Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 25.07.2009, Blaðsíða 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009 Sudoku Frumstig 6 2 2 5 4 3 3 7 9 7 4 6 8 3 2 6 8 4 9 4 7 5 3 1 6 7 5 9 3 8 2 1 7 7 4 2 1 5 7 4 9 6 5 3 8 4 6 5 9 4 1 6 9 4 1 7 5 8 4 8 3 5 2 9 9 1 2 4 6 7 8 3 8 9 1 5 6 2 8 3 9 7 4 2 4 7 9 6 5 1 8 3 8 9 3 7 4 1 2 5 6 7 6 4 8 5 2 3 1 9 5 8 2 3 1 9 4 6 7 9 3 1 4 7 6 8 2 5 4 1 8 6 3 7 5 9 2 6 2 5 1 9 4 7 3 8 3 7 9 5 2 8 6 4 1 2 6 4 5 3 9 1 7 8 8 7 9 4 6 1 2 3 5 3 5 1 2 7 8 9 4 6 4 2 8 3 5 6 7 9 1 7 9 5 8 1 2 3 6 4 1 3 6 9 4 7 5 8 2 9 8 3 1 2 4 6 5 7 5 1 7 6 8 3 4 2 9 6 4 2 7 9 5 8 1 3 1 3 4 6 8 9 5 2 7 9 7 8 5 1 2 6 3 4 2 5 6 3 7 4 9 1 8 7 9 2 1 3 6 4 8 5 5 4 1 9 2 8 3 7 6 8 6 3 7 4 5 2 9 1 6 1 7 4 9 3 8 5 2 3 8 5 2 6 1 7 4 9 4 2 9 8 5 7 1 6 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þann- ig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röð- inni. Í dag er laugardagur 25. júlí, 206. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Reglur þínar eru dásam- legar, þess vegna heldur sál mín þær. Útskýring orðs þíns upplýsir, gjörir fá- vísa vitra. (Sl. 119, 129-130.) Það vekur alltaf gleði hjá Víkverjaþegar ferðamennirnir flykkjast til Íslands frá öllum heimshornum. Eiginlega er það ómissandi hluti af sumarstemningunni að sjá ráðvillta túrista í litríkum útivistarfatnaði rýna í kort á reykvísku götuhorni. Ferðamennirnir gæða borgina lífi og sveitirnar sömuleiðis. Sjálfur nýtur Víkverji þess að leiðbeina útlend- ingum um fallega landið sitt og vonast alltaf til þess að þeir vindi sér upp að honum og spyrji til vegar. Sýni þeir ekki sjálfir frumkvæði gerir Víkverji það jafnvel óumbeðinn og telur sig þannig byggja upp orðspor Íslendinga sem hjálpsamrar þjóðar. x x x Um síðustu helgi var Víkverji áferð yfir Kjalveginn þegar hann rakst á tvo puttaferðalanga við Hvít- árvatn, par frá Póllandi og Spáni. Víkverji var hæstánægður með að geta kynnt þeim íslenska gestrisni með því að taka þá upp í bílinn en fljótt féll skuggi á þá sjálfsánægju þegar Pólverjinn greindi frá því hvers vegna hann skartaði fjólubláu glóð- arauga og bólginni kinn. Þetta ágæta par, sem vildi hvergi frekar eyða fríinu sínu en á Íslandi, vaknaði upp við það fyrstu nóttina sína hér á Þingvöllum að fullir Íslend- ingar kepptust við að stökkva yfir tjaldið þeirra. Þegar hinn pólski skreið út til að biðja þá vinsamlegast að hætta kýldu Íslendingarnir hann í jörðina. x x x Víkverja til huggunar var parið,þrátt fyrir þessi ömurlegu fyrstu kynni sín af Íslendingum, alsælt með að vera komið til draumalandsins. Sjálfum finnst Víkverja mun meira varið í ferðalög þar sem hann kemst í kynni við heimamenn og fær innsýn í þjóðarsálina. Það er gaman að vera tekið opnum örmum og finna að heimamenn gleðjist yfir því að maður vilji heimsækja landið þeirra. Vonandi kynnast flestir ferðamenn hér á landi velvild og hjálpsemi Ís- lendinga. Það er sennilega áhrifarík- asta landkynning sem hugsast getur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 á, 4 örlaga- gyðja, 7 suð, 8 gufa, 9 þegar, 11 úrræði, 13 kvísl, 14 órólegt, 15 ker- ald, 17 draga, 20 borða, 22 horaður, 23 smá, 24 rugga, 25 ræktuð lönd. Lóðrétt | 1 ný, 2 mán- aðar, 3 spilið, 4 digur, 5 mergð, 6 móka, 10 með æðum, 12 verkfæri, 13 stefna, 15 keimur, 16 brennur, 18 samdir, 19 fiskar, 20 baun, 21 grísk- ur bókstafur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 handfangs, 8 engil, 9 gegna, 10 ata, 11 nárar, 13 ræsið, 15 þveng, 18 státa, 21 róm, 22 rotta, 23 ábati, 24 kardínáli. Lóðrétt: 2 alger, 3 dalar, 4 angar, 5 goggs, 6 senn, 7 sauð, 12 ann, 14 ætt, 15 þora, 16 eitra, 17 grand, 18 smáan, 19 áfall, 20 atir. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c3 d6 4. Bf4 Rbd7 5. Rbd2 De7 6. Bg3 h6 7. e4 Rh5 8. Bd3 g6 9. De2 Bg7 10. e5 Rb6 11. Re4 Rxg3 12. fxg3 Bd7 13. 0–0 0–0–0 14. a4 Bc6 15. a5 Rd7 16. a6 b6 17. Bb5 Bd5 18. c4 Ba8 19. exd6 cxd6 20. b4 Kb8 21. c5 dxc5 22. bxc5 f5 23. Red2 Rxc5 24. dxc5 Dxc5+ 25. Kh1 Bxa1 26. Hxa1 e5 27. Rb3 Dd5 28. Rxe5 Hh7 29. Bc4 De4 30. Dxe4 Bxe4 31. Kg1 Hc7 32. Ha4 g5 33. Kf2 Bd5 34. Rd4 Kc8 35. Bd3 Hc5 36. Bxf5+ Kc7 37. Rd3 Hc4 38. Hb4 Bg8 39. Rb5+ Kb8 Staðan kom upp á opna skoska meist- aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Ed- inborg. Enski stórmeistarinn Mark Hebden (2.468) hafði hvítt gegn skoska kollega sínum Jonathan Rowson (2.591). 40. Re5! Hc1 svartur hefði orðið mát eftir 40. … Hxb4 41. Rc6+ Ka8 42. Rc7#. 41. Rd7+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Lengri leiðin. Norður ♠1085 ♥D1086 ♦42 ♣D854 Vestur Austur ♠762 ♠43 ♥ÁKG32 ♥975 ♦ÁD9 ♦G10865 ♣73 ♣962 Suður ♠ÁKDG9 ♥4 ♦K73 ♣ÁKG10 Suður spilar 4♠. Vestur opnar á 1♥ og sú sögn geng- ur ótrufluð til suðurs. Hvað á suður að segja? Styttri leiðin er að stökkva beint í 4♠, en kórrétt nálgun er þó að dobla fyrst. Við því segir makker 2♣. Hvað nú? Það er of lítið að segja 2♠ og stökk í 3♠ er villandi. Best er að krefja með 2♥. Norður segir 2G og nú ætti að vera óhætt að segja 3♠, sem norður lyftir í fjóra. En er það of mikið sagt? Vestur kemur út með ♥Á og spilar trompi í öðrum slag. Nei – þetta er mátulega sagt. Sagn- hafi tekur alla svörtu slagina og endar í blindum. Heima á hann þá eftir kóng þriðja í tígli, en í borði tígulhund og ♥D10. Vestur er nú kominn niður á stakt mannspil í tígli eða hjarta og þar verður honum spilað inn til að gefa úr- slitaslaginn á hinn rauða litinn. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Erfitt getur verið að eiga við and- stæðing sem er svo líkur manni sjálfum að furðu sætir. Hrapaðu ekki að ákvörð- unum. Ef það gerist skaltu grípa gæsina. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það eru oftast fleiri en ein hlið á hverju máli. Gerðu hvorki þér né þínum nánustu slíkan glannaskap. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Fólki finnst þú sjálfum þér næg- ur, kannski vegna þess að það eru svo margar hliðar á þér. Að næra sjálfan þig bætir samböndin og gefur listaverkum þínum meiri dýpt. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Furðulegt viðhorf þitt til atburða dagsins fær aðra til þess að hlæja, þó að þú sért ekki að reyna að vera fyndinn. Gættu þess samt að fara ekki yfir strikið. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er hætt við að þú sért nið- urdregin/n og gagnrýnin/n á aðra í dag. Leitaðu að kjarnanum, ekki síst í málum sem viðkoma fjölskyldunni. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Einhver vandræði koma upp í sam- skiptum þínum við aðra og þú þarft að leita þér að bandamanni. Til að vera í nú- inu þarftu að hætta þessari sjálfs- gagnrýni sem dregur athyglina frá því. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Kjánalegir einstaklingar þvælast fyr- ir voginni. Margar hendur vinna létt verk. Leggðu hundshausinn til hliðar og vertu glaður og gefandi. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Sporðdrekinn græðir á hvers kyns tjáskiptum í dag. Gefðu skít í fortíð- ina með stæl – eins og þér einum er lagið – og haltu áfram að vera sú manneskja sem þig hefur alltaf langað að vera. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Allir eru að tala um framtíðina þína. Rétt mat á aðstæðum veltur á get- unni til þess að sjá eitthvað frá sjónarhóli annarra. Taktu til í myrkum skúma- skotum heimilisins. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Frestaðu því ekki til morguns að gera eitthvað fyrir heilsuna. Gættu þess samt að verðlauna viðkomandi á end- anum, annað væri hrein illska. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Einbeittu þér að því sem þú ert að fást við og leyfðu engum að trufla þig á meðan. Fallegt útsýni væri ánægjulegt og eitthvað til þess að l hlakka til. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þér finnst sérstaklega gaman að umgangast alls konar fólk þessa dagana. Finndu þér leið til að létta á þér. Stjörnuspá Vinkonurnar Hugrún Helga Stefánsdóttir og Helga Rakel Fjalarsdóttir Hagalín voru með tívol- ískotbakka á Eið- istorgi og einnig söfnuðu þær flöskum og seldu. Hagnaðurinn af hvorutveggja var 3.388 krónur sem þær afhentu Rauða krossinum. Hlutavelta „Ég ætla að byrja í sumarfríi þennan dag og vera í fríi til 10. ágúst,“ segir Halldór Halldórsson, bæj- arstjóri á Ísafirði og formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og afmælisbarn, þegar hann er inntur eftir því hvernig hann hyggist eyða deg- inum. Stefnan er að fara inn í Ögur við Ísafjarðardjúp, þar sem hann er uppalinn, og vera þar í bústað. Halldór, sem á fjögur börn, segist nú ekki eiga von á því að tvö elstu börnin geti heiðrað hann með nærveru sinni þar sem þau verði að vinna. Hins vegar verði hann í góðum félagsskap með konu sinni Guðfinnu M. Hreiðarsdóttur sagnfræðingi og tólf ára syni þeirra. „Við stefnum á að hafa það huggulegt og fara á kajak á Djúpinu,“ segir Halldór sem reri í kringum Vigur í gærkvöldi en hann hefur stundað kajakróður síðan 2004. „Það er eiginlega ekki hægt að eiga heima hérna nema eiga skíði, gönguskíði, vélsleða og kajak,“ segir Halldór og skellir upp úr. Nátt- úran bjóði einfaldlega upp á þetta. sigrunrosa@mbl.is Halldór Halldórsson bæjarstjóri er 45 ára Rær á kajak í tilefni dagsins 25. júlí 1946 Samþykkt var á Alþingi „að sækja um inntöku Íslands í bandalag hinna sameinuðu þjóða“. Aðildin kom til fram- kvæmda 19. nóvember. 25. júlí 1950 Sjötíu bandarískar „orustu- flugvélar knúðar þrýstilofts- hreyflum,“ eins og Vísir orð- aði það, komu til Keflavíkurflugvallar frá Grænlandi. Herþoturnar voru á leið til Bretlands og Þýska- lands. 25. júlí 1955 Útvarpið hóf flutning á saka- málasögunni „Hver er Greg- ory?“ eftir Francis Durbridge. „Nú er á fátt hlustað eins mik- ið og á þessa sögu,“ sagði síð- ar í Alþýðublaðinu. „Fólk fer yfirleitt ekki út þegar sagan er lesin.“ 25. júlí 1992 Dómari í leik ÍA og Vals á Akranesi var með upp- tökubúnað innan klæða og hljóðritaði samskipti sín við leikmenn, án vitundar þeirra. Leikurinn var síðan sýndur á Stöð 2. „Talið brot á fjar- skiptalögum og lögum er varða friðhelgi einkalífsins,“ sagði Morgunblaðið. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.