Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 13

Morgunblaðið - 30.08.2009, Side 13
„Jæja, svo þú ætlar að verða mjó og sæt?“ spurði Boris á fyrsta fundi þeirra. „Nei,“ svaraði Thelma um hæl og dró hverja græjuna af annarri upp úr töskunni. „Ég ætla að verða kraftlyftingakona.“ Andlitið datt af Boris. „Ég hef aldrei séð jafnundr- andi mann,“ segir Thelma hlæjandi. brons- verðlauna. Samanlagt lyfti hún 317,5 kg á mótinu sem er 15 kg meira en hún hafði gert áð- ur. „Ég var himinlif- andi með þann ár- angur. Bjóst ekki við neinu fyrir mótið. Þetta var mikil hvatning.“ Thelma vakti athygli á mótinu fyrir glaðlega framkomu og litríkan klæðaburð. Henni brá hins vegar í brún þegar einn strákurinn á mótinu bað um að fá mynd af sér með henni. „Fyrst hélt ég að hann væri að grínast en samþykkti þetta. Síð- an kom annar og á endanum lá ég í fanginu á heilu landsliði. Ég missti næstum af verðlaunaaf- hendingunni fyrir vikið, þjálf- ara mínum til lítillar skemmtunar.“ Það er mottó Thelmu að fara í gegnum mót á létt- leikanum og frægt var á fyrsta mótinu hennar hér heima þegar hún spratt á fætur eftir misheppnaða lyftu og veifaði glaðlega til áhorfenda. Hún hlær þeg- ar hún rifjar þetta upp. „Ég var að veifa vinkonum mínum. Ég var svo glöð að þær skyldu hafa komið.“ Spurð um fyrirmyndir nefnir Thelma ástralska vaxtarræktar- manninn Lee Priest. „Það er allt annað sport en hann kemur mér alltaf í góðan fíling. Það líta líka allir kraftlyftingamenn á Íslandi upp til Jóns Páls Sigmarssonar. Hann var ekki bara frábær íþrótta- maður heldur líka einstakur skemmtikraft- ur með mikla persónutöfra. Minningin um Jón Pál lifir. Ekki má heldur gleyma æf- ingafélaga mínum, Gemmu Magnússon. Ætli ég líti ekki mest upp til hennar.“ Næsta verkefni Thelmu er heimsmeistaramót ung- linga sem hefst í São Paulo í Brasilíu um næstu helgi. Þetta er síðasta árið sem hún er gjaldgeng í flokki unglinga og kveðst Thelma ekki hafa viljað missa af tækifærinu. Hún stillir væntingum í hóf en vonast þó til að bæta sinn persónu- lega árangur. „Ég renni blint í sjóinn en það yrði gaman að komast inn á topp tíu í mínum flokki. Við skulum sjá hvað setur.“ Hún segir sterkustu stelp- urnar koma frá Austur-Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum en Norð- urlandabúarnir séu jafnt og þétt að færa sig upp á skaftið. Thelma verður eini íslenski keppandinn í Brasilíu en með henni í för verður aðstoðarmaður en þeir ku vera ómissandi á mótum sem þessum. Það er dýrt að fara utan og Thelma segir dágóðan tíma hafa farið í fjáröflun. „Vantar þig nokkuð klósett- pappír?“ spyr hún hlæjandi. Fjölskylda og vinir styðja við bakið á henni, auk þess sem hún hefur verið dugleg að heimsækja fyr- irtæki í von um styrk. „Mér hefur almennt verið vel tekið en það er greinilegt að fyrirtæki eru ekki aflögufær í sama mæli og fyrir bankahrunið. Ég kann öllum sem hafa styrkt mig bestu þakkir fyrir. Það vantar ennþá herslumuninn til að dæmið gangi upp en ég er búin að panta farið þannig ekki verður aftur snúið úr þessu,“ segir Thelma. Eftir heimsmeistaramótið tekur við kær- komin hvíld hjá henni áður en æfingar hefjast af fullum krafti á ný vegna verkefna haustsins. Í október tekur hún þátt í að skipuleggja mótið Sterkasta kona Íslands, auk þess að verða meðal keppenda. „Ég hef aldrei keppt á afl- raunamóti áður. Það verður spennandi.“ Í nóvember keppir hún síðan á sínu fyrsta og eina kraftlyftingamóti hérlendis á árinu þegar bikarmót Kraft fer fram. Mun ekki rúlla um götur Thelma gerir ráð fyrir að stunda kraftlyft- ingar um ókomna tíð. „Ef þetta væri bóla væri þetta búið núna,“ segir hún og glottir. Hún notar orðið „ávanabindandi“ um lyftingarnar. Hana langi alltaf að lyfta meiri þyngdum. En hversu hátt stefnir hún? Hversu hrikaleg vill hún verða? „Mamma hefur líka spurt mig að þessu,“ segir hún hlæjandi. „Ég stefni að því að ná eins langt og ég get í þessari íþrótt. Ég hef hins vegar engar áhyggjur af vextinum. Konur hafa ekki testósterón á við karla og geta fyrir vikið aldrei orðið eins massaðar. Ég hef engar áhyggjur af því að rúlla um götur.“ Hún hefur þyngst um tíu kg frá því hún byrjaði að æfa en fituprósentan er mun minni. „Ég er í allt öðruvísi formi en ég var áður. Ég er miklu sterkari en á móti kemur að það er erfiðara fyrir mig að hlaupa og synda. Ég var í sundáfanga í náminu í vor og hann var hreint ekki auðveldur. Eins með hlaupin. Ég er fín á fyrstu metrunum út af sprengikraftinum en síðan syrtir í álinn.“ Thelma kveðst hvorki líta á sig sem braut- ryðjanda né fyrirmynd í kraftlyftingum en vonar eigi að síður að árangur hennar eigi eftir að laða fleiri stelpur að íþróttinni. „Ég hef á til- finningunni að vinsældir greinarinnar eigi eftir að aukast á komandi árum. Íslenskar stelpur eru hrikalega sterkar!“ 13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 Kraftlyftingar eru mikil stemningsíþrótt ogævintýralegt getur verið að fylgjast meðmönnum þegar þeir búa sig undir lyftur. Thelma skellir upp úr þegar þetta berst í tal. „Ég er ekkert árennilegri en strákarnir. Maður verður að koma sér í ákveðið hugarástand fyrir lyftur. Koma sér í geðveikina.“ Að einu leyti sker Thelma sig þó með áberandi hætti frá strákunum. „Ég hef alltaf verið voðalega bleik í mér og sé enga ástæðu til að breyta því þótt ég sé komin í kraftlyftingar. Ég er líka alltaf með gloss í töskunni. Allt gengur betur þegar maður er með gloss. Ég rígheld í kvenlega þáttinn enda má maður aldrei gleyma hver maður er.“ Búningar kraftlyftingamanna eru kapítuli út af fyrir sig – gríðarlega þröngir. „Það er enginn hægðarleikur að komast í búninginn. Það getur tek- ið klukkutíma. Ég fæ oftast tvo hrausta stráka til að troða mér í hann og hangi bókstaflega í lausu lofti á meðan. Komin í búninginn líkist maður helst rúllupylsu,“ segir hún skellihlæjandi. Að sögn Thelmu er ekkert pláss fyrir tepruskap og spéhræðslu í lyftingum. „Það er ekki hægt að fela neitt í þessu sporti og ég skora á alla sem eru ósáttir við líkama sinn að prófa lyftingar. Óöryggið hverfur eins og dögg fyrir sólu.“ Að koma sér í geðveikina Troðið í Thelma fær hér aðstoð við að komast í búninginn en búningar kraftlyft- ingafólks eru með afbrigðum þröngir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.