast fyrst og fremst um það að finna ein- hverja þá niðurstöðu sem kemur á sanngjarnan hátt til móts við hags- muni beggja aðila. Það er mikilvæg forsenda í öllum samningum að menn setji sig vel inn í hagsmuni og afstöðu viðsemjenda sinna og geri þeim grein fyrir eigin afstöðu og hagsmunum. Það er yfirleitt ekki svo að þeir sem sitja við samningaborðið séu óvinir sem reyna að klekkja hvorir á öðrum heldur eru þeir í sameiginlegum leið- angri að leita að lausn sem er við- unandi fyrir báða aðila.“ Hafði fólk í nefndinni einhverja reynslu af samningum af þessu tagi? „Hvað er „samningur af svona tagi?“ Þetta verkefni var mjög sér- stakt. Í samninganefndinni voru menn úr seðlabankanum, forsæt- isráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu, viðskiptaráðuneytinu, hagfræðingar og lögfræðingar, margir með langa reynslu af samningagerð meðal ann- ars lánasamninga og viðskiptasamn- inga. Ég tel mig meðal annars hafa nokkra reynslu í samningamálum innanlands og við erlend ríki í sam- bandið við skattamál og fleira. Það er í góðu lagi að gagnrýna samninganefndina en sú gagnrýni verður að vera byggð á rökum. Ef menn geta sýnt fram á með rökum að samningsniðurstaðan sé léleg eða ófullnægjandi þá er ég tilbúinn að játa á mig mistök, kunnáttuleysi eða hvað annað sem skýrði það. En ef menn geta ekki sýnt fram á þetta er gagnrýni sem byggist á því að sá tor- tryggnisfræjum um hæfileika nefnd- armanna á veikum grunni byggð og í reynd rógsígildi.“ Finnst þér þá gagnrýnin sem hef- ur komið fram ekki vera mál- efnaleg? „Gagnrýnin hefur verið af ýmsum toga. Hluti hennar hefur verið mál- efnalegur en ótrúlega mikill tími hef- ur farið í að fjalla um hluti sem skipta litlu máli og alls konar hugmyndir, lausnir og fullyrðingar hafa sem ekki eiga sér stoð í raunveruleikanum. Dæmi um það eru atriði eins og að átt hefði að greiða innistæðurnar út í íslenskum krónum. Önnur eru um fullyrðingar um meinta leynd og bak- tjaldamakk, marklausum pappírum er veifað daglega með meintum af- hjúpunum um allt að því landráð og jafnvel virtir lögmenn láta leiða sig út í slæðudans af þessu tagi. Stað- reyndin er hins vegar sú að það ligg- ur allt á borðinu sem snertir þessa samninga. Þegar í upphafi var ákveð- ið að öll gögn skyldu fylgja með þeg- ar frumvarpið kæmi fram og það var gert og við þau hefur verið bætt eftir því sem ný gögn hafa bæst við eða komið hefur í ljós að eitthvað hafi yf- irsést. Ég efa að nokkurn tíma áður hafi mál verið lagt fyrir Alþingi með jafn ítarlegu gagnasafni og jafn mikl- um aðgangi en almenningur hefur aðgang að allflestum þessum gögn- um og þingmenn að þeim öllum.“ Órökstuddar fullyrðingar Er þetta góður samningur? „Hvað er góður samningur? Að því gefnu að semja þurfi um greiðslu á tiltekinni stórri fjárhæð eins og var í þessu tilviki er það þrennt sem skipt- ir máli, lengd lánstímans, greiðslu- ferillinn, einkum afborgunarlaus tími og vextir. Lengd lánstímans skiptir máli, einkum ef efnahagurinn er ekki góður og heppilegt að dreifa greiðslubyrðinni sem mest. Það er líka mikils virði að hafa ákveðinn tíma til að búa sig undir greiðslurnar eða til að sjá til þess að þær lendi á heppilegum tíma þegar þar að kemur og svo skipta vextirnir máli. Þetta eru þau meginatriði sem menn leggja til grundvallar þegar þeir skoða lána- samninga. Ef litið er á þessa þætti í samn- ingnum má segja að hann sé býsna góður. Það er óvanalegt í lánasamn- ingum ríkja að taka lán til fimmtán ára. Norðurlandalánin, sem líka þykja góð, eru til tólf ára og Alþjóða- gjaldeyrissjóðslánið er miklu styttra. Við fáum greiðslufrest í sjö ár sem er líka óvanalega langur tími og fleytir okkur yfir tímabil sem verður erfitt fyrir efnahagslífið og miklar afborg- anir annarra lána falla á. Vaxtakjörin eru góð, vextirnir miklu lægri en okkur stendur ella til boða og hag- stæðari en í sambærilegum samn- ingum svo sem í samningum við Norðurlöndin og Alþjóðagjaldeyr- issjóðinn. Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri og aðstoðarmaður fjármálaráðherra Gífurlega mikið undir Staða þjóðarbúsins En við ættum að hafa í huga að við höfum haft það mjög gott þannig að jafnvel þó að eitthvað gefi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.