Morgunblaðið - 30.08.2009, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009
SANDRA BULLOCK RYAN REYNOLDS
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI HEIMURINN ÞARF STÆRRI HETJUR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
BÓNORÐIÐ
HERE COMES THE BRIBE ...
THE
PROPOSAL
Einn svakalegasti eltingarleikur allra tíma í
glæpasögu Bandaríkjana.
61.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU! VINSÆLASTA GRÍNMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÝND Í 3D
Í REYKJAVÍK
FRÁSAM RAIMI
LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN
MYNDANNA SEM ER Í TOPPFORMI Í SINNI
BESTU KVIKMYND TIL ÞESSA!
GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI:
ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100
LOS ANGELES TIMES - 100/100
WALL STREET JOURNAL - 100/100
WASHINGTON POST - 100/100
FILM THREAT - 100/100
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA,
VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA
ÆVINTÝRI TIL ÞESSA
ÍK OG SELFOSSI
HHHH
- H.G.G, POPPLAND/RÁS 2
HHHH
„BESTA TARANTINO-MYNDIN
SÍÐAN PULP FICTION OG
KLÁRLEGA EIN AF BETRI
MYNDUM ÁRSINS.“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
HHHH
„EIN EFTIRMINNILEGASTA
MYND ÁRSINS OG EIN SÚ
SKEMMTILEGASTA“
S.V. - MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SPARBÍÓ 550 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
UPP m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 L
G.I. JOE kl. 8 - 10:20 12
G-FORCE m. ísl. tali kl. 2 L
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 4 L
THE PROPOSAL kl. 5:50 síðasta sýning L
PUBLIC ENEMIES kl. 10:20 16
UPP m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 L
FUNNY GAMES kl. 10:10 18
G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L
THE PROPOSAL kl. 8 L
CROSSING OVER kl. 10:20 16
UPP m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L
UP m. ensku tali kl. 8 - 10:20 L
G-FORCE 3D m. ísl. tali kl. 2 L
HARRY POTTER 6 kl. 4 10
THE PROPOSAL kl. 8 L
DRAG ME TO HELL kl. 10:20 16
halda áfram að vinna með Cê-
sveitinni en breyta um vinnubrögð;
nú vildi hann vinna plötuna frá a til ö
með hljómsveitinni, hafa spilafélaga
sína með í lagasmíðum og útsetn-
ingum, og einnig vinna plötuna fyrir
opnum tjöldum. Hann setti því upp
vefsetrið Obra em progresso, „Verk
í vinnslu“, obraemprogresso.com.br,
þar sem hann bloggaði daglega um
það hvernig verkinu miðaði, leyfði
fólki að fylgjast með, heyra hug-
myndir að lögum og einnig að greiða
atkvæði um hvaða útsetning hentaði
best fyrir sum laganna, enn önnur
voru prufukeyrð og slípuð til á tón-
leikum. Allt hafði þetta áhrif á skíf-
una eins og sambahugmyndin vék
snemma fyrir rokkaðri hljómum, þó
sambatakt sé víða að finna. Skífan
átti og að heita „Transamba“, en í
takt við breyttar áherslur breyttist
nafnið – platan nýja heitir Zie & Zii,
sem er ítalska og útleggst frændur
og frænkur.
Mannréttindabrot á
mannréttindabrot ofan
Ekki var bara bloggað um músík á
Obra em progresso, því þegar síðum
þar er flett má sjá að flest er undir,
til að mynda hvaða stafsetningu sé
best að nota á portúgölsku (bras-
ilíska, portúgalska eða einhverja enn
aðra), uppruna orðsins mulata og
svo má telja. Veloso fer því um víðan
völl í bloggfærslunum og aðdáendur
hans brasilískir (allt er á portú-
gölsku) hafa líka tekið vel við sér því
athugasemdir skipta hundruðum við
sumar færslurnar og oft hiti í mönn-
um.
Eitt af því sem menn hafa deilt um
á skífunni er lagið „Base de Guant-
ánamo“, myrkt klifunarkennt lag sem
fjallar um mannréttindabrot banda-
ríska hersins í Guantánamo-flóa á
suðausturenda Kúbu. Meðal þeirra
sem gagnrýnt hafa lagið er sjálfur
caudillo Kúbu, Fidel Castro, enda
bendir Veloso á þá nöturlegu stað-
reynd í texta lagsins að mannrétt-
indabrot Bandaríkjamanna séu fram-
in í landi óvinveittu þeim, Kúbu, sem
er meðal annars þekkt fyrir sín
mannréttindabrot. Þetta þótti Castro
hið versta mál og vændi Veloso um að
vera taglhnýting Bandaríkjamanna,
leiguþý heimsvaldasinna og svo fram-
vegis.
Veloso-fróðir heyra það vitanlega
um leið að „Base de Guantánamo“ er
byggt á öðru lagi, „Haiti“, sem þeir
sömdu saman Veloso og Gilberto Gil
og finna má á Tropicália 2 (kom út
1993), en í því velta þeir fyrir sér
ömurlegu hlutskipti íbúa Haítí sem
glíma ekki bara við sjúkdóma, hung-
ur og ofbeldi heldur eru þeir líka
hrjáðir af kynþáttafordómum þar
sem yfirstétt ljósra blökkumanna
kúgar þá sem dekkri eru.
„Base de Guantánamo“ er ekki
eina lagið sem er endurgert á skíf-
unni því Veloso tekur líka fyrir tvö
gömul sambalög, annað eftir João
Bosco og George Gershwin, „Incom-
patibilidade de gênios“, og hitt,
„Ingenuidade“, er eftir Clementina
de Jesus og Roberto Ribeiro.
Á sjöunda áratugnum var mikil
gróska í brasilískri menningu;
ný kynslóð nýrrar stéttar, mið-
stéttarungmenni, vel menntuð
og þokkalega fjáð, létu til sín
taka í flestum listum, hristu af
sér hlekki ferðarinnar og tóku
til við að skapa nýja list, Tropi-
cália. Liststefnunni hefur verið
lýst sem menningarlegu
mannáti, allt mátti nota og allt
var undir; eins og segir í laginu
„E Prohibido Prohibir“ – „Það
er bannað að banna“ (Veloso
flutti þá herhvöt með Os Munt-
antes á sambatónleikum 1968
og allt varð vitlaust).
Tropicália-hreyfingin hafði
mikil áhrif í Brasilíu og þótt
hún hafi ekki lifað lengi í sjálfu
sér, þá lagði hún grunninn að
þeirri tónlistarstefnu sem
ríkjandi var í Brasilíu næstu
áratugina, MPB, eða Música Po-
pular Brasileira. Höfuðpaurar
hreyfingarinnar eru jafnan tald-
ir þeir sem komu við sögu á
plötunni frægu Tropicália: ou
Panis et Circencis: Caetano Ve-
loso, Gilberto Gil, Nara Leão, Os
Mutantes, Tom Zé, Rogerio Dup-
rat og Gal Costa. Getið er um
Veloso hér til hliðar en hin eru
flest að í músík (Nara Leão lést
1989 og Duprat 2006):
Gilberto Gil
hefur verið gríðarlega afkasta-
mikill í gegnum árin og plötur hans
eru á sjötta tuginn. Hann hefur
líka tekið þátt í stjórnmálum og
var um hríð menntamálaráðherra í
heimalandi sínu. Hann sendi síðast
frá sér breiðskífu 2008, Banda
Larga Cordel. Lykilplata: Gilberto
Gil frá 1969 (hann gaf út þrjár
plötur sem heita einfaldlega Gil-
berto Gil og komu út 1968, 1969
og 1971).
Os Mutantes
hefur notið mikillar hylli utan
heimalandsins og tónlistarmenn
eru iðnir við að vísa í plöturnar
sem sveitin gerði á áttunda ára-
tugnum. Hún hætti 1978 en sneri
aftur í sviðsljósið fyrir tónleikaferð
2006 og sendi frá sér plötuna Haih
um daginn. Lykilplata: „Os Mut-
antes“ frá 1968 (fyrsta platan).
Gal Costa
er fræg fyrir sínar furðulegu
plötur á áttunda áratugnum. Með
sérkennilegustu skífum sem maður
kemst yfir eru plöturnar Gal Costa,
sem kom út 1969, og Gal Costa,
sem kom út síðar sama ár. Síðasta
plata hennar var tónleikaplatan
„Gal Costa Ao Vivo“ sem kom út
2006. Lykilplata: „India“ frá 1973.
Tom Zé
er heldur eldri en þau hin sem
hér er getið. Hann hvarf nánast
sjónum manna undir lok áttunda
áratugarins, en David Byrne kippti
honum í sviðsljósið aftur með
safnplötunni „Brazil Classics, Vol.
4: The Best of Tom Zé – Massive
Hits“ sem kom út 1990. Þar með
var Tom Zé kominn aftur í gang og
síðan hafa komið út með honum
ellefu plötur, síðast „Estudando a
Bossa – Nordeste Plaza“ sem kom
út á síðasta ári. Lykilplata: „Fa-
brication Defect: Com Defecto De
Fabricacao“ frá 1998.
Menningarlegt mannát
Gal Costa Gilberto Gil
Os MuntantesTom Zé