Morgunblaðið - 30.08.2009, Page 24

Morgunblaðið - 30.08.2009, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. ÁGÚST 2009 arkitektúr hafa oft heyrst á Ís- landi. Nýleg dæmi sem hafa þótt frekar miðjumoðsleg eru stórhýsin sum við Skúlagötuna. Þó hefur ís- lenskur arkitektúr í gegnum tíðina oft átt mjög góða spretti og ís- lenskar byggingar hafa vakið verð- skuldaða athygli ferðamanna og fagfólks í gegnum tíðina. Oft virð- ist þó arkitektum sniðinn þröngur stakkur af verktökum sem síðustu árin hafa keypt lóðir og verið um- hugað um byggingarmagn og lág- Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is Arkitektar hafa mikil völd, sér- staklega í stórborgum, þar sem hönnun þeirra getur verið áber- andi um langt skeið. Reyndar er það svo að góð hönnun vill endast lengur en slæm hönnun og því verða illa hönnuð hús oft fyrir barðinu á niðurrifskúlunni, jafnvel áður en hlutverki húsanna er lok- ið. Gagnrýnisraddir á íslenskan an kostnað. Niðurstaðan hefur oft á tíðum verið hálfgerðar aust- antjaldsblokkir. Laus taumur Í Kaupmannahöfn stendur þyrp- ing íbúða sem sýnir hvað er hægt að gera þegar arkitektum er gef- inn laus taumur. Það er íbúða- kjarninn VM Bjerget, sem er rúm- fræðilegt afrek og einstaklega upplífgandi, enda margverðlaun- aður í ár fyrir frábæra hönnun. Um er að ræða tíu hæða hús sem er tíu hæðir í norðvesturhluta þess en aðeins ein hæð í suðaust- urhlutanum. 80 íbúðir eru svo not- aðar til að mynda stalla sem minna á fjall sem rís upp úr land- svæðinu í kring. Undir húsinu er bílageymsla fyrir 480 bíla og er bílageymslan álíka frumleg og húsið, afar lífleg og opin og hreint ekki lík því sem fólk á að venjast í venjulegum bílastæðahúsum. Bílageymslan myndar undirstöð- urnar sem íbúðirnar, fjallið sjálft, hvíla á. Grænt, vænt og stílhreint Frá ákveðnu sjónarhorni virðist byggingin vera græn á lit, því hver íbúð er með lítinn lokaðan garð sem snýr á móti sólu og skapar mikið skjól frá vori og fram á haust. Allar plöntur í görðunum eru vökvaðar með sjálfvirku vökv- unarkerfi. Íbúðirnar eru í ýmsum stærðum og þrátt fyrir að hönnunin sé afar nýstárleg kostar íbúð í þessu húsi ekki meira en sambærileg íbúð á þokkalegum stað í Kaupmanna- höfn. Húsið þykir því sýna vel hvað hægt er að gera ef arkitekt- um er gefinn laus taumur og há- leitari markmið en byggingarmagn fá að ráða. Á hlið hússins þar sem ekið er inn í bílageymsluna getur að líta mynd af Everest-fjalli sem er ein- mitt fyrirmynd hússins. Verðlaunaður „fjallakofi“ Lífleg Íbúðakjarninn samanstendur af 80 íbúðum og er allt að tíu hæða hár. Íbúðirnar eru 80 til 150 fermetrar að stærð og sér garður fylgir hverri íbúð. Flott Bílageymslan í VM Bjarginu í Kaupmannahöfn er afar glæsileg og gjörólík hefðbundnu bílageymslurými þar sem vaninn er að búa fyrst og fremst til rými, en láta umhverfið sjálft liggja á milli hluta. TENGLAR .............................................. http://www.big.dk/projects/mtn/ mtn.html http://www.vmbjerget.dk/ vmbjerget.htm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.