Morgunblaðið - 25.07.2009, Page 48

Morgunblaðið - 25.07.2009, Page 48
Aðspurður hvort það sé einhver hljómsveit sem hann vildi gjarna sjá aftur nefnir Gísli umsvifalaust Strigaskó nr. 42; „Ég myndi vilja sá Strigaskóna spila gamla efnið sitt, taka sama settið og þeir tóku á Blót útgáfutónleikunum.“ Strigaskórinir eru enn starfandi en komnir á nokkuð aðrar slóðir og öllu meira torleiði þó það hafi vissulega aldrei verið létt að fylgja sveitinni. Strigaskórnir létu fyrst á sér kræla i Músíktilraunum 1990 og kepptu þar alls þrisvar, aukin- heldur sem forsprakki sveitar- innar, Hlynur Aðils Vilmarsson, tók þátt í tilraunasprelli með fleiri sveitum. Fyrsta útgáfa Strigaskónna var tvö lög á safnplötu 1993 en síðan kom meistaraverkið Blót fyrir ald- arfjórðungi, um það leyti sem dauðrokkið íslenska lognaðist útaf að mestu – sígild plata í íslenskri rokksögu. Hvernig væri nú að Strigaskónum yrði boðið að flytja Blót á Airwaves? Gamla Strigaskó, takk 48 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2009  Ert þú með húfuna hans Nóa albínóa eða fjarstýringunni úr Só- dómu Reykjavík? Ef svo er skaltu drífa þig í Norræna húsið því RIFF og Norræna húsið óska eftir leikmunum, búningum og öðru sem tengist kvikmyndasögu Ís- lands, fyrir föstudaginn 14. ágúst. Munirnir fara á sýningu sem sett verður upp á sérstökum Bíóbar í kjallara hússins 17. – 27. sept- ember. Ilmur Dögg hjá Norræna húsinu tekur við dótinu og gefur í staðinn frímiða á RIFF. Góð skipti það. Átt þú fjarstýringuna úr Sódómu Reykjavík? Fólk ILMUR Kristjánsdóttir hefur verið ráðin til Borgarleikhússins ótímabundið þar sem hún mun fara með hlutverk Höllu í leikrit- inu Gauragangi. Leikhússtjóri Borgarleikhússins, Magnús Geir Þórðarson, mun leikstýra verkinu. „Ég er sko í Þjóðleikhúsinu fram að áramótum,“ bendir Ilmur á. Hvað samninginn við Borg- arleikhúsið varðar segir hún hann ótímabundinn. „Magnús Geir vill hafa fastan hóp og að fólk sé ekki mikið að fara milli húsa.“ Ilmur var þegar búin að ráða sig í verkefni í Þjóðleikhúsinu, Gerplu, í uppfærslu Baltasars Kormáks en æfingar hefjast upp úr áramótum á Gauragangi. „Ég hef viljað hafa þann háttinn á að ég sé verkefnaráðin þannig að ég hafi smáfrelsi, þannig að þetta er kannski nýtt fyrir mig að ráða mig svona,“ segir hún. Leikarar sem hafa nóg að gera vilja náttúrulega ekki binda sig mikið? „Nei, það er þannig og svo hefur hann einhvern veg- inn náð að binda leikara hann Magnús Geir og það er kannski líka bara kreppan og svona,“ svarar Ilmur. Ilmur guðfræðinemi Ilmur var í guðfræðinámi við Háskóla Íslands í vetur og tók sér þá stutt hlé frá leiklistinni. „Við byrjum ekkert að æfa fyrr en í nóvember þannig að ég ætla að reyna að byrja í skólanum og taka próf síðan,“ segir hún en efast um að tími gefist fyrir námið eftir áramót. Gæti kannski farið svo að Ilmur skipti um starf og gerðist prestur? „Hver veit?“ segir Ilmur og hlær. helgisnaer@mbl.is Magnús Geir nælir í Ilmi ótímabundið  Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, undir stjórn Hrannar Marinósdóttur, leitar að ungum, íslenskum kvikmynda- gerðarmönnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í kvikmyndagerð til að taka þátt í alþjóðlegri kvik- myndasmiðju hátíðarinnar, RIFF’s Talent Laboratory, dagana 24.-27. september. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður og tekið við umsóknum frá Íslendingum til 1. september. Smiðjan er þó ekki eingöngu ætluð Íslendingum held- ur ungu hæfileikafólki almennt frá Evrópu og Ameríku og er að- almarkmið hennar að hjálpa upp- rennandi listamönnum að brúa bil- ið milli stuttmynda og fyrstu kvikmyndar í fullri lengd, að því er segir á vefsíðu RIFF, riff.is. Þá fær valið hæfileikafólk tæki- færi til þess að sýna stuttmynd sína í opinberri dagskrá hátíð- arinnar þar sem hún keppir um hvatningarverðlaunin Gullna egg- ið. Umsóknareyðublað má finna á riff.is. RIFF leitar ungra kvik- myndagerðarmanna  Rokkvinir íslenskir hafa tekið vel við sér við fréttirnar af því að dauðarokksveitin Sororicide snúi aftur þó það sé ekki nema fyrir þessa einu tónleika (sjá umfjöllun hér til hliðar) eins og sjá má á spjallþráðum: „AHHH FOKK! SO- RORICIDE!!!!!! Núna getur maður dáið sáttur!", „HOLY SKÖLL- FUCK“, „Brilliant að fá Sorori- cide á þetta. In Memoriam og Gone Postal líka. Foookk!“, „Sá sem missir af þessu verður FUU- UUUU for life. DJÖFULSINS SNILLD!“, „Hólýfokk! Verður Gaui að selja rakaþolnar gips- plötur þarna?“, „ég er svona án djóks að spá í að hætta í vinnunni minni til þess að mæta“, „hólí sjæse bitte sjön!! helvíti verður nú gaman að sjá Sororicide og In memoriam.“ og „ÓMÆÆÆÆÆ- ÆÆ … Djöfull hlakka ég tiiil! SORORICIDE“. Sköllfuck, hólýfokk og hólí sjæse bitte sjön! Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is SÆNSKA rokksveitin Entombed kemur hingað til lands síðla ágúst- mánaðar, heldur tónleika á Sódómu 22. ágúst. Það er eðlilega nokkur tíðindi, en íslenskum rokkvinum þykja það þó meiri tíðindi að dauð- rokksveitin goðsagnakennda So- roricide kemur saman aftur til að hita upp, en sveitin hefur ekki spil- að saman í fimmtán ár og níu ár síðan nafnið var síðast notað á sviði. Eitt bindið í íslenskri rokksögu er lagt undir dauðarokksbylgju tí- unda áratugarins og lengsti kaflinn er um hljómsveitina Sororicide. Víst var hún ekki fyrsta hljóm- sveitin til að leika dauðarokk, en hún varð snemma sú öflugasta og kom stefnunni rækilega á kortið með því að sigra af öryggi í Mús- íktilraunum Tónabæjar 1991. Afsakið hlé ... í fimmtán ár Sororicide stofnuðu á sínum tíma þeir Gísli Sigmundsson bassaleikari og Guðjón Óttarsson gítarleikari, en síðan slógust í hópinn Fróði Finnsson og Karl Ágúst Guð- mundsson trommuleikari og þannig var sveitin skipuð 1991. Hún nýtti sigurlaunin, hljóðverstíma, til að taka upp plötuna The Entity sem kom út fyrir jólin 1991, en þá hafði Bogi Reynisson tekið við söngnum af Gísla. Hann hætti þó snemma á árinu 1992 og síðan Karl Ágúst, sem gekk í Kolrössu krókríðandi / Bellatrix, og Fróði. Í þeirra stað komu þeir Arnar Guðjónsson á gít- ar og Unnar Snær Bjarnason á trommur. Þannig skipuð tók Sororicide upp nokkur lög sumarið 1993, en þegar þau komu loks út á plötu 1994 var hljómsveitin hætt störfum nokkru áður; hélt sína síðustu tónleika vor- ið 1994. Reyndar komu þeir Gísli og Unnar saman aftur sem Sororicide og léku á einum tónleikum fyrir níu árum með tvo Mínusmenn sér til aðstoðar, en upprunaleg sveit hefur ekki hist aftur fyrr en nú. Löngu goðsagnakennd Rokkvinir hafa tekið vel við sér eins og sjá má á spjallþráðum, enda hljómsveitin löngu orðin goðsagna- kennd. Gísli Sigmundsson segist hafa tekið eftir því að menn séu spenntir fyrir því að sjá sveitina, en það hafi komið honum á óvart hvað væntingarnar séu miklar og hann óttist að þær séu of miklar; „ég held að væntingar hjá þeim sem sáu okkur ekki í gamla daga séu ekki í samræmi við það sem er raunhæft og þetta setur óneit- anlega pressu á okkur,“ segir hann og hlær við. Hann segir að fyrstu æfingar sveitarinnar fyrir tónleikana hafi gengið vel, menn hafi fljótlega dott- ið inn í gamla stemmningu, voru fljótir að ná saman, „en hvað spila- mennskuna varðar var það svolítið vandræðalegt og við áttuðum okkur fljótlega á að við þyrftum fleiri æf- ingar en við bjuggumst við í upp- hafi, enda viljum við ekki þurfa að skammast okkar fyrir þetta,“ segir Gísli en þó sveitin hafi rumið sitt síðasta 1994 hafa þeir allir fengist eitthvað við músík síðan nema Guð- jón, sem hætti alveg að spila. Þó Sororicide hafi í sjálfu sér ekki lifað lengi breyttist sveitin talsvert á meðan hún starfaði; fyrsta gerð hennar var hrá og hlað- in ungæðislegum þrótti, en beislaði síðan kraftinn, lögin urðu rökréttari og keyrslan útpæld. Það er einmitt þetta seinna stuðtímabil sem sveit- armenn hyggjast rifja upp á Só- dómu, enda segir Gísli að þeir fé- lagar séu allir hrifnastir af því sem þeir voru að gera þá. Gerum þetta fyrir okkur Aðspurður hvort það hafi ekki verið freistandi að lifa á fornri frægð, að vera bara goðsögn og láta ekkert heyra í sér framar, segir Gísli að það hafi sína kosti að vera í þekktri hljómsveit sem enginn hefur séð, „en við erum að gera þetta fyrir okkur. Við höfum neitað ótal til- boðum um að spila á hinum og þessum tónleikum af því menn hafa ekki verið tilbúnir til þess, en núna erum við rétt stemmdir og þá er um að gera að hafa bara gaman að þessu, við erum löngu búnir að læra það að maður verður ekki rík- ur af að spila dauðarokk á Íslandi og þá er það eitt eftir að hafa gam- an af þessu.“ Ekki stendur til að gera miklar breytingar á lögunum fyrir þessa tónleika, eitt lag þó lagfært, enda ekki þörf á, að sögn Gísla, en það fær ekkert nýtt lag að hljóma – en kemur það þá seinna? Gísli tekur dræmt í það: „Það er lítið af nýjum hugmyndum sem stendur og maður á ekki að vera með einhverjar yf- irlýsingar um framtíðina. Ætli við setjumst ekki niður eftir tónleikana og sjáum hvernig stemmningin er, þetta er ekkert kombakk, við erum ekki að fara að hittast þrisvar í viku og spila á fullt af tónleikum, en það er ekkert útilokað að við gerum eitthvað meira. Mín aðal- áhersla er og verður á Beneath og Arnar vill örugglega vinna í Leaves áfram. Sororicide er eitthvað sem við gerðum í gamla daga og það var skemmtilegt, en það er fortíðin, fyrir mér er Beneath framtíðin.“ Djöf... F$&%&%##&!!! Sororicide gengur aftur Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Flasa Sororicide-liðar hrista makkann í Tónabæ. Sveitin gaf út breiðskífuna The Entity árið 1991 og fékk lof fyrir. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Sígild Hlynur Aðils Vilmarsson í rymjandi stuði. Ilmur Nóg að gera í leiklistinni og guðfræðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.